Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Skógarbjörn að leik eftir vetrardvala

Read Full Article →

Einstakt myndskeið náðist af skógarbirni sem var nývaknaður úr vetrardvala í sveitarfélaginu Tartu í Eistlandi í vikunni. Birnir vakna yfirleitt úr vetrardvala á tímabilinu mars–apríl. Frjálsu félagamtökin LEIA voru að leita að týndri manneskju með dróna og sáu fyrir tilviljun þegar björninn kom inn í ramma og mynduðu hann þar sem hann lék sér og velti sér um í snjónum. Um þúsund birnir eru taldir vera í skógum Eistlands, sem er meiri fjöldi en nokkurn tímann áður. Vísindamenn telja að breyttar áherslur í landbúnaði eigi sinn þátt í fjölgun bjarnanna. Maísæktun hefur aukist, en skógarbirnir eru sagðir sólgnari í maís en hafra, sem áður voru algengir í ræktun. Birnirnir sækja á maísakrana og ná upp góðum fitubirgðum áður en þeir leggjast í vetrardvala. Þetta mikla fæðuframboð eykur hreysti þeirra og birnur koma fleiri húnum á legg. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði lék björninn á als oddi, eflaust spenntur að gæða sér á einhverju matarkyns eftir langan vetrarblundinn. Einstakt myndskeið náðist af skógarbirni sem var nývaknaður úr vetrardvala í Eistlandi í vikunni. Björninn lék á als oddi og virtist úthvíldur eftir vetrardvalann.

Share this article