- What: Assault and theft reported at a health facility
- Impact: Local community and staff affected
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 15 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Líkamsárás og þjófnaður á heilsugæslustöð Markús Þ. Þórhallsson Líkamsárás var framin á heilbrigðisstofnun í Háaleitishverfi í gærkvöld eða nótt og einnig þjófnaður að því er segir í morgunskeyti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan hafði afskipti af ökumönnum í margskonar ástandi. Birgir Þór Harðarson Einnig var farið ófrjálsri hendi um verslun í Laugaráshverfi. Að öðru leyti virðast verkefni lögreglu einkum hafa hverfst um afskipti af ökumönnum í ýmiss konar ástandi, almennt eftirlit og aðstoð við borgarana. Alls gistu átta fangageymslur í morgun. Fyrir 12 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Kúba Rubio segir ekki standa til að steypa forsetanum Díaz-Canel af stóli — það séu falsfréttir Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að ekki standi til að hvetja Kúbverja til að steypa forseta landsins af stóli. Fréttir þess efnis séu fals og byggðar á upplýsingum blekkingameistara. Forsetinn segir að öllum atlögum verði svarað af festu. Fyrir 30 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Fjölgun nýskráninga bíla ekki rakin til skyndilegrar og aukinnar eftirspurnar heldur vörugjaldshækkunar Markús Þ. Þórhallsson Rúmlega 66% fleiri nýir bílar voru skráðir á götuna fyrstu 10 vikur þessa árs en á sama tíma fyrir ári. Alls voru 2.639 nýir bílar skráðir þessar tíu vikur og ríflega helmingur þeirra í janúar. Alls voru 2.639 nýir bílar skráðir fyrstu tíu vikur ársins og ríflega helmingur þeirra í janúar. Ruv.is / Anton Brink Bílgreinasambandið rekur fjölgunina ekki til skyndilegrar, aukinnar eftirspurnar, heldur fyrst og fremst til þess að fyrir áramót voru margir bílar, einkum bílaleigubílar, tollafgreiddir vegna yfirvofandi hækkunar vörugjalda. Þeir hafi síðan verið skráðir og teknir í notkun í janúarbyrjun. Bílaleigur hafa keypt 64% nýskráðra bíla það sem liðið er árs. Alls hafa 905 tengiltvinnbílar verið skráðir þessar vikur, 779 Hybrid-bílar og 733 hreinir rafbílar. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íran hótar enn harðari árásum eftir drápið á yfirmanni öryggisráðsins Íranar hóta enn harðari árásum á Ísrael og bækistöðvar Bandaríkjanna eftir að yfirmaður öryggisráðs landsins var drepinn í gær. Ísrael muni finna harkalega fyrir reiði Írana. Minnst sex fórust og tugir særðust í loftárásum Ísraelshers á Beirút. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Kúba Díaz-Canel boðar óbugandi andstöðu gegn daglegum hótunum Bandaríkjanna Markús Þ. Þórhallsson Miguel Díaz-Canel Kúbuforseti boðar óbugandi andstöðu gegn næstum daglegum hótunum Bandaríkjanna um aðgerðir gegn eyríkinu. Miguel Díaz-Canel Kúbuforseti segir öllum atlögum verða mætt af festu. EPA / Ernesto Mastrascusa Í yfirlýsingu á X sagði forsetinn að fari allt á versta veg geti landsmenn huggað sig við að öllum atlögum verði svarað af mikilli festu. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist á mánudag trúa að honum veittist sá heiður að „yfirtaka og frelsa Kúbu“ með einhverjum hætti. Djúp efnahagskreppa ríkir á Kúbu og hefur dýpkað enn eftir að Trump setti hafnbann á olíuflutninga þangað. Hann segir Kúbu standa á brauðfótum og kveðst telja sig geta gert þar hvað sem hann lystir. