- What: Rescue teams evacuated dozens of people stranded on Holtavörðuheiði due to weather.
- Impact: Road closures and emergency response in Iceland.
Björgunarsveitir fluttu á þriðja tug ferðalanga af Holtavörðuheiði í kvöld, sem sátu fastir í bílum sínum vegna veðurs og ófærðar. Fólkið var flest flutt í Reykjaskóla þar sem ferðalangarnir fá gistingu í nótt en flestir bílar þeirra voru skildir eftir á heiðinni, samkvæmt upplýsingum frá Jóni Þór Víglundssyni, upplýsingafulltrúa Landsbjargar. Björgunarsveitir voru boðaðar út norðan og sunnan Holtavörðuheiðar fyrr í kvöld þar sem á milli 20 og 40 voru fastir í bílum sem töldu á annan tug. Jón Þór sagði fyrr um kvöldið að nokkuð hafi verið um að björgunarsveitir hafi farið til aðstoðar ferðalöngum sem fest hafa bíla sína. Á Súðavík hefur björgunarsveitin Kofri farið í nokkur verkefni bæði innan bæjar en líka inni í Ísafjarðardjúpi. Á Klettshálsi voru ferðalangar í að minnsta kosti 2 bílum í vandræðum og fóru Björgunarsveitin Heimamenn frá Reykhólum og Björgunarsveitin Lómfelli á Brjánslæk þeim til aðstoðar. Holtavörðuheiðinni var lokað fyrir um tveimur tímum vegna veðuraðstæðna. Í ábendingu veðurfræðings Vegagerðarinnar er reiknað með að færð spillist frá Snæfellsnesi að Tröllaskaga, en einnig verður hvasst og blint í éljum og skafrenningi á Hellisheiði og í Þrenglsum í nótt. Þá er búist við snörpum vindhviðum undir Eyjafjöllum í nótt og í fyrramálið, en það dregur úr vindi og ofankomu á morgun. Fréttin hefur verið uppfærð eftir að nánari upplýsingar bárust frá Landsbjörg.