200 mílur | mbl | 11.3.2026 | 23:30 „Þetta er sukk og spilling“ Eggert Skúlason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Dagmál Fjarsambandið getur oft verið krefjandi 21 þúsund atkvæði í súginn „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ Segir Davíð ekki hafa notið sannmælis „Svo var mér sagt upp í gegnum símann“ » Fleiri tengdar fréttir „Ég hef gagnrýnt þetta lengi. Sérstaklega strandveiðina og byggðakvótann og þessa sporslukvóta sem eru 5,3 prósent. Fólk kannski gerir sér ekki grein fyrir því hvað er hér á ferðinni. Þetta er kvóti sem upphaflega tilheyrði stóra flotanum, aflamarksflotanum sem hefur verið tekið af þeim og sett í pólitískan farveg og úthlutanir. Vegna þess að það eigi að vera bjarga einhverjum byggðarlögum og sjávarbyggðum og svo framvegis. Þetta er allt á fölskum forsendum gert,“ segir Stefán Þórarinsson gestur Dagmála Morgunblaðsins í dag. Stefán þekkir vel til kerfisins og fyrstu sjö árin sem kerfið var við líði var hann sérstakur ráðgjafi Byggðastofnunar og sá um að úthluta þessum kvóta. Hann segir kerfið í dag vera beinlínis pólitíska beitu og gefur því einkunnina „sukk og spilling.“ „Ef að veiðiheimildirnar í kringum Ísland eru eign þjóðarinnar þá er það ekkert einhverjir í sjávarbyggð eða einhverjir grásleppusjómenn eða eitthvað annað sem hafa einhver forréttindi að þessu. Það á að vera jafnt fyrir alla þjóðina með þeim hætti að þeir sem eru í þessu þurfa að vera í þessu þannig að afraksturinn gagnist allri þjóðinni,“ segir Stefán. Hann fer yfir hversu mikil verðmæti hér eru á ferðinni. Um er að ræða 27 þúsund tonn af aflaheimildum. Það lætur nærri að vera 24 þúsund þorskígildistonn. En aðrar tegundir eru oft reiknaðar yfir þorskinn. Skiptingin er þannig að 18 þúsund tonn eru þorskur og tíu þúsund tonn ýsa, ufsi og annar meðafli. „Þessu er úthlutað á hverju ári til tiltölulega fárra einstaklinga. Ef við segjum að þorskígildiskílóið færi á 550 krónur. Við skulum bara gefa okkur það sem viðmiðum á markaði. Þá eru þetta 15 milljarðar. Verðmæti sem þetta gæti skapað. Þetta er úthlutað til einhverra 700 strandveiðimanna og svo nokkur hundruð annarra. Kannski 1.100 eða 1.200 manns sem fá þetta.“ Stefán bendir á að kerfið hafi verið líði í þrjátíu ár og því séu þetta um 450 milljarðar sem hafi „lullað svona frá okkur“ á þessum tíma. Þá er hann einvörðungu að margfalda árafjölda með þessari upphæð og ekki að núvirða þær fjárhæðir. „Ef ég síðan tæki þennan kvóta, þessi 27 þúsund tonn og gæfi mér það að þetta myndi kosta í varanlegri sölu og það er bara ímyndað verð hjá mér, sex milljónir. Þá eru þetta 142-3 milljarðar, sem þessi kvóti er virði. Það er eins og einn og hálfur Íslandsbanki. Það er eins og hækkun á fjárlögunum var milli ára.