Útflutningur frá Kína jókst um meira en 20% á fyrstu tveimur mánuðum ársins samkvæmt opinberum tölum. Á vef BBC segir að útflutningurinn hafi verið um þrefalt meiri en hagfræðingar gerðu ráð fyrir. Kínversk stjórnvöld greina frá aukningu örfáum vikum fyrir heimsókn Donald Trumps sem heimsækir Kína í byrjun apríl til að funda með Xi Jinping. Aukningin var að stórum hluta leidd af aukinni eftirspurn eftir raftækjum en útflutningur á kínverskum landbúnaðarvörum jókst einnig. Viðskipti við Evrópu jukust um 27,8% á meðan útflutningur til nágrannalanda eins og Taílands, Singapúr og Filippseyja jókst um 30%. Sjá einnig Kínverjar sætta sig við hægari hagvöxt Útflutningur til Bandaríkjanna dróst hins vegar saman um 10%, meðal annars vegna tollastríðs Donald Trumps. Kínversk stjórnvöld settu í síðustu viku fram hagvaxtarmarkmið um 5% fyrir árið 2026 á árlegum fundi leiðtoga Kommúnistaflokksins. Markmið stjórnvalda fyrir kínverska hagkerfið hafa ekki verið lægri síðan 1991 en raunhagvöxtur hefur verið í kringum 5% undanfarin þrjú ár.