Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Íslandsbanki setur í loftið nýja vildarþjónustu

Read Full Article →

Íslandsbanki hefur hleypt af stokkunum nýrri vildarþjónustu sem veitir viðskiptavinum bankans betri kjör og aukin fríðindi. Með vildarþjónustunni er viðskiptavinum umbunað fyrir heildstæð bankaviðskipti, á sama tíma og bankinn styður markvisst við sparnað og bætta fjárhagslega heilsu þeirra. Vildarþjónustan byggir á skýru og einföldu kerfi þar sem viðskiptavinir safna stigum fyrir vörur og þjónustu sem þeir nýta hjá bankanum. Eftir því sem stigum fjölgar færast þeir á milli skrefa og fá aðgang að betri kjörum og fríðindum, meðal annars í sparnaði, lánakjörum og annarri bankaþjónustu. Heiti skrefanna eru sótt í íslenska náttúru – Klettur, Fjall, Drangi, Jökull og Tindur. Viðskiptavinir feta sig áfram í kerfinu með því að safna stigum fyrir þær vörur og þjónustur sem þeir nýta hjá bankanum, og ná þannig nýjum toppum. Ýmsar vörur og þjónustur Íslandsbanka telja til stiga í vildarþjónustunni og lögð er áhersla á að viðskiptavinir hafi skýra yfirsýn yfir það í hvaða skrefi þeir eru, hvaða vörur og þjónustur gefa stig og hvernig þeir geta fært sig ofar. Stig fást meðal annars fyrir reglubundin bankaviðskipti, svo sem notkun debet- og kreditkorta, sparnaði í sjóðum, reglulegum framlögum í séreignarsparnað og öðrum sparnaðarleiðum. Þá gefa ákveðin lánaviðskipti og heimilistrygging hjá VÍS einnig stig. Með vildarþjónustunni vill Íslandsbanki einnig dýpka persónulega þjónustu við viðskiptavini sína og munu þeir sem ná efstu skrefum þjónustunnar meðal annars fá sinn eigin tengilið innan bankans. Samhliða Vildarþjónustunni kynnir Íslandsbanki ný húsnæðislán á fljótandi vöxtum sem eru tengdir við stýrivexti Seðlabankans og nýjan sparnaðarreikning, Vildarsparnað, sem ber stighækkandi vexti eftir skrefum í vildarþjónustunni. Vildarþjónustan er nú þegar í boði fyrir alla viðskiptavini 18 ára og eldri og á næstu dögum verður sérstök þjónusta fyrir 13-17 ára einnig aðgengileg í appinu sem er liður í þeirri stefnu Íslandsbanka að einfalda bankaviðskipti, auka gagnsæi og styðja við ábyrg fjármál einstaklinga og heimila. Nánari upplýsingar um vildarþjónustu Íslandsbanka má finna á heimasíðu bankans og í appi Íslandsbanka. „Með vildarþjónustunni viljum við sýna viðskiptavinum okkar raunverulegan ávinning af því að vera í fjölbreyttum viðskiptum við Íslandsbanka. Um leið leggjum við ríka áherslu á að efla fjárhagslega heilsu þeirra, hvetjum til sparnaðar og markmiðasetningar og veitum betri yfirsýn yfir fjármálin,“ segir Ólöf Jónsdóttir, framkvæmdastjóri einstaklingssviðs Íslandsbanka. „Við hjá Íslandsbanka leggjum metnað í að veita framúrskarandi þjónustu og það er því afar gleðilegt að geta boðið upp á þessa heildrænu nálgun í bankaviðskiptum. Með innleiðingu vildarþjónustunnar höfum við jafnframt gert stafrænar lausnir okkar enn betri sem gera viðskiptavinum kleift að taka upplýstar ákvarðanir um fjármál sín,“ segir Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka. Viðskiptavinum umbunað Spurð um hvers vegna Íslandsbanki hafi hleypt nýrri vildarþjónustu af stokkunum segir Ólöf að bankinn vilji einfaldlega að viðskiptavinir fái meira út úr því að vera með fjármálin sín á einum stað og um leið byggja upp traust langtímasamband þar sem viðskiptavininum sé umbunað fyrir að vera í viðskiptum við bankann. „Því meira sem þú nýtir þjónustuna, því meiri verða fríðindin, hvort sem það eru betri kjör, sérsniðin tilboð eða hagstæðari vaxtakjör.“ Hún kveðst líta svo á að Íslandsbanki sé með þessu að styrkja samkeppnisstöðu sína fremur en að bregðast við samkeppni. „Fjármálamarkaðurinn er í mikilli þróun og við erum stöðugt að auka okkar vöru- og þjónustuframboð og þetta er hluti af því. Viðskiptavinir vilja sífellt einfaldari þjónustu, betri yfirsýn og umbun sem tengist raunverulegri notkun og samskiptum við bankann. Við höfum þann styrk að geta boðið breiða fjármálaþjónustu banka, sparnað, lán og nú einnig tryggingar í samstarfi við VÍS, allt á einum stað. Með nýrri vildarþjónustu erum við að nýta þann styrk okkar enn betur og gera hann sýnilegri og aðgengilegri fyrir viðskiptavini.