“ Hvað finnst þér um þetta? „Það er búið að stjórnmálavæða þetta. Þetta eru auðvitað svik við þjóðina. Þetta eru svik við þjóðina að vera að rétta einhverju fólki í nafni byggðastefnu og eitthvað. Það er ekki eitt einasta dæmi til um það að þetta hafi breytt einu eða neinu um byggðaþróun á Íslandi. Ég sjálfur fylgdi fyrstu sjö árunum í þessu og var ráðgjafi Byggðastofnunar í þessu og þá voru þetta bara 11 byggðarlög. Eftir nákvæma og góða greiningu Byggðastofnunar á því hverjir höfðu raunverulega orðið fyrir einhverjum skakkaföllum. Ég sá strax þegar ég var að vinna við þetta að þetta var óttalegt húmbúkk. Ég var þó að reyna að vinna þetta þannig að það væri einhver ábati fyrir byggðarlögin. Það er löngu farið í burtu. Nú eru þetta orðin á fimmta tug byggðarlaga sem eru að fá þetta,“ upplýsir Stefán. Hann fór í gegnum umsagnir þeirra sveitarstjórna sem sóttu um og þar segir hann að margar útgáfur hafi mátt sjá. Sum vildu ekki þurfa að sæta því að vinnsluskylda fylgdi byggðakvótanum og jafnvel voru dæmi um að óskað var eftir því að kvaðir um löndunarskyldu yrðu líka felldar i burtu. Svo voru óskir um mótframlag og mörg eiga að sögn Stefáns eftir fyrningar frá því í fyrra því þau veiddu ekki byggðakvótann. Fleira kemur til og þannig er verið að greiða bætur fyrir skelveiðar sem lögðust af. Stefán segir það undarlegt því engar slíka bætur hafi komið til uppsjávarflota þegar loðnubrestur varð. „Þetta er allt þvílíkt húmbúkk. En þeir sem hafa verið að halda þessu uppi og bjóða þetta fram það eru auðvitað stjórnmálamenn sem reyna að stýra þessu til hópa sem þeir halda að kjósi sig. Þannig að þetta er orðið að atkvæðabeitu. Þetta er atkvæðabeita fyrir örfáa aðila en kostar þessa formúu. Svo er annað. Þessi kvóti er ekkert að greiða það sama og stóra útgerðin í gjöld til þjóðarinnar.“ Stefán segir að strandveiðiflotinn hafi greitt um 120 milljónir á síðasta fiskveiðiári en hefðu átt að greiða þrjú hundruð milljónir til að vera á pari við það sem stóra útgerðin greiðir. Svo við einföldum þetta mjög. Ertu að segja að þetta kerfi eins og það er orðið í dag, sé bara nakin pólitísk spilling? „Já. Þetta er sukk og spilling,“ svarar Stefán. Eftir að þættinum lauk var Stefán spurður hvað hann teldi að ætti að gera við þessi 5,3 prósent. Hann taldir eðlilegt að stóru útgerðinni yrði gert að kaupa þennan kvóta og fengi hún einhver ár til greiða þá ríflega 140 milljarða sem verðið gæti verið. Þarna er matarhola sem einhver kynni að vilja skoða. Áskrifendur Morgunblaðsins geta horft á þáttinn í heild sinni með því að smella á linkinn hér að neðan. Klúðruðu gullnu tækifæri Tengdar fréttir Dagmál Fjarsambandið getur oft verið krefjandi 21 þúsund atkvæði í súginn „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ Segir Davíð ekki hafa notið sannmælis „Svo var mér sagt upp í gegnum símann“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar „Komið með peninginn og ekkert röfl“ Enn vex Wisefish í Kanada Helgafellið í viðgerð Útflutningur ógnar góðu orðspori Útflutningsverðmæti 30 milljarðar í febrúar Fékk nótina í skrúfuna Rúm sex þúsund tonn af hrognaloðnu „Það er fiskur úti um allt núna“ Fékk nótina í skrúfuna Útflutningur ógnar góðu orðspori Helgafellið í viðgerð Enn vex Wisefish í Kanada 56% síldarafla úthlutað til þriggja útgerða Rúm sex þúsund tonn af hrognaloðnu Farþegamiðstöðin komin með nafn Fisk rekur á land á Stokkseyri „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ Útflutningsverðmæti 30 milljarðar í febrúar Fisk rekur á land á Stokkseyri Farþegamiðstöðin komin með nafn Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Fékk