Í fyrramálið hefst heimsmeistaramótið í frjálsíþróttum innanhúss í Toruń í Póllandi. Margt af besta frjálsíþróttafólki heims verður á mótinu sem verður sýnt beint á stöðvum RÚV. Þrír Íslendingar verða með, allt kvenkyns hlauparar. Aníta Hinriksdóttir keppir í 1500 metra hlaupi, Christina Alba Marcus Hafliðadóttir í 60 metra hlaupi og og Júlía Kristín Jóhannesdóttir í 60 metra grindahlaupi. Hér má lesa sér betur til um íslensku keppendurna . Mótið klárast á sunnudag og er hverjum degi skipt í morgun- og kvöldlotu. Íslensku keppendurnir dreifast yfir alla dagana, hér eru keppnistímar þeirra (undanúrslit og úrslit skáletruð ef þær komast þangað): Sýnt verður beint frá öllu mótinu á RÚV og RÚV 2. Sigurbjörn Árni Arngrímsson og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson lýsa mótinu. Sigurbjörn Árni segir það óraunhæft að ætlast til þess að Christina Alba komist upp úr undanrásunum en bara vonandi að hún bæti sig. Júlía Kristín gæti komist í undanúrslit með smá heppni þó það sé ekki hægt að krefjast þess af henni. Hann er ánægður að Aníta Hinriksdóttir sé mætt á stórmót á ný: „Það verður ofboðslega gaman að sjá hana aftur á hlaupabrautinni.“ Ísland á þrjá keppendur á HM í frjálsíþróttum innanhúss; Anítu Hinriksdóttur í 1500 m hlaupi annað kvöld, Christinu Ölbu Marcus Hafliðadóttur í 60 m hlaupi á laugardag og Júlíu Kristínu Jóhannesdóttur í 60 m grindahlaupi á sunnudag.