“ Snýst um heildarsamband við viðskiptavini Ólöf segir ákveðinn mun á vildarþjónustu Íslandsbanka og öðrum fríðindakerfum. „Önnur kerfi byggja oft á því að safna punktum fyrir einstök viðskipti eða kaup, en vildarþjónusta Íslandsbanka snýst um heildarsamband við viðskiptavininn. Við erum að umbuna fyrir það að vera með fjármálin á einum stað, sparnað, lán, kort og tryggingar og einnig fyrir virka og ábyrga fjármálahegðun. Viðskiptavinir safna stigum og færast upp um skref þar sem fríðindin aukast, meðal annars í formi betri kjara og hagstæðari vaxta á sparnaði. Skrefin, sem sótt eru í náttúruna og heita Klettur, Fjall, Drangi, Jökull og Tindur, vísa til þess að viðskiptavinir færa sig smám saman upp á við eftir því sem þeir nýta þjónustuna meira. Allt er þetta sýnilegt í appinu, þar sem viðskiptavinurinn sér stöðu sína og hvaða ávinning hann er að fá. Þetta er því heildræn nálgun þar sem markmiðið er að skapa raunverulegt virði fyrir viðskiptavini, ekki bara afslætti heldur betri kjör og meiri yfirsýn.“ Ólöf Jónsdóttir, framkvæmdastjóri einstaklingssviðs Íslandsbanka. © Aðsend mynd (AÐSEND) Aðspurð segir hún vildarkerfið vissa leið til að hafa áhrif á hvernig fólk nýtir sér þjónustu bankans. „Stefna bankans um að efla fjárhagslega heilsu viðskiptavina sinna er leiðarstef í því sem við gerum, þar með talið við þróun á vöruframboði. Við viljum því stuðla að góðum venjum og gera fjármálin skilvirkari og einfaldari. Þannig að já, vildarþjónustan getur haft hvetjandi áhrif á fólk til að nýta ákveðnar vörur og þjónustuleiðir, en markmiðið er fyrst og fremst að skapa raunverulegan ávinning fyrir viðskiptavini.“ Af hverju verður sérstök áhersla á 13–24 ára hópinn? „ Samhliða því að við erum að kynna nýju vildarþjónustuna komum við til með við afmarka betur þennan aldurshóp undir heitinu ISB UNG. Þetta er hópur sem er á þeim stað í lífinu að fjármálahegðun er að mótast. Við viljum styðja við góðar venjur snemma, eins og sparnað og yfirsýn, og umbuna fyrir skynsamlega notkun. Á sama tíma eru þetta viðskiptavinir sem vilja einfaldar, stafrænar lausnir með skýrum ávinningi. Þetta snýst því bæði um að hjálpa þeim að stuðla að góðri fjárhagslegri heilsu til framtíðar og skapa um leið langtímasamband við viðskiptavini.“ Viðskiptavinir sem komast „á toppinn“, þ.e. í Tind, fá að sögn Ólafar mesta ávinninginn. „Það felst meðal annars í bestu kjörum sem í boði eru innan kerfisins, þar á meðal hagstæðari vaxtakjörum á sparnaði, auk afslátta og sérsniðinna fríðinda sem taka mið af þeirra fjármálum. Þeir fá einnig skýrari yfirsýn og þjónustu sem verður persónulegri eftir því sem sambandið dýpkar. Sem dæmi hafa viðskiptavinir aðgang að sérstökum tengilið í bankanum eða þjónustustjóra. Í raun má segja að Tindur sé þar sem heildarsambandið við bankann skilar mestum ávinningi fyrir viðskiptavininn.“ Mismunar ekki viðskiptavinum Hver er munurinn á því að vera efst samanborið við neðar í kerfinu? „Munurinn liggur í kjörum og þjónustustigi. Neðri þrepin tryggja viss grunnfríðindi og aðgengi, en eftir því sem viðskiptavinir færast upp á milli skrefa fá þeir betri kjör og aukin fríðindi. Í efstu skrefum bætist við meiri persónuleg þjónusta, þar á meðal eigin tengiliður og fleira.“ Loks segir Ólöf umrætt vildarkerfi ekki mismuna viðskiptavinum um of, enda hafi allir sama aðgang að kerfinu. „Munurinn liggur í því að þeir sem nýta þjónustuna meira fá meiri ávinning, en grunnþjónustan er áfram sterk og aðgengileg fyrir alla. Við viljum umbuna þeim viðskiptavinum sem sýna okkur hollustu og tryggð, það er ekki bara eðlilegt heldur hefur verið kallað eftir því af hálfu viðskiptavina. Við viljum umbuna þeim sem treysta okkur fyrir sínum fjármálum og vera banki sem skilar þeim raunverulegu virði til baka.“

Share this article