Innlent | mbl | 10.3.2026 | 14:04 Svarar ekki beint um undanþágur en segir stöðu Íslands sterka Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Ræða þarf alla kaflana á nýjan leik Stál í stál um afstöðuna til aðildarviðræðna við ESB Ekki víst hvernig Evrópusambandið bregst við Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið Hart sótt að Kristrúnu » Fleiri tengdar fréttir Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, lét ummæli falla í útvarpsþættinum Vikulokin á RÚV þar sem hann ræddi um að veiðireynsla Íslendinga á Íslandsmiðum setji landið í sterka stöðu þegar kemur að viðræðum um skiptingu fiskveiðikvóta á milli landa ESB. Ummælin eru athyglisverð í ljósi þess að til þessa hefur umræðan einkum snúist um það hvort Ísland muni fá varanlega undanþágu frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins (CFP) í mögulegum samningaviðræðum við sambandið. Ummælin lét hann falla í umræðum um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald samningaviðræðna við ESB. Með honum í stúdíói voru sjálfstæðismaðurinn Guðlaugur Þór Þórðarson, Lilja Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins og Sigmar Guðmundsson úr Viðreisn. Erum í sterkri stöðu Spurður í samtali við mbl.is hvort þetta þýði að samningsmarkmið Íslands í hugsanlegum viðræðum muni snúa að því að ákveða hver kvóti Íslendinga verði innan sameiginlegu sjávarútvegsstefnunnar eða að fá varanlega undanþágu frá stefnunni, svarar Guðmundur því ekki beint. „Samningsmarkmiðið er að halda yfirráðum yfir okkar auðlindum. Hvernig það verður útfært í samningum að lokum verður að koma í ljós. Við erum í sterkri stöðu þegar kemur að veiðireynslu og því að við erum með staðbundna stofna við Íslandsstrendur. Það styrkir okkar samningsstöðu,“ segir Guðmundur Ari. Auðlindakaflinn skipti sköpum En umræðan hefur hingað til snúið að því hvort Ísland muni fá varanlega undanþágu frá hinni sameiginlegu sjávarútvegsstefnu. Sterk samningsstaða Íslands gagnvart sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni er annars eðlis, ertu ekki sammála því? „Eins og þetta blasir við mér fagna ég því að við séum að byrja á auðlindakaflanum ef við förum í þessar viðræður. Það verður mest spennandi að sjá hvernig niðurstaðan verður úr þeim kafla og hvernig samningsstaða Íslands gæti skilað árangri. Við vitum að tækifærin snúa meðal annars að gjaldmiðli og vöxtum, en áskorunin er að halda yfirráðum yfir okkar auðlindum,“ segir hann. Guðmundur Ari segir jafnframt að hann hafi ekki ákveðið hvernig atkvæði hans muni falla þegar samningur liggur fyrir. Það muni meðal annars ráðast af því hvernig auðlindakaflinn verður útfærður þegar kemur að atkvæðagreiðslu. Svarar ekki beint En eru þessi orð þá viðurkenning á því að varanlegar undanþágur séu í boði? „Alls ekki. Þessi orð snúast um það að við höfum aldrei verið í jafn sterkri stöðu til að semja um aðild að Evrópusambandinu út frá þeim samningsmarkmiðum sem við höfum um að halda yfirráðum yfir okkar auðlindum.“ En þetta svarar því ekki hvort viðurkennt sé að varanlegar undanþágur séu út af borðinu. „Við erum með samningsmarkmið ef við förum í samningsviðræður. Þau eru að við höfum yfirráð yfir okkar auðlindum. Hvernig það verður útfært er útfærsluatriði sem þarf að kveða á um við samningsborðið. En staða okkar fyrir slíkar viðræður hefur aldrei verið jafn sterk,“ segir Guðmundur Ari. ESB ákveður kvótann Í sameiginlegri sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins ákveður ESB hversu mikið má veiða af hverri fisktegund á hverju ári. Heildarkvótanum er síðan skipt milli aðildarríkja eftir fyrirfram ákveðnum hlutföllum sem byggja að mestu á sögulegum veiðum. Aðildarríkin fá þannig sinn hlut af heildarkvótanum og ákveða sjálf hvernig honum er úthlutað til skipa eða fyrirtækja innan landsins. Engin aðildarríki Evrópusambandsins eru með fulla undanþágu frá sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni (CFP). Öll ríki sambandsins taka formlega þátt í kerfinu og lúta sameiginlegum reglum um heildarafla og stjórnun fiskveiða. Hins vegar eru til sérreglur og aðlögunartíma fyrir sum ríki eða svæði. Tengdar fréttir Ísland og ESB Ræða þarf alla kaflana á nýjan leik Stál í stál um afstöðuna til aðildarviðræðna við ESB Ekki víst hvernig Evrópusambandið bregst við Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið Hart sótt að Kristrúnu » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Logi verðlaunaður í Tyrklandi Þorgerður heldur til Washington „Snædís hefur æft gríðarlega vel fyrir Bocuse d’Or“ Svarar ekki beint um undanþágur en segir stöðu Íslands sterka Telja sig vita orsök stórbrunans Umræðan Bókin sem þú mátt ekki lesa Er leiðangurinn þess virði? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Telja sig vita orsök stórbrunans Þorgerður Katrín: „Í guðanna bænum“ Björgunarflug fyrir á fimmta tug Íslendinga „Ekkert í gangi sem bendir til þess að það styttist í gos“ Mest lesið Í gær Í vikunni Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Ósáttur við ummæli ráðherra Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Drumbarnir frá NATO Farsælast að Hildigunnur hefði setið áfram Sjónvarpað frá útför Davíðs Sagðist ætla að sprengja upp byggingu Þrír í haldi vegna gruns um nauðgun á Akureyri Fékk nótina í skrúfuna Vilja lengja Hringveginn og teygja yfir Vestfirði Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Sá handtekni starfsmaður verktaka Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Missti stjórn á bílnum vegna hálku Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Nýjast á mbl.is » Logi verðlaunaður í Tyrklandi Þorgerður heldur til Washington „Snædís hefur æft gríðarlega vel fyrir Bocuse d’Or“ Svarar ekki beint um undanþágur en segir stöðu Íslands sterka Telja sig vita orsök stórbrunans Umræðan Bókin sem þú mátt ekki lesa Er leiðangurinn þess virði? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hart sótt að Kristrúnu „Bandaríkin taka við þeim ef þið gerið það ekki“ „Mega hlutir ekki vera krefjandi lengur?“ Gátu ekki rökstutt þörf á gæsluvarðhaldi Mest lesið Í gær Í vikunni Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Ósáttur við ummæli ráðherra Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Drumbarnir frá NATO Farsælast að Hildigunnur hefði setið áfram Sjónvarpað frá útför Davíðs Sagðist ætla að sprengja upp byggingu Þrír í haldi vegna gruns um nauðgun á Akureyri Fékk nótina í skrúfuna Vilja lengja Hringveginn og teygja yfir Vestfirði Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Sá handtekni starfsmaður verktaka Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Missti stjórn á bílnum vegna hálku Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar