Innlent | mbl | 10.3.2026 | 16:18 | Uppfært 16:35 Ferðin til Íslands átti að vera síðasta samverustundin Feðginin fundust látin á hótelherbergi á Edition-hótelinu í miðbæ Reykjavíkur. mbl.is/Ólafur Árdal Birta Hannesdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Manndráp á Edition-hótelinu Rannsókn lokið: Kvaðst hafa banað fjölskyldu sinni Edition-málið til ákærusviðs Farbannið framlengt um þrjá mánuði Ólíklegt að rannsókn ljúki áður en farbann rennur út „Seinleg vinna sem gengur frekar hægt“ » Fleiri tengdar fréttir Kona, sem er grunuð um að hafa banað dóttur sinni og eiginmanni, verður áfram í farbanni til 30. mars. Þetta kemur fram í nýlega birtum úrskurði Landsréttar. Í úrskurðinum koma fram frekari upplýsingar um hvað konan segir að hafi gerst í aðdraganda þess að feðginin létu lífið. Fyrir skýrslu sagði hún að ferðin til Íslands hefði átt að vera síðasta samvera fjölskyldunnar þar sem þau ætluðu að taka eigið líf. Þann 14. júní barst lögreglu tilkynning frá starfsfólki Edition-hótelsins í miðbæ Reykjavíkur um að kona væri slösuð eftir fall í sturtu. Þegar lögregla kom á vettvang fundust eiginmaður og dóttir konunnar látin á vettvangi. Áður hefur komið fram að konan hafi játað sök á vettvangi en neiti sök í dag. Fjölskyldan er frönsk en var búsett í Dyflinni á Írlandi. Rétt er að vara við lýsingum hér fyrir neðan. Sagðist vera skrímsli Tekin var skýrsla af konunni samdægurs á gjörgæslu Landspítalans. Þar greindi hún frá því að hún, eiginmaður hennar og dóttir hefðu ákveðið að fremja sjálfsvíg saman. Dóttirin hefði verið fyrst og það tekið langan tíma. Konan vildi ekki tjá sig frekar um það. Í skýrslutökunni sagðist konan vera skrímsli. Næst lýsti hún því að eiginmaður hennar hefði átt að stinga hana í hjartað en ekki hitt. Maðurinn hefði í kjölfarið ætlað að stinga sjálfan sig en af ónefndum ástæðum hefði hann beðið eiginkonu sína að stinga sig, sem hún hefði svo gert. Konan mun ekki hafa viljað tjá sig frekar. Nokkrum dögum síðar var konan tekin í aðra skýrslutöku. Þar sagði hún að ferðin til Íslands hefði átt að vera síðasta samverustund fjölskyldunnar. Þau hefðu tekið ákvörðun um að deyja saman. Hún sagði eiginmann sinn hafa glímt við erfið veikindi auk þess sem fjárhagsleg erfðamál hefðu tekið á fjölskylduna. Frétt af mbl.is Rannsókn lokið: Kvaðst hafa banað fjölskyldu sinni Dóttirin hafi fengið fullt frelsi Í skýrslunni tók konan fram að hjónin hefðu gefið dóttur þeirra fullt frelsi til að ákveða eigin örlög og að hún hefði verið staðráðin í að deyja með foreldrum sínum. Hún lýsti því að eiginmaður hennar hefði stungið dóttur þeirra. Þá sagði hún eiginmanninn hafa stungið sig og þau legið hlið við hlið í rúmi á hótelherberginu. Í þeirri skýrslutöku sagðist hún ekki hafa stungið eiginmann sinn og dóttur. Hún kvaðst hafa verið í uppnámi þegar hún sagðist hafa stungið þau. Þriðja skýrslutakan var tekin af konunni 2. júlí. Þá greindi hún frá því að umrædda nótt hefði hún vaknað við að eiginmaður hennar hefði verið að fá hana til að taka utan um rafmagnskapal og fá rafstuð og þannig deyja saman. Hún hefði um morguninn ætlað að svipta sig lífi með því að kveikja á hárblásara í sturtu hótelsins. Konan var tekin í fjórðu skýrslutökuna 10. nóvember. Þá kvaðst hún ekki vilja bæta neinu við fyrri framburði. Rannsókn málsins lauk 20. janúar og var það sent til héraðssaksóknara sem tekur ákvörðun hvort gefin verði út ákæra eða ekki. Viku síðar sendi saksóknari málið aftur til lögreglu þar sem hann taldi rannsókn málsins ekki fyllilega lokið. Frétt af mbl.is Edition-málið sent aftur til lögreglu Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á: Píeta-samtökin, s. 552-2218, Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið 1717.is, Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is. Í neyð hringið í 112. Varðandi stuðning eftir missi í sjálfsvígi er bent á Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is, Sorgarmiðstöð, s. 551-4141, og [email protected] , síma Píeta samtakanna, 552-2218. Í neyð hringið í 112. Tengdar fréttir Manndráp á Edition-hótelinu Rannsókn lokið: Kvaðst hafa banað fjölskyldu sinni Edition-málið til ákærusviðs Farbannið framlengt um þrjá mánuði Ólíklegt að rannsókn ljúki áður en farbann rennur út „Seinleg vinna sem gengur frekar hægt“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Heiða Kristín ráðleggur Þorgerði fram að atvæðagreiðslu Galatasaray – Liverpool kl. 17:45, bein lýsing „Af hverju finnst þér þetta fyndið?“ „Hefur afskaplega mikla þýðingu“ Umræðan Bókin sem þú mátt ekki lesa Er leiðangurinn þess virði? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið „Helmingslíkur á gosi“ Þorgerður Katrín: „Í guðanna bænum“ Telja sig vita orsök stórbrunans Mest lesið Í gær Í vikunni Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Ósáttur við ummæli ráðherra Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Drumbarnir frá NATO Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Sagðist ætla að sprengja upp byggingu Skólastjórinn hættir alfarið Farsælast að Hildigunnur hefði setið áfram Sjónvarpað frá útför Davíðs Þorgerður heldur til Washington Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Sá handtekni starfsmaður verktaka Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Missti stjórn á bílnum vegna hálku Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Nýjast á mbl.is » Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Heiða Kristín ráðleggur Þorgerði fram að atvæðagreiðslu Galatasaray – Liverpool kl. 17:45, bein lýsing „Af hverju finnst þér þetta fyndið?“ „Hefur afskaplega mikla þýðingu“ Umræðan Bókin sem þú mátt ekki lesa Er leiðangurinn þess virði? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Telja sig vita orsök stórbrunans „Bandaríkin taka við þeim ef þið gerið það ekki“ Hart sótt að Kristrúnu Mest lesið Í gær Í vikunni Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Ósáttur við ummæli ráðherra Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Drumbarnir frá NATO Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Sagðist ætla að sprengja upp byggingu Skólastjórinn hættir alfarið Farsælast að Hildigunnur hefði setið áfram Sjónvarpað frá útför Davíðs Þorgerður heldur til Washington Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Sá handtekni starfsmaður verktaka Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Missti stjórn á bílnum vegna hálku Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar