Innlent | mbl | 19.3.2026 | 20:36 Náðu ekki að sinna eftirliti á staðnum vegna álags Birgir Finnsson, starfandi slökkviliðsstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Setja bókamerki Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Segja úrbætur hafa verið gerðar eftir brunann Brýnt að upplýsa hvort öryggi barna sé tryggt Hvað fór úrskeiðis á Stuðlum? Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát Átti að vera búið að loka byggingunni » Fleiri tengdar fréttir Birgir Finnsson, starfandi slökkviliðsstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, gengst við því að slökkviliðið hafi að einhverju leyti brugðist í eftirliti sínu með brunavörnum á meðferðarheimilinu Stuðlum í tvö ár áður en 17 ára piltur lést þar í bruna í október 2024, með því að sinna ekki staðarskoðun. Hann segir slökkviliðið í mörg ár hafa notast við tvenns konar eftirlit. Annars vegar gagnaöflun og hins vegar gagnaöflun og skoðun á staðnum í kjölfarið. Vegna álags í verkefnum voru mörg húsnæði á höfuðborgarsvæðinu hins vegar ekki skoðuð á þessum tíma heldur eingöngu stuðst við gagnaöflun. Stuðlar þar á meðal. Frétt af mbl.is Alvarlegir annmarkar á brunavörnum Með gagnaöflun er kallað eftir staðfestingu frá eigenda og þjónustuaðilum um ákveðin atriði sem snúa að brunavörnum. Meðal annars um að flóttaleiðir séu greiðfærar, rýmingaráætlun til staðar og að húsnæðið sé í samræmi við aðaluppdrætti. Staðfestingu á virkni kerfa frá viðurkenndum þjónustuaðilum, svo sem brunaviðvörunarkerfis og búnaði tengdum því, ásamt neyðarlýsingu. Einnig að handslökkvibúnaður hafi verið yfirfarinn. Samkvæmt reglugerð þurfa þó ákveðin skilyrði að vera uppfyllt svo heimila megi slíkt eftirlit í staðinn fyrir staðarskoðun. Felur það meðal annars í sér að ekki hafi verið gerðar kröfur um úrbætur af hálfu eldvarnareftirlits á síðastliðnum fjórum árum, sem ekki hafi verið brugðist við með fullnægjandi hætti. Þetta skilyrði var ekki uppfyllt á Stuðlum enda var ekki ráðist í nauðsynlegar úrbætur í kjölfar öryggis- og lokaúttektar eftir breytingar árið 2021. Þessu hefur nú verið breytt, að sögn Birgis, og fór slökkviliðið tvisvar í staðarskoðun á Stuðla á síðasta ári, í apríl og í desember. Frétt af mbl.is Átti að vera búið að loka byggingunni Hefðu átt að sinna staðarskoðun Í skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) vegna brunans kemur fram að slökkviliðið hafi ekki sinnt fullnægjandi eftirliti í samræmi við reglugerð um eldvarnir og eldvarnareftirlit. Hefði slökkviliðið átt að sinna áfram árlegum staðarskoðunum þangað til viðeigandi úrbætur voru gerðar. Stuðlar höfðu aldrei fengið útgefið öryggis- og lokaúttektarvottorð á viðbyggingunni sem hýsti neyðarvistun vegna annmarka á brunavörnum. Viðbyggingin var engu að síður tekin í notkun án þess að skilyrði fyrir heimilaðri notkun, samkvæmt lögum, væru uppfyllt. Notkunin var því óheimil og samkvæmt lögum átti byggingarfulltrúi að fyrirskipa lokun. Birgir segir slökkviliðið þó ekki líta svo á að eigandi húsnæðis stuðla, Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir, hafi verið með eigið eftirlit. „Þarna var mikið álag í öðrum málaflokkum og því var meira lagt upp úr því að sem flestir myndu skila inn þessum gögnum í samræmi við eftirlitsaðferð með gagnaöflun sem slökkviliðið var að nota. Og við náðum ekki að skoða öll hús sem að voru á skoðunaráætlun þessi ár.“ Frétt af mbl.is Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát Ekki veittar rangar upplýsingar Þrátt fyrir að slökkviliðinu hafi borist staðfesting frá eiganda hússins um að brunavarnir væru í lagi, er það niðurstaða rannsóknar HMS að alvarlegir annamarkar hafi verið á brunavörnum, virkni þeirra og eftirliti. Sem hafi haft veruleg áhrif á öryggi skjólstæðinga og starfsfólks. Birgir vill þó ekki meina að þeim hafi verið veittar rangar upplýsingar um að brunavarnir væru í lagi. Heldur virðast eigendur og eftirlitsaðilar ekki hafa verið að horfa til sömu hönnunargagna. Brunavarnir hafi verið hannaðar á ákveðinn máta en í eftirlitinu hafi eftirlitsaðilum yfirsést ákveðin atriði. Til að mynda hvort tenging