Innlent | Morgunblaðið | 15.3.2026 | 21:00 Reynsla úr dómsal skilar sér út á völl Hér hefur Arnar Þór Stefánsson þurft að grípa inn í leik Fram og Stjörnunnar á Íslandsmóti karla í knattspyrnu í fyrra. mbl.is/Karítas Kristján Jónsson [email protected] Setja bókamerki Arnar Þór Stefánsson, hæstaréttarlögmaður og einn eigenda lögmannsstofunnar LEX, er einn þeirra sem sinna dómgæslu á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Vegur hans hefur vaxið í dómgæslunni og verkefnin hafa einnig orðið veigameiri á þeim vettvangi. „Framgangur minn var mun hraðari í lögmennskunni en í dómgæslunni,“ segir Arnar og hlær. Hann er 46 ára en fór að dæma eftir þrítugt. „Ég spyr mig oft að því sjálfur af hverju í ósköpunum ég sé að standa í því að dæma í fótbolta en það gerist sérstaklega ef mér hefur gengið illa. Ég er sjálfur minn harðasti gagnrýnandi og þegar ég geng af velli hef ég yfirleitt þokkalega tilfinningu fyrir því hvernig gekk. Væntanlega á það við um langflesta dómara. Ég er gagnrýninn á sjálfan mig og vil gera betur næst ef ég er ekki sáttur við mína frammistöðu. Ef leikmenn halda að manni sé sama um hvernig gekk þá er það alls ekki þannig. Stundum er mótbyr og þá eru einhverjar ákvarðanir sem maður tekur gagnrýndar. Oft réttilega en ekki alltaf. Þá spyr ég mig stundum af hverju ég sé ekki að njóta lífsins með fjölskyldunni í góðu veðri um hásumar. En á móti kemur að þegar vel gengur, þá er ein besta tilfinning sem ég finn þegar ég geng af velli vitandi að það gekk vel.“ Arnar segir eftirminnilegustu verkefnin til þessa hafa verið bikarúrslitaleik kvenna 2024 og karlaleik Breiðabliks og Vals í fyrra. Þá var Arnar gagnrýndur fyrir að dæma mark af Val en fjölmiðlamenn þurftu að éta hana ofan í sig eftir endursýningar frá öllum hliðum. „Dómarar verða að hafa kjark til að taka erfiðar ákvarðanir. Þær mega vera óvinsælar ef þær eru réttar. Hér á Íslandi er ekki notast við VAR (video assistant referee) og maður fær því bara eitt rennsli til að taka ákvörðun. En við erum auðvitað með aðstoðardómara og fjórða dómara sem gefa sitt álit ef þeir sjá skýrt og greinilega hvað gerðist,“ segir Arnar, sem segir dómgæsluna vera áhugamál. Um leið sé hún líkamsrækt enda dæmir enginn í efri deildum á Íslandi nema standast þrekpróf sem lögð eru fyrir dómara. Mikil orka fer í leikina „Þetta er blanda af áhugamáli og aukavinnu því þetta er jú greitt en ég er ekki að dæma út af tekjunum heldur áhuga. Það kallar á feikilega mikið skipulag að sinna öllu sem fylgir vinnunni og dæma í efstu deild þar sem maður þarf einnig að vera með hausinn rétt skrúfaðan á. Það fer mikil orka í að dæma leik en ég geri greinarmun á því að dæma leik á Íslandsmótinu eða dæma leik á veturna. Það fer minni orka í þá leiki. Um sumarið róast í lögmennskunni en þá eykst orkan í dómgæslunni. Ég reyni að tvinna þetta saman en fann þegar ég var skipaður skiptastjóri Fly Play, og var að dæma um leið, að lífið í heild sinni útheimtir mikla orku. Þetta kallar einnig á sjálfsaga varðandi hreyfingu og mataræði. Þá þarf eiginkonan að standa með manni í þessu og ég er þakklátur fyrir þann stuðning.“ Lögmannsstarfið getur stutt við dómarastarfið að mati Arnars. „Reynsla úr réttarsal getur hjálpað manni í dómgæslunni. Í réttarsal erum við að glíma við mannfólkið eins og það er. Í réttarsal er maður stöðugt að lesa í andstæðinginn, dómara, atvik og fólk. Í boltanum þarf að lesa í aðstæður og lesa leikmenn og þjálfara. Ef ég sé leikmenn sem ekki eru í jafnvægi reyni ég sem dæmi að vera með fyrirbyggjandi dómgæslu með því að róa þá niður. Dómari er eins konar framkvæmdastjóri leiksins og stýrir leiknum. Í mínu starfi er ég einnig í stjórnun og það hjálpar. Auk þess sem öll lífsreynsla og þroski hjálpar dómurum sem dæma í háum gæðaflokki.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Reynsla úr dómsal skilar sér út á völl Orri rosalegur í stórsigri Blómstrandi kvenheilsa! Óttar bjargaði stigi á Ítalíu Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flóðið við Siglufjörð: „Þurfum að vera vel á tánum“ Holtavörðuheiði lokað vegna umferðaslyss Hóta að ráðast á olíuinnviði Bandaríkjanna Vöruflutningabílar illa búnir á þjóðveginum Mest lesið Í gær Í vikunni Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar „Hélt ég væri game over“ Unnið við lúxushótel á ný Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Ólafur Ragnar furðar sig á „óvissudansi“ ESB Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Einn fær rúmar 800 þúsund Segja Rammagerðina fara með rangfærslur Þjóðvegurinn lokaður: Koma upp fjöldahjálparstöð Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Sólveig Anna loksins bænheyrð Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Drukknir menn reikuðu um gólfið Nýjast á mbl.is » Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Reynsla úr dómsal skilar sér út á völl Orri rosalegur í stórsigri Blómstrandi kvenheilsa! Óttar bjargaði stigi á Ítalíu Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Í svaðilför þvert yfir Suðurskautslandið Segja Rammagerðina fara með rangfærslur Holtavörðuheiði lokað vegna umferðaslyss Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Mest lesið Í gær Í vikunni Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar „Hélt ég væri game over“ Unnið við lúxushótel á ný Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Ólafur Ragnar furðar sig á „óvissudansi“ ESB Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Einn fær rúmar 800 þúsund Segja Rammagerðina fara með rangfærslur Þjóðvegurinn lokaður: Koma upp fjöldahjálparstöð Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Sólveig Anna loksins bænheyrð Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Drukknir menn reikuðu um gólfið