Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Holtavörðuheiði lokuð til tíu og víða ófært

Read Full Article →

Afleiðinga hríðarveðursins í gær og í nótt gætir enn víða því fjöldi vega er ófær. Holtavörðuheiði er lokuð og verður svo í það minnsta til tíu, þá koma upplýsingar um hvort vegurinn verði opnaður þá. Vont færi er á heiðinni og þar eru bílar fastir. Ófært er á Bröttubrekku, Fróðárheiði og í Álftafirði. Snjóþekja, hálka eða hálkublettir eru víðar á Vesturlandi. Vegirnir um Þröskulda, Steingrímsfjarðarheiði og Klettsháls eru ófærir. Flateyrarvegur og vegurinn um Súðavíkurhlíð eru lokaðir vegna snjóflóðahættu. Staðan á tveimur síðastnefndu vegunum verður endurmetin klukkan tíu. Ekki voru komnar upplýsingar um færð annars staðar þegar þessi frétt var skrifuð en þær birtast á umferðarvef Veðurstofunnar. Þar er alltaf nýjustu upplýsingar að fá.

Share this article