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Grænland Tveir af fjórum þingmönnum Siumut hafa sagt skilið við flokkinn Helmingur þingmanna grænlenska stjórnmálaflokksins Siumut, tveir af fjórum, hefur yfirgefið hann eftir ákvörðun flokksforystunnar að yfirgefa stjórnarsamstarfið. Fyrrverandi utanríkisráðherra og forseti þingsins kvöddu flokkinn í gær. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Mette-Marit krónprinsessu vikið til hliðar sem verndari Samtaka bókasafna Samtök bókasafna í Noregi hafa ákveðið að rjúfa tengsl við krónprinsessuna sem hefur verið verndari þeirra. Hún hafi ekki greint heiðarlega frá tengslum sínum við Jeffrey Epstein. Ósannsögli skapi óvissu og vantraust sem sambandið sætti sig ekki við. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Marokkó úrskurðað sigurvegari á Afríkumótinu vegna alvarlegs brots Senegal í úrslitaleiknum Senegal hefur verið vísað úr Afríkumótinu í fótbolta og svipt meistaratitli sínum vegna alvarlegs brots á reglum Knattspyrnusambands Afríku í úrslitaleik mótsins. Lunginn úr liðinu yfirgaf völlinn í 17 mínútur vegna óánægju með vítaspyrnudóm. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Tveir drepnir í loftárás á Tel Aviv og öflugum sprengjum beitt á eldflaugastöð Tveir voru drepnir í eldflaugaárás á ísraelska stórborg í kvöld. Bandaríkjaher beitti öflugum sprengjum gegn íranskri eldflaugastöð nærri Hormússundi, Ísraelsher hefur gert stórfelldar árásir á Beirút og dróni hæfði bandaríska sendiráðið í Bagdad. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Skotland Dánaraðstoð áfram ólögleg í Skotlandi Guðmundur Atli Hlynsson Meirihluti þingmanna á skoska þinginu í Holryood hafnaði í dag frumvarpi þess efnis að gera dánaraðstoð löglega í landinu. Frumvarpið kvað á um að aldraðir Skotar með banvæna sjúkdóma, sem ekki er talið að eigi meira en hálft ár eftir ólifað, gætu notið aðstoðar við að enda líf sitt. Frumvarpið var fellt með 69 atkvæðum gegn 57 atkvæðum á móti eftir um tveggja klukkustunda umræðu. Frumvarpið var upphaflega kynnt í mars árið 2024. Það var samþykkt eftir fyrstu umræðu í maí í fyrra en þá greiddu 70 atkvæði með því og 56 gegn því. Var það í þriðja sinn sem skoska þingið fjallaði um frumvarp um dánaraðstoð. Skoska þinghúsið er í Holyrood í Edinborg. EPA / MAURITZ ANTIN Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Stefán Þór leiðir Samfylkinguna og félagshyggjufólk í Fjarðabyggð Framboðslisti Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks í Fjarðabyggð var samþykktur í kvöld. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Mögulega nauðsynlegt að hækka stýrivexti til að halda kjarasamningum Ákvörðun peningastefnunefndar bankans verður birt í fyrramálið. Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur telur að mögulega neyðist Seðlabankinn til að hækka stýrivexti til þess að kjarasamningar haldist þann 1. september. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Yfir 120 snjóflóð fallið síðan á fimmtudag Veðurstofu Íslands berast enn fréttir af snjóflóðum sem fallið hafa síðustu daga. Fjöldi þeirra er kominn á annað hundrað. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Hagkvæmara að hjúkrunarheimili þjónusti aldraða en sjúkrahúsin Fjármálaráðherra segir fjármögnun framkvæmdaáætlunar um uppbyggingu hjúkrunarrýma tryggða. Mikilvægt sé að áætlunin gangi eftir svo þjónustan sé ekki veitt í gegnum dýrari leiðir. