Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

16 ára Svíi fékk 16 ára dóm

  • What: A 16-year-old Swedish national was convicted of planning violence between two Danish gangs
  • Impact: Highlights youth involvement in gang-related violence
Read Full Article →

16 ára gamall Svíi var í dag sakfelldur í Kaupmannahöfn fyrir að leggja á ráðin um morð. Kviðdómi í héraðsdómi Kaupmannahafnar þótti sannað að pilturinn hafi tekið þátt í að skipuleggja ýmiss konar ódæði til að skapa úlfúð milli tveggja danskra glæpahópa, Unknown Team og Loyal to Familia . Hann var 15 ára gamall þegar brotin voru framin, en ætlunin var að skjóta menn til bana í Amager-hverfi og Nørrebro, og þá var handsprengja sprengd í sjoppu í Østerbro. Engan sakaði þó. Harðsvíraður glæpamaður inni við beinið Í frétt DR, danska ríkisútvarpsins, er haft eftir saksóknara að undir barnslegu yfirbragði leyndist harðvíraður glæpamaður. Pilturinn ólst upp í Svíþjóð en bjó á Alicante á Spáni þar sem hann stundaði iðju sína undir dulnefnunum Mr. Killer og The Godfather . Hann var handtekinn þar og færður til heimalands síns þar sem hann var í fyrra sakfelldur fyrir aðild að tveimur banatilræðum og fjárkúgun og dæmdur í tveggja ára afplánun í ungmennafangelsi. Snökti en vill áfrýja Pilturinn, sem var tárvotur og snökti þegar hann var leiddur úr dómsal í járnum, sagðist ætla að áfrýja. Skömmu áður en réttarhöldin hófust var hann færður úr afplánunarúrræði fyrir unglinga yfir í fangelsi. Síðustu misseri hefur mikið verið rætt um afskipti barnungra brotamanna í undirheimum Danmerkur. Danskir glæpamenn hafa jafnvel boðið út ofbeldisverk á samfélagsmiðlum sem sænsk ungmenni taka svo að sér. Svo rammt kvað að þessu að stjórnvöld í Danmörku og Svíþjóð tóku höndum saman til að stemma stigu við ástandinu, meðal annars með auknu samstarfi lögreglu og samræmingu refsiramma fyrir hegningarlagabrot.

Share this article