Hamar er bikarmeistari karla í blaki eftir hitaviðureign gegn Aftureldingu. Hamar vann 3-1 en tvær hrinur fóru í upphækkun. Þetta er fimmti bikarúrslitatitill Hamars en sá fyrsti kom árið 2021. Leikurinn var afar jafn strax frá upphafi og ljóst í hvað stefndi. Staðan var 5-5 eftir fyrstu mínúturnar. Afturelding náði þriggja stiga forskoti, 8-11. Hvergerðingar virkuðu ósáttir með sinn leik á þessum kafla um miðja fyrstu hrinuna. Afturelding komst í 9-15 og náði að verjast smössum Kristjáns gífurlega vel um tíma. Að öðrum ólöstuðum átti Hubert X tilþrif hrinunnar þegar hann gabbaði hávörn Hamars og spilaði upp á Andrés. Afturelding vann hrinuna að lokum 25-20. Hér má sjá tilþrifin og lokakaflann í fyrstu hrinu. Hamar er bikarmeistari karla í blaki í fimmta sinn eftir sigur gegn Aftureldingu, 3-1. Leikurinn var afar jafn en Hamarsmenn höfðu betur á lykilaugnablikum. Upphækkun í annarri Önnur hrina var jöfn en Hamar náði 7-9 forskoti. Þeir höfðu frumkvæðið lengst af í hrinunnar og náðu 11-14 en Afturelding jafnaði metin í 14-14. Staðan var 20-20 fyrir lokakafla hrinunnar og ljót að Hamarsmenn ætluðu sér ekki að lenda í 2-0 holu. Staðan var jöfn 24-24 og fór því í upphækkun. Hamarsmenn unnu hrinuna að lokum 26-28. Þriðja hrinan var ansi jöfn og leiddi Afturelding 14-15. Afar heitt var í Digranesinu í dag, bæði innan sem utan vallar. Afturelding lék vel en Hamarsmenn voru mun sterkari á lokakafla hrinunnar og Hafsteinn Valdimarsson dró vagninn sóknarlega. Hamarsmenn unnu að lokum 20-25 sigur í þriðju lotunni og leiddu 2-1. Allt undir í fjórðu lotu - rautt spjald undir lokin Afturelding byrjaði fjórðu lotuna mun betur og leiddu 6-2 eftir upphafssyrpuna. Hrinan var líkt og hinar afar jöfn og var jafnt, 14-14, um miðbik hennar. Hamar komst í 14-17 en þá tók Tomek nánast yfir leikinn á kafla með tveimur frábærum stigum. Því næst voru þeir búnir að jafna og staðan aftur 17-17. Allt leit út fyrir að bikarinn væri á leið í Hveragerði en þá svaraði Afturelding með góðum kafla. Staðan var 20-21. Hrinan fór í upphækkun og Afturelding komst yfir 26-25 en José Federico Ferrón Martin fékk rautt spjald í fagnaðarlátunum fyrir að sparka boltanum upp í rjáfur. Við það missti Afturelding stigið en endurheimti það svo strax aftur. Gífurlegur hiti í Digranesi Báðars stuðningssveitir mættu ágætlega en Mosfellingar höfðu þó vinninginn yfir Hvergerðinga. Munaði þar um kvennalið Aftureldingar sem mætti til að styðja sína menn. Það má hrósa tónlistarvali Þórs Bærings sem var skífuþeytir dagsins.