Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 20 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Heiða Kristín ráðleggur utanríkisráðherra fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Heiða Kristín Helgadóttir hefur verið ráðin ráðgjafi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra fram að þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við Evrópusambandið. Þetta staðfestir Ægir Þór Eysteinsson, fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins, í samtali við fréttastofu. Vísir greindi fyrst frá. Heiða Kristín var aðstoðarmaður Jóns Gnarrs í borgarstjóratíð hans, og varaþingmaður Bjartrar framtíðar 2014 til 2015. Heiða Kristín Fyrir 4 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Íhaldsmenn á Evrópuþinginu myndu fagna aðild Íslands að ESB ECR-flokkahópurinn á Evrópuþinginu sem Miðflokkurinn er í tengslum við, myndi fagna aðild Íslands að Evrópusambandinu, segir þingmaður ECR sem leiðir utanríkismálastefnu flokkahópsins og er málsvari hans í þeim efnum. Fyrir 17 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Kastaðist í kekki milli Dags og Sigmundar Davíðs vegna MAGA Umræður um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið tóku óvæntan snúning þegar þingmaður Samfylkingarinnar skoraði á Miðflokkinn að gera grein fyrir tengslum sínum við bandarísku MAGA-hreyfinguna. Fyrir 23 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Kvikmyndir Tökur hafnar á „Hólmavík“ Um 60 manna tökulið verður að störfum á Hólmavík næsta mánuðinn, að taka upp kvikmynd byggða á hugmyndinni um að Baskar hafi verið réttdræpir á Vestfjörðum. Meðal leikara verður fótboltakempa frá tíunda áratugnum sem hefur snúið sér að leikstörfum. Fyrir 47 mínútumÍÞRÓTTIR Körfubolti Kristrún Ríkey inn í landsliðshópinn Ein breyting hefur verið gerð á landsliðshópi Íslands í körfubolta fyrir leik gegn Serbíu á morgun. Kristrún Ríkey Ólafsdóttir kemur inn í stað Ástu Júlíu Grímsdóttur. Fyrir 58 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál 30 milljóna króna verktakagreiðslur til samlagsfélags eiginmanns heilbrigðisráðherra Miklar deilur hafa geisað á Sjúkrahúsinu á Akureyri út af verktakasamningum við lækna og uppsögn á þeim. Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur dregist inn í umræðuna persónulega vegna þess að eiginmaður hennar gerði slíkan samning við sjúkrahúsið. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Kona handtekin grunuð um að hafa reynt að drepa Rihönnu Kona skaut tíu skotum að heimili tónlistarkonunnar Rihönnu í Beverly Hills þar sem hún var ásamt A$AP Rocky og börnum þeirra. Engan sakaði en ein kúla lenti á húsbíl í innkeyrslu. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Andlát Búist við fjölmenni við útför Davíðs Oddssonar Útför Davíðs Oddssonar fyrrverandi forsætisráðherra fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 13. mars. Athöfnin er opin almenningi á meðan húsrúm leyfir en bein sjónvarpsútsending verður frá útförinni á RÚV. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Fundar með verklýðsforystunni á fimmtudaginn Fjármálaráðherra hefur fundað með aðilum vinnumarkaðarins undanfarið og segir markmiðið að fara í samstilltar aðgerðir til að sporna við verðbólgu. Verkalýðsforystan á fund með þremur ráðherrum ríkisstjórnarinnar á fimmtudaginn. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Þorgerður á leið til Washington að funda með ráðamönnum Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fer til Washington DC í Bandaríkjunum í dag til að funda um tvíhliða samstarf ríkjanna og stöðu alþjóðamála. Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að Þorgerður komi til með að funda með Christopher Landau varautanríkisráðherra Bandaríkjanna í utanríkisráðuneytinu, Elbridge Colby aðstoðarvarnarmálaráðherra í varnarmálaráðuneytinu, og Jeff Goettman, varautanríkisviðskiptafulltrúa Bandaríkjanna. Þá mun hún hitta þingmenn öldungadeildar Bandaríkjaþings. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið ESB skrifar undir varnarsamninga við Ísland, Ástralíu og Gana Utanríkismálastjóri Evrópusambandsins segir að varnarsamningar við Ástralíu, Ísland og Gana verði undirritaðir á allra næstu dögum. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Óhugnanlegar lýsingar á Edition-málinu í farbannsúrskurði Franska konan, sem er grunuð um að hafa stungið bæði eiginmann sinn og dóttur á Edition-hótelinu síðasta sumar, lýsti sjálfri sér sem skrímsli í fyrstu skýrslutöku sem lögregla tók af henni. Hún sagði manninn sinn hafa ákveðið bæði stund og stað. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Samfélag Mikilvægt fyrir umræðuhefðina að fólk leyfi sér að vera ósammála Hætt er við skautun í kringum tvíkosta atkvæðagreiðslur eins og þeirri sem til stendur að halda í haust um áframhaldandi aðildarviðræður að ESB, að sögn prófessors í stjórnmálafræði. Mikilvægt sé að fólk með ólíkar skoðanir geti ræðst við. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Rekja stórbruna til hleðslutækis fyrir lyftara Lögreglan telur líklegast að eldurinn sem kviknaði í vöruskemmu í Gufunesi í janúar hafi kviknað út frá hleðslutæki fyrir lyftara. Engin merki fundust um íkveikju eða gáleysi með eldhvetjandi efni. