Áframhaldandi gæsluvarðhalds verður í dag krafist yfir þremur bræðrum sem grunaðir eru um sprengjutilræði við bandaríska sendiráðið í Ósló. Tæknimenn lögreglunnar að störfum við bandaríska sendiráðið.EPA / STIAN LYSBERG SOLUM Bræðurnir voru handteknir á miðvikudag, koma fyrir héraðsdómara í dag og hafa verið ákærðir fyrir hryðjuverk, samkvæmt fréttum norska ríkisútvarpsins NRK. Einn þeirra er sagður þegar hafa viðurkennt að hafa komið sprengjunni fyrir en hinir tveir neita sök. Verði þeir fundnir sekir gæti það kostað þá allt að 21 árs fangelsi. Óslóarlögregla hefur sagt bræðurna norska ríkisborgara sem eiga ættir að rekja til Íraks og eru allir þrír búsettir í Ósló.