Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Framhald vinsælustu Netflix-myndarinnar í smíðum

Read Full Article →

Netflix hefur staðfest að framhald teiknimyndarinnar KPop Demon Hunters sé í vinnslu. Frá því að hún kom út í júní 2025 hefur myndin náð yfir 500 milljónum áhorfa á Netflix og er vinsælasta mynd streymisveitunnar frá upphafi. Vinsældir myndarinnar einskorðast ekki við Netflix en þær EJAE, Audrey Nuna og Rei Ami, sem ljáðu Rumi, Mira og Zoey söngraddir sínar og mynduðu HUNTR/X, urðu fyrsta K-pop stúlknasveitin til að vera með lag á toppi vinsældarlista Bandaríkjanna og var lagið Golden fyrsta K-pop lag sögunnar til að hljóta Grammy verðlaun. Auk þess vann myndin til tveggja Golden Globes verðlauna. Myndin er þá tilnefnd til tveggja Óskarsverðlauna, annars vegar fyrir bestu teiknimynd ársins og hins vegar fyrir besta frumsamda lagið, Golden. Þá var opnað sérstakt K-Pop Demon Hunters svæði í stærsta skemmtigarði Suður-Kóreu og varningur tengdur myndinni seldist fljótt upp um allan heim. Samkvæmt Netflix munu Maggie Kang og Chris Appelhans, leikstjórar myndarinnar, snúa aftur til verksins en framhaldsmyndin verður fyrsta verkefnið sem hluti af samstarfi þeirra við Netflix um gerð teiknimynda. „Ég finn fyrir gífurlegu stolti sem kóreskur kvikmyndagerðamaður að áhrifendur vilji meira af þessari kóresku sögu og þessum kóreskum karakterum,“ hefur Netflix eftir Kang. „Það er svo mikið eftir í þessum heimi sem við höfum byggt upp sem ég er spennt að sýna ykkur. Þetta er bara upphafið,“ segir hún enn fremur. Appelhans tekur í sama streng og segist spenntur fyrir því að skrifa næsta kafla í sögu karakteranna.

Share this article