Norræna flugfélagið SAS hefur ákveðið að segja upp samstarfssamningi við Icelandair og tekur uppsögnin gildi í lok þessa mánaðar. Félögin hafa átt í samstarfi frá árinu 2010. Samstarfið hefur einkum snúið að samkenndum flugum (e. code share) og gagnkvæmum réttindum fyrir vildarklúbbsfélaga. Þegar samstarfið var kynnt á sínum tíma sagði framkvæmdastjóri hjá SAS að samkomulagið tryggi þægilegri tengingar og hagstæðari fargjöld milli Íslands og Evrópu í gegnum tengimiðstöðvar SAS í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi. Talskona SAS segir við danska flugmiðilinn Checkin að flugfélagið hafi ákveðið að segja upp samningnum þar sem það sé að auka eigin flugumferð milli Kaupmannahafnar og Keflavíkur. Í frétt FF7 er bent á að breytingin fylgi í kjölfar þess að Air France-KLM Group flugsamstæðan eignaðist 60% hlut í SAS. Þá stefni norræna flugfélagið að því að sækja fram í flugi til Norður-Ameríku og auka þar með við samkeppni við Icelandair. Icelandair og SAS munu þó áfram selja miða hvort með öðru og gefa farþegum kost á að innrita farangur alla leið.