Ráðamenn í Tjörneshreppi hafa ekki enn ákveðið hvað verður gert við tvö hundruð fjörutíu og átta millljónir frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Oddviti segir margt til skoðunar, en helst hefðu þau viljað skila peningunum. Töluvert hefur verið fjallað um fjárhagsvandræði Norðurþings frá því að slökkt var á kísilvinnslu PCC á Bakka. Frá Bakka sést yfir til nágrannanna í Tjörneshreppi, þar sem fimmtíu og þrír voru skráðir til heimilis í upphafi árs. Þar eru fjárhagsvandræðin engin, þvert á móti því þar ræða bæjarbúar hvað eigi að gera við tæplega 250 milljónir króna. Jöfnunarsjóður greiddi sveitarfélögum árlega svokallað fólksfækkunarframlag, þar sem hafði verið fækkun íbúa þrjú ár á undan. Reglunum var nýverið breytt. Oft hafa þessir útreikningar orðið til þess að nokkur sveitarfélög hafa skipt þessari upphæð sín á milli. Svo var þó ekki 2025, þá fór öll upphæðin til Tjörneshrepps. Tjörnesingar ræða um þessar mundir hvað þau eigi að gera við tæplega tvö hundruð og fimmtíu milljóna framlag úr Jöfnunarsjóði. Þau fengu ekki að skila peningunum - og skoða nú til dæmis að leggja reiðstíg um sveitina. Hreppsnefndin afþakkaði upphaflega framlagið og sagði það koma mjög á óvart. Fjárhagsstaða sveitarfélagsins væri sterk, upphæðin væri fáránleg og hefði slæm áhrif á ímynd sveitarinnar, enda teldi þetta um fjórar milljónir á hvern íbúa. Þau máttu aftur á móti ekki skila peningunum, til þess hefði þurft lagabreytingu. Þá var boðað til íbúafundar í félagsheimilinu. „Við sem sagt funduðum með flestum íbúum, sem sáu sér fært að koma. Og niðurstaðan var einfaldlega sú að skoða svona ýmis innviðaverkefni og líka samrekstur sem við höfum verið í með öðrum sveitarfélögum“, segir Aðalsteinn J. Halldórsson, oddviti Tjörneshrepps Þetta fámennasta sveitarfélag landsins hefur ekki verið í viðræðum um sameiningu, hvorki við nágrannana í Norðurþingi né aðra. Oddvitinn segir þetta framlag ekki verða til að breyta neinu þar um, hann telji íbúa sátta við smæðina. Reiðstígur um sveitina endilanga - annað óákveðið Þau stefna að því að taka ákvörðun fyrir fyrsta sumardag, hvað eigi að gera við peningana, eitt er þó komið á blað. „Við erum búin að ákveða að fara og leggja reiðstíg í hreppinn, enda á milli, meðfram strandlengjunni. Það er ekkert rosalega stórt verkefni, en gaman að segja frá því samt.“