Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

FA vill ekki að akreinum og bílastæðum verði fækkað

Read Full Article →

Félag atvinnurekenda leggst gegn því að akreinum fyrir bíla verði fækkað á Suðurlandsbraut samhliða því að Borgarlína verði lögð eftir götunni. Það vill líka að bílastæðum við götuna verði fækkað minna en til stendur eða að bæta fyrir slíka fækkun með því að byggja bílastæðahús við nýja Þjóðarhöll í Laugardal. Þetta kemur fram í umsögn félagsins til umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar. Þar segir að Suðurlandsbraut og Múlahverfi séu eitt helsta verslunar- og þjónustusvæði Reykjavíkur með á annað þúsund fyrirtæki, 5.500 starfsmenn hið minnsta og 400 milljarða króna veltu. Félagið lýsir stuðningi við áform um eflingu almenningssamgangna, þar á meðal Borgarlínu, en segir borgina hafa verið of stífa við útfærslu Borgarlínu um Suðurlandsbraut. „Að mati félagsins verða borgaryfirvöld að vera reiðubúin að hlusta á áhyggjur, ábendingar og tillögur atvinnurekenda í borginni ef áform um eflingu almenningssamgangna eiga að ganga eftir og njóta stuðnings.“ Félagið segir að byrjað hafi verið á öfugum enda með því að ráðast í framkvæmdir við Suðurlandsbraut 2027– 2030 þegar ljóst sé að ekki verði af Miklubrautargöngum fyrr en síðar og að vart verði farið í Sæbrautarstokk á sama tíma.

Share this article