glugga fyrir reyklosun við brunavarnarkerfi hafi verið til staðar. Frétt af mbl.is Hvað fór úrskeiðis á Stuðlum? Viðbrögð eigi ekki að vera hluti af brunavörnum HMS gerir ýmsar úrbótatillögur svo hægt sé að koma í veg fyrir að svona gerist aftur en Birgi finnst vanta eitt atriði sem slökkviliðið hafi tekið til skoðunar áður en skýrslan kom út. Það snýr að brunavörnum sem byggja á réttum viðbrögðum starfsmanna. „Við erum hugsi yfir því að starfsmenn sem starfa á stofnun, að það skuli svona mikil ábyrgð vera lögð á þá varðandi það að brunavarnir virki,“ segir Birgir. Á hann þar meðal annars við að í samræmi við brunahönnun hússins áttu starfsmenn að loka hurðum við rýmingu til að brunahólfun virkaði sem skyldi. Það var hins vegar ekki gert, sem hafði veruleg áhrif á hraða brunaþróunar og dreifingu reyks um rýmið. „Við söknum þess í úrbótatillögum HMS, að það skuli ekki vera komið inn á að það verði leitað frekari leiða til þess að brunavarnir húss byggi ekki á inngripi starfsmanna.“ Líkt og áður sagði hefur verklagi nú verið breytt varðandi eftirlit og hefur slökkviliðið í tvígang sinnt eftirliti með brunavörnum í staðarskoðun frá því bruninn varð. „Síðan hafa verið töluverð samskipti við bæði eiganda og hönnuð og verið að bæta enn frekar og vinna enn frekar í málunum,“ segir Birgir. Frétt af mbl.is Segja úrbætur hafa verið gerðar eftir brunann Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Segja úrbætur hafa verið gerðar eftir brunann Brýnt að upplýsa hvort öryggi barna sé tryggt Hvað fór úrskeiðis á Stuðlum? Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát Átti að vera búið að loka byggingunni » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ísland - Svíþjóð, staðan er 30:33 Íslendingaliðið í undanúrslit ESB setti samruna skorður „Bara einhver delluskýring“ Náðu ekki að sinna eftirliti á staðnum vegna álags Umræðan Tölum íslensku Forræði yfir auðlindum þjóðarinnar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íranir sagðir hafa hæft bandaríska orrustuþotu Söguleg árás Ísraela á Kaspíahafi Vegagerðin mætt með dælubíl Reyna að ná á Vegagerðina vegna vatnselgs Mest lesið Í gær Í vikunni Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Ítrekaður vatnselgur í nýlegum undirgöngum Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Lögreglukona sakfelld í héraði Stórt snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð Grófu skurði til að verja innviði við Reynisfjöru Grunsamlegir tölvupóstar á ferð Sigríður telur að sér vegið Gular viðvaranir á öllu landinu Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Öll merki um að of mikið hafi verið tekið út Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Gular viðvaranir á stórum hluta landsins Seðlabankinn hafi misst tökin Rannsókn lokið og ákæra gefin út í dag Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Borga ekki umferðarsektir Nýjast á mbl.is » Ísland - Svíþjóð, staðan er 30:33 Íslendingaliðið í undanúrslit ESB setti samruna skorður „Bara einhver delluskýring“ Náðu ekki að sinna eftirliti á staðnum vegna álags Umræðan Tölum íslensku Forræði yfir auðlindum þjóðarinnar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fimm ár liðin frá fyrsta gosinu í um 800 ár Reyna að ná á Vegagerðina vegna vatnselgs Segja úrbætur hafa verið gerðar eftir brunann Ítrekaður vatnselgur í nýlegum undirgöngum Mest lesið Í gær Í vikunni Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Ítrekaður vatnselgur í nýlegum undirgöngum Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Lögreglukona sakfelld í héraði Stórt snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð Grófu skurði til að verja innviði við Reynisfjöru Grunsamlegir tölvupóstar á ferð Sigríður telur að sér vegið Gular viðvaranir á öllu landinu Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Öll merki um að of mikið hafi verið tekið út Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Gular viðvaranir á stórum hluta landsins Seðlabankinn hafi misst tökin Rannsókn lokið og ákæra gefin út í dag Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Borga ekki umferðarsektir