Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Lét ummælin falla eftir samtal við Pútín

Read Full Article →

Donald Trump sagði að stríðið í Íran væri „mjög langt komið“ eftir klukkutíma langt símtal við Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Bandaríkjaforsetinn sagði að sameiginleg hernaðaraðgerð Bandaríkjanna og Ísraels hefði skilið Íran eftir „án flotans, án fjarskipta… og án flughers“. Sjá einnig Olían hrynur í verði eftir ummæli Trump „Ég held að stríðið sé í rauninni nánast búið,“ sagði hann í viðtali við CBS News í kvöld og bætti við að Bandaríkin væru „mjög langt á undan“ þeirri tímaáætlun sem upphaflega hafði verið gerð. „Þeir hafa engan flota, engin fjarskipti og engan flugher. Eldflaugakerfi þeirra er í molum. Drónar þeirra eru sprengdir upp víðs vegar, þar á meðal framleiðsla þeirra á drónum,“ sagði hann. „Ef maður horfir á þetta þá eiga þeir ekkert eftir. Í hernaðarlegum skilningi er ekkert eftir.“ Hann lét þessi orð falla eftir langt símtal við Pútín, sem samkvæmt upplýsingum frá Kreml hafði lagt fram nokkrar tillögur fyrir Bandaríkjaforsetann um hvernig mætti ljúka stríðinu hratt. Embættismenn í bandaríska varnarmálaráðuneytinu sögðu að herinn væri að nálgast það stig að ná öllum hernaðarlegum markmiðum sínum.

Share this article