Nýr Toyota C-HR+ rafbíll verður frumsýndur hér á landi næsta laugardag. Þetta er þriðji meðlimur C-HR fjölskyldunnar hjá Toyota en fyrir eru C-HR Hybrid og C-HR Plug-in Hybrid. C-HR kom fyrst á markað 2016 og vakti strax athygli fyrir djarfa hönnun sem byggir á formum sem samanstanda af kraftalegum sveigjum og skörpum línum. Bíllinn hefur sportlegt útlit og sker sig talsvert úr. Innanrýmið er vel búið og þægilegt. Um er að ræða hreinan rafbíl með 77 kWh rafhlöðu og fæst hann bæði framhjóladrifinn og fjórhjóladrifinn. Með framhjóladrifi er C-HR+ 224 hestöfl og með allt að 600 km drægni. Fjórhjóladrifinn er bíllinn 343 hestöfl og með allt að 505 km drægni. Sú útfærsla bílsins er aðeins 5m2 sekúndur úr kyrrstöðu í hundraðið. Sjá einnig Nettur og kraftmikill Toyota Aygo C-HR+ er því öflugur og sprækur fjölskyldubíll. Hann er með 416 lítra farangursrými og getur dregið 1,5 tonn. C-HR+ kemur í tveimur útfærslum, Active+ og Style. Bíllinn verður frumsýndur á laugardag hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ, á Selfossi og Akureyri frá kl. 12-16.