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Snorri hefur samúð með ráðherra Ólíklegt er að það takist að klára umræðu um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við ESB í dag. Þingmenn stjórnarandstöðunnar gera fjarveru forsætisráðherra ítrekað að umræðunefni. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Hækkandi olíuverð geti kynt undir verðbólgu Fjármálaráðherra gerir ráð fyrir að hátt olíuverð á heimsvísu gæti aukið verðbólgu hér á landi. Mögulega komi það til með að hafa áhrif á stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans í næstu viku. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Hlaut sex mánaða dóm fyrir smygl Brynjólfur Þór Guðmundsson Héraðsdómur Reykjaness dæmdi erlendan karlmann í dag til sex mánaða fangelsisvistar fyrir fíkniefnasmygl. Maðurinn var staðinn að smyglinu þegar hann kom til Íslands með flugi frá Portúgal. Hann var með 386 grömm af kókaíni á sér. Maðurinn játaði sök þegar ákæra gegn honum var þingfest. Hann sagðist hafa tekið að sér að flytja fíkniefnin hingað til lands gegn greiðslu. Maðurinn var handtekinn á Keflavíkurflugvelli 6. febrúar. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Formúla 1 Nýtt Formúlu 1 tímabil hafið Um helgina hófst nýtt tímabil í Formúlu 1 kappakstrinum í Ástralíu. Miklar breytingar hafa verið gerðar á bílum og nýtt lið mætt til leiks. Bragi Þórðarson og Pétur Jóhann Sigfússon spáðu í spilin á Sportrásinni á Rás 2. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Hvers vegna eru bestu liðin svona miklu betri en næstbestu liðin? Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta hóf leik í undankeppni heimsmeistaramótsins í síðustu viku. Andstæðingarnir voru heimsmeistararnir og Evrópumeistararnir. Adda Baldursdóttir og Albert Ingason rýndu í leikina og stöðuna á Sportrásinni á Rás 2. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Ólympíumót fatlaðra Arna datt í lokabeygjunni — „Ég var að reyna að vera svolítið aggressív“ Arna Sigríður Albertsdóttir datt í lokabeygjunni í sprettgöngunni sem hún keppti í á Vetrarólympíumótinu í morgun. Það hafði mikil áhrif á tímann hennar en hún varð í 19. sæti af 19 keppendum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Fundar með úkraínskum lækni sem vinnur við þjónustustörf Forstjóri Landspítala segir að fréttir af úkraínskum lækni, sem fær ekki vinnu á Íslandi í samræmi við menntun, bendi til að nauðsynlegt sé að bæta ferlið við móttöku erlends heilbrigðisstarfsfólks. Hann hefur boðað lækninn á fund. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Orkumál Nýir skattar á orkumannvirki gætu lent á almennum notendum Nýir fasteignaskattar á orkumannvirki gætu hækkað raforkuverð að mati nokkurra orkufyrirtækja. Stóriðjan er varin með langtímasamningum og í fyrstu gæti hækkunin lent á almenningi og smærri fyrirtækjum. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Hlutabréfaverð í Icelandair rýkur upp Brynjólfur Þór Guðmundsson Verðmæti hlutabréfa í Icelandair hefur hækkað um tæp fimmtán prósent í morgun. Fram að því hafði verð þeirra lækkað jafnt og þétt síðustu daga, eftir að stríð hófst milli Bandaríkjanna og Ísraels annars vegar og Írans hins vegar. Olíuverð hækkaði mjög á heimsmörkuðum eftir það. Olíuverð hefur lækkað mikið í morgun eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær að stríðið við Íran myndi ekki vara lengi enn. Gengi hlutabréfa í Icelandair stendur í 0,81 þegar þetta er skrifað og hefur ekki verið svo hátt í mánuð. Lægst fór það í 0,70 á föstudag. Þotur Icelandair á Akureyrarflugvelli á dögunum. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Öskudagar U2 U2 sendi öllum að óvörum frá sér 6 laga plötu á öskudag sem heitir Days of Ash og þar sem þeir syngja um strið og frið. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Vilja að Hringvegurinn nái inn á Vestfirði Vestfirðir verða ekki lengur eini landshlutinn sem Hringvegurinn nær ekki til ef tillögur starfshóps á vegum innviðaráðherra ná fram að ganga. Hópurinn vill að Djúpvegur og Vestfjarðavegur verði hluti Hringvegarins. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ekki farið fram á gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn á kynferðisbroti á Akureyri Lögreglan á Norðurlandi eystra fór ekki fram á gæsluvarðhald yfir þeim sem hafa stöðu sakbornings í tengslum við rannsókn á kynferðisbroti á Akureyri um helgina. Yfirmaður rannsóknardeildar segir þeim hafa verið sleppt að lokinni skýrslutöku. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Storytel braut ekki af sér með Sönnum íslenskum sakamálum Dómari sýknaði hljóðbókaútgáfu af fimm milljóna kröfu kvikmyndaframleiðanda vegna útgáfu þátta undir heitinu Sönn íslensk sakamál. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Klifur Í kvöld: Íslandsmótið í klifri Íslandsmeistaramótið í grjótglímu fer fram í íþróttamiðstöð Bjarkar í Hafnafirði í dag. Sýnt verður beint frá keppninni á RÚV 2. Bein útsending frá Íslandsmeistaramóti kvenna hefst klukkan 17:50 og klukkan 20:00 er komið að körlunum. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Ferðave