Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Míla sektuð um 200 milljónir

  • What: Míla and Samkeppniseftirlitið reached a settlement over alleged antitrust violations
  • Impact: Regulatory fine of 200 million krónur
Read Full Article →

Míla og Samkeppniseftirlitið hafa gert með sér sátt um sektargreiðslu vegna brota á skilyrðum sem voru sett fyrir sölu fyrirtækisins til franska sjóðastýringarfyrirtækisins Ardian. Í sáttinni er einnig kveðið á um endurskoðun á öðrum skilyrðum vegna breyttra markaðsaðstæðna á mörkuðum fyrir heimataugar og gagnaflutning um þær. Ardian keypti Mílu af Símanum fyrir 73 milljarða króna 2022. Samkeppniseftirlitið setti skilyrði fyrir samrunanum þar sem langtímaheildsölusamningur milli Símans og Mílu var talinn geta útilokað önnur fyrirtæki en Mílu frá því að bjóða Símanum sambærilega innviðaþjónustu. Síminn er stærsti kaupandi slíkrar þjónustu hér á landi. Míla verður að greiða 200 milljóna króna sekt vegna brota á þessum skilyrðum. Rannsókn leiddi í ljós að tíðni og umfang samskipta Mílu og Símans frá október 2023 fram í desember 2024 hefðu verið til þess fallin að takmarka hvata Símans til að kaupa þjónustu af keppinautum Mílu umfram það sem kaupskylda Símans kvað á um. Brotin uppgötvuðust eftir að Míla óskaði eftir því við Samkeppniseftirlitið að skilyrði fyrir kaupum Ardian yrðu endurskoðuð. Sú endurskoðun sneri að heimtaugum og gagnaflutningi um þær. Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að Míla væri enn með sterka stöðu á landsvísu en að keppinautar þess, einkum Ljósleiðarinn, hefðu styrkt mjög stöðu sína á sínum markaðssvæðum, svo sem höfuðborgarsvæðinu, og væru því með fleiri tengingar þar en Míla. Samkeppniseftirlitið samþykkti því að skilyrði um aðgang að kerfum, upplýsingagjöf og bann við samtvinnun og vöndlum ætti bara við þar sem Míla hefur umtalsverðan markaðsstyrk. Að mati eftirlitsins hefðu óbreytt skilyrði verið til þess fallin að hamla samkeppni frekar en að verja hana og efla.

Share this article