Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 26 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Ríkisútvarpið Leiðrétting á frétt Þorgils Jónsson Fréttastofa vill koma á framfæri leiðréttingu vegna fréttar sem flutt var í útvarpsfréttum klukkan sjö í morgun. Þar var fyrir mistök sagt frá því að innanlands- og millilandaflugi hafi verið aflýst í dag. Svo var ekki. Flugáætlun hefur verið svo gott sem samkvæmt áætlun bæði fyrir innanlands- og millilandaflug. Beðist er afsökunar á þessum mistökum og óþægindum sem þau kunna að hafa valdið. Frá Keflavíkurflugvelli. Mynd úr safni. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 32 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bandaríkjaforseti íhugar að draga úr hernaðaraðgerðum gegn Íran Bandaríkjaforseti segist vera að íhuga að draga úr hernaðaraðgerðum gegn Íran. Varnarmálaráðherra Ísraels segir að loftárásir þeirra og Bandaríkjanna gegn Íran eigi eftir að aukast verulega næstu daga. Þrjár vikur eru síðan stríðið hófst. Fyrir 57 mínútumÍÞRÓTTIR Frjálsar Elísabet Rut jafnaði Íslandsmet og bætti mótsmet Elísabet Rut Rúnarsdóttir jafnaði í nótt Íslandsmet Guðrúnar Karítasar Hallgrímsdóttur í sleggjukasti með kasti upp á 71,41 metra. Kastið dugði til sigurs á háskólamóti í Bandaríkjunum og var einnig mótsmet. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Hönnun Fimm mánaða adrenalínkikk fylgdi þátttöku í dönsku raunveruleikasjónvarpi Í vikunni lauk sjöundu þáttaröð Danmarks næste klassiker, þar sem fimm hönnuðir kepptu sín á milli. Dögg Guðmundsdóttir var í hópi þátttakenda í ár og sigraði meðal annars keppni um hönnun hægindastóls fyrir Kastrup-flugvöll. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ísafjarðarbær Vonast til að rafmagn komist á uppúr hádegi Rebekka Líf Ingadóttir Vonast er til að rafmagn verði komið á Ísafjarðardjúpi uppúr hádegi en en rafmagnslaust hefur verið síðan í gærkvöldi. Unnið er að viðgerðum á Hólmavíkurlínu. Þetta segir Elías Jónatansson, orkubússtjóri orkubús Vestfjarða. Rafmagnslaust var á Vestfjörðum í gærkvöldi þegar Mjólkárlínu 1 sló út, sem olli straumleysi um alla Vestfirði. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar Cristina Alba komst ekki áfram í 60 metrunum Helga Margrét Höskuldsdóttir Christina Alba Marcus Hafliðadóttir keppti á sínu fyrsta stórmóti í fullorðinsflokki í morgun þegar hún hljóp í undanrásum 60 metra hlaupsins á HM í frjálsum innanhúss. Christina Alba hljóp í þriðja riðli og kom í mark á 7,55 sekúndum. Þar var hún í sjöunda sæti af sjö keppendum en í heildarlistanum var hún í 48. sæti af 51 keppanda. Besti tími hennar til þessa er 7,42 sekúndur en Íslandsmetið í greininni er 7,35 sekúndur. Christina Alba ásamt Karolínu Maňasová frá Tékklandi Imago Christina Alba var meðal yngstu keppenda í þessari grein á mótinu en hún er fædd 2007. Júlía Kristín Jóhannesdóttir keppir í undanrásum 60 metra grindahlaupsins á morgun. Bein útsending er frá öllum keppnishlutum mótsins. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vesturbyggð Kvarta yfir sambandsleysi á þekktu ofanflóðasvæði Fjarskiptasamband í Vesturbyggð hefur versnað til muna eftir að 2G og 3G sendar voru teknir úr sambandi. Skólabíll keyrir daglega yfir Kleifaheiði með ekkert símasamband. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Fjölmiðlar Rekstur BBC World Service tryggður Breska ríkisstjórnin mun auka fjárveitingar til reksturs BBC World Service, alþjóðlegrar útvarpsstöðvar breska ríkisútvarpsins. Tvísýnt var um framtíð útvarpsstöðvarinnar fyrr á árinu. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Búið að opna Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði Þung færð er víða um land eftir hríðarveðrið síðustu daga. Búið er að opna Holtavörðuheiði en hún var lokuð í nótt. Öxnadalsheiði hefur einnig verið opnuð. Með nýrri lægð fer veður versnandi í kvöld suðaustan- og austanlands. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Mannlíf Hundakallinn Lars Løkke og George Clooney seðlabankanna Veist þú hvaða stjórnmálamaður var áður kallaður George Clooney seðlabankanna? Viltu vita meira um næsta leiðtoga Norður-Kóreu? Vissir þú að Ursula von der Leyen er sjö barna móðir? Þetta og svo margt fleira í Heimskviðum í dag. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Íran Krakkaheimskviður: Hvað er að gerast í Íran? Þann 28. febrúