Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ísraelska ríkissjónvarpið kvartar yfir ummælum sænska Eurovision-farans

Read Full Article →

Ísraelska ríkissjónvarpið, KAN, hefur kvartað til Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, vegna ummæla Feliciu, fulltrúa Svíþjóðar í Eurovision. Felicia vann sænsku undankeppnina Melodifestivalen um helgina með laginu My System. Eftir sigur sinn sagði hún í viðtölum við fjölmiðla að hún teldi að Ísrael ætti ekki að vera leyfð þátttaka í Eurovision. Hún sagði þetta vera skoðun sína í ljósi þátttöku Ísraela í hernaði. Velti því mikið fyrir sér hvort hún ætti að taka þátt „Ég held að í raun og veru ættu þeir ekki að vera þarna. Það er enn mikið um dráp svo ég held að það sé ekki réttlætanlegt,“ sagði Felicia um þátttöku Ísraela í samtali við Dagens Nyheter . Hún segir að hún hafi velt því mikið fyrir sér hvort hún ætti yfir höfuð að taka þátt í keppninni. Það ætli hún að gera „til að sjá til þess að þeir vinni ekki“. Fimm ríki ákveðið að sniðganga keppnina Í frétt norska ríkisútvarpsins, NRK , segir að KAN hafi lagt inn formlega kvörtun til EBU. Forsvarsmenn ísraelsku sjónvarpsstöðvarinnar telja að orð Feliciu brjóti í bága við reglur keppninnar, keppendur eigi að fylgja ákveðnum siðareglum og keppnin sé ópólitísk. Eftir að EBU ákvað að Ísrael yrði leyft að taka þátt í næstu Eurovision-keppni hafa fimm lönd tilkynnt að þau ætli að sniðganga keppnina. Auk Íslands eru það Írland, Holland, Slóvenía og Spánn.

Share this article