nótina í skrúfuna Helgafellið vélarvana og dregið til hafnar Verðmætur túr hjá Sólbergi „Það er fiskur úti um allt núna“ Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ Myndir: Loðnuveiðar við Snæfellsnes Fleira áhugavert Tæki ekki langan tíma að ljúka viðræðum Erfið akstursskilyrði víða á heiðum Ferðamenn lentu á kafi í vatni Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 11.3.26 699,73 kr/kg Þorskur, slægður 11.3.26 719,20 kr/kg Ýsa, óslægð 11.3.26 380,84 kr/kg Ýsa, slægð 11.3.26 427,94 kr/kg Ufsi, óslægður 11.3.26 370,82 kr/kg Ufsi, slægður 11.3.26 463,13 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 11.3.26 317,00 kr/kg Gullkarfi 11.3.26 353,28 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 11.3.26 Hafnarey SU 706 Línutrekt Þorskur 13.160 kg Ýsa 1.284 kg Langa 61 kg Steinbítur 54 kg Keila 48 kg Hlýri 4 kg Samtals 14.611 kg 11.3.26 Þrasi VE 20 Handfæri Þorskur 1.354 kg Ufsi 509 kg Ýsa 16 kg Samtals 1.879 kg 11.3.26 Sædís AK 121 Handfæri Þorskur 2.819 kg Samtals 2.819 kg 11.3.26 Adda VE 282 Línutrekt Langa 1.289 kg Ýsa 678 kg Þorskur 532 kg Steinbítur 162 kg Keila 140 kg Samtals 2.801 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar „Komið með peninginn og ekkert röfl“ Enn vex Wisefish í Kanada Helgafellið í viðgerð Útflutningur ógnar góðu orðspori Útflutningsverðmæti 30 milljarðar í febrúar Fékk nótina í skrúfuna Rúm sex þúsund tonn af hrognaloðnu „Það er fiskur úti um allt núna“ Fékk nótina í skrúfuna Útflutningur ógnar góðu orðspori Helgafellið í viðgerð Enn vex Wisefish í Kanada 56% síldarafla úthlutað til þriggja útgerða Rúm sex þúsund tonn af hrognaloðnu Farþegamiðstöðin komin með nafn Fisk rekur á land á Stokkseyri „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ Útflutningsverðmæti 30 milljarðar í febrúar Fisk rekur á land á Stokkseyri Farþegamiðstöðin komin með nafn Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Fékk nótina í skrúfuna Helgafellið vélarvana og dregið til hafnar Verðmætur túr hjá Sólbergi „Það er fiskur úti um allt núna“ Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ Myndir: Loðnuveiðar við Snæfellsnes Fleira áhugavert Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Drónar féllu til jarðar skammt frá Dúbaí-flugvelli Tæki ekki langan tíma að ljúka viðræðum Dómar Landsréttar í hryðjuverkamálinu ómerktir Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 11.3.26 699,73 kr/kg Þorskur, slægður 11.3.26 719,20 kr/kg Ýsa, óslægð 11.3.26 380,84 kr/kg Ýsa, slægð 11.3.26 427,94 kr/kg Ufsi, óslægður 11.3.26 370,82 kr/kg Ufsi, slægður 11.3.26 463,13 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 11.3.26 317,00 kr/kg Gullkarfi 11.3.26 353,28 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 11.3.26 Hafnarey SU 706 Línutrekt Þorskur 13.160 kg Ýsa 1.284 kg Langa 61 kg Steinbítur 54 kg Keila 48 kg Hlýri 4 kg Samtals 14.611 kg 11.3.26 Þrasi VE 20 Handfæri Þorskur 1.354 kg Ufsi 509 kg Ýsa 16 kg Samtals 1.879 kg 11.3.26 Sædís AK 121 Handfæri Þorskur 2.819 kg Samtals 2.819 kg 11.3.26 Adda VE 282 Línutrekt Langa 1.289 kg Ýsa 678 kg Þorskur 532 kg Steinbítur 162 kg Keila 140 kg Samtals 2.801 kg Skoða allar landanir »