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti „Mér fannst þetta bara mjög skemmtilegt, ég veit ekki með ykkur“ Sara Rún Hinriksdóttir átti góðan leik þegar Ísland vann Portúgal í undankeppni EM í körfubolta. Þrátt fyrir sigurinn fer Ísland ekki áfram en Sara er bjartsýn á framtíðina. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ísraelar grönduðu háttsettum Írönum í loftárás Guðmundur Atli Hlynsson Öryggisráð Írans hefur staðfest að Ali Larijani, yfirmaður ráðsins, liggi í valnum eftir loftárás frá Ísrael. Ísraelskir fjölmiðlar greindu frá árásinni fyrr í dag. Gholamreza Soleimani, yfirmaður Basij-öryggissveitar íranskra stjórnvalda, var einnig drepinn í árásinni. Samkvæmt AFP-fréttaveitunni er Larijani háttsettasti Íraninn sem hefur verið drepinn í árásum Bandaríkjamanna og Ísraels síðan í febrúar. Öryggisráð Írans segir í tilkynningu að sonur Larijanis og lífverðir hans hafi einnig látið lífið í árásinni. Ali Larijani fór fyrir öryggisráði Írans. EPA / WAEL HAMZEH 17. mars 2026 kl. 20:29ÍÞRÓTTIR Fótbolti Norska ævintýrið á enda eftir fullkomna endurkomu Sporting Norska liðið Bodo/Glimt er dottið út úr Meistaradeild Evrópu í fótbolta á ótrúlegan máta. Liðið leiddi 3-0 gegn Sporting Lisbon eftir fyrri leikinn en mátti þola 5-0 tap í kvöld, eftir framlengingu. 17. mars 2026 kl. 20:15INNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð Blóðug og sár dýr fyrir íslenskan loðfeld Myndefni sem tekið var í þremur minkabúum hér á landi varpar ljósi á aðbúnað dýranna. Myndirnar sýna blóðug og sár dýr, sem sum eru farin að naga sig inn að beini vegna streitu og kvíða. 17. mars 2026 kl. 20:10INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Formaður Eflingar segir launahækkanir ekki vera nóg Mönnun á 1.500 nýjum hjúkrunarrýmum verður áskorun og ráðherra vill hækka laun ummönnunarstétta. Formaður Eflingar segir málið ekki svo einfalt. 17. mars 2026 kl. 19:54ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Yfirmaður öryggissveitar íranskra stjórnvalda ráðinn af dögum Guðmundur Atli Hlynsson Íranski byltingarvörðurinn segir Gholamreza Soleimani hafa verið ráðinn af dögum í árás Ísraela á Íran. Soleimani var yfirmaður Basij, öryggissveitar stjórnvalda í Íran. Ísraelar greindu frá því fyrr í dag að þeir hefðu banað Soleimani í loftárás en Íranski byltingarvörðurinn staðfesti fregnirnar í kvöld. Gholamreza Soleimani. Myndin er frá árinu 2019. AP / Ebrahim Noroozi 17. mars 2026 kl. 19:42INNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Kjartani og Mörtu vikið úr ráðum og nefndum Kjartani Magnússyni og Mörtu Guðjónsdóttur var í kvöld vikið úr ráðum og nefndum á fundi borgarstjórnar að tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. 17. mars 2026 kl. 18:40INNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Kærir úrskurð héraðsdóms um vanhæfi sem skiptastjóri Ragnar Jón Hrólfsson Unnur Lilja Hermannsdóttir, annar tveggja skiptastjóra hjá þrotabúi flugfélagsins Play, hefur kært úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að víkja þyrfti henni úr starfi vegna fjölskyldutengsla. MBL.is greinir frá þessu. Héraðsdómur tók málið fyrir eftir að Birta lífeyrissjóður krafðist þess að Unni yrði vikið sem skiptastjóri. Í úrskurði héraðsdóms segir að Birta telji Unni Lilju vanhæfa til að gegna starfi skiptastjóra þrotabús Play vegna fjölskyldutengsla við lögmannsstofuna BBA Fjeldco og fjárhagslegra hagsmuna sem stofan muni hafa af gjaldþrotaskiptunum. Tómas Magnús Þórhallsson, eiginmaður Unnar Lilju, er einn af eigendum BBA Fjeldco. Unnur Lilj