Úrelt gögn urðu til þess að Bandaríkin sprengdu stúlknaskóla í Íran í lok febrúar samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðu rannsóknar Bandaríkjahers. Minnst 175 voru drepin, meirihlutinn nemendur í skólanum. New York Times fjallar um niðurstöðurnar sem eru aðeins til bráðabirgða og ekki opinberar enn. Samkvæmt þeim studdist Bandaríkjaher við úrelt gögn við loftárásir á borgina Minab 28. febrúar. Shajerah Tayyebeh-stúlknaskólinn stóð við byggingar íranska hersins og gervihnattamyndir sýna að skólinn hafði verið girtur af í að minnsta kosti níu ár - en samkvæmt úreltu gögnunum var hann hluti af bækistöðvum hersins. Írönsk stjórnvöld segja 175 hafa verið drepin í árásinni, að mestu nemendur í skólanum sem voru stúlkur á aldrinum 7-12 ára. Mörgum spurningum enn ósvarað Heimildarmenn New York Times segja mörgum spurningum enn ósvarað, til dæmis hvernig það kom til og fór alla leið að úreltar upplýsingar voru notaðar þegar skotmörk hersins voru ákveðin. Rannsóknin hefur einnig staðfest, sem kemur fáum á óvart, að Bandaríkin bera vissulega ábyrgð á árásinni. Viku eftir árásina sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti að líklega væri árásin Írönum sjálfum að kenna. „Eins og þið vitið eru Íranir afskaplega ónákvæmir með hergögnin sín,“ sagði Trump. Bandaríkjaher hefur málið til rannsóknar en hefur ekki tekið undir orð forsetans. En greiningar á myndum og myndskeiðum af árásinni benda frekar til þess að Bandaríkin séu ábyrg. Guardian tók saman í gær það sem vitað var þá um árásina. Staðsetning skólans Skólinn lá að byggingu sem hýsti herbúðir íranska byltingarvarðarins. Gervihnattamyndir sýna að skólinn hafi þó verið girtur af í að minnsta kosti níu ár. Á þeim sést einnig að skólinn bar þess merki að vera menntastofnun. Litríkar myndir á veggjum og íþróttavellir sjást á myndunum og ekkert bendir til þess að skólinn sjálfur hafi verið notaður í hernaðarlegum tilgangi - en staðsetningin geri það að verkum að svæðið sé líklegt skotmark Bandaríkjanna og Ísrael. Greining myndskeiða Fjöldinn allur af myndskeiðum birtist á samfélagsmiðlum strax eftir árásina. Guardian hefur staðfest að sum þeirra sýni greinilega að þetta var sami skólinn með litríku myndirnar á veggjum. Eitt þeirra sýnir rústir skólans og svo er myndavélinni snúið þar sem þykkur reykur sést stíga upp frá bækistöðvum hersins. Þetta myndband var ein af fyrstu vísbendingunum um að sprengjan sem lenti á skólanum hefði verið ein af mörgum sem áttu að beinast að hernum. Gervitunglamyndir Miðvikudaginn 4. mars voru fyrstu gervitunglamyndirnar af afleiðingum árásanna birtar. Þar sést eyðilagður skólinn ásamt fjórum öðrum byggingum sem tilheyra hernum og eru einnig eyðilagðar. Tomahawk-myndskeiðið Á sunnudag birti íranska ríkisfréttastofan Mehr myndband af eldflaug sem lenti í Minab. Rannsókn Bellingcat á myndskeiðinu leiddi í ljós að flaugin hitti lóðina við hliðina á skólanum og sérfræðingar í hergögnum segja eldflaugina vera bandaríska Tomahawk, sem bendi til þess að þetta sé árás Bandaríkjanna þar sem ekki sé vitað til þess að Ísrael eigi slíkar flaugar.
A U.S. military airstrike on an Iranian military compound resulted in catastrophic collateral damage due to the use of outdated intelligence data, which incorrectly identified an adjacent girls' school as part of the military facility. The strike killed at least 175 people, predominantly students. An internal U.S. military investigation has confirmed responsibility for the attack, though many questions remain regarding how the obsolete targeting information was used in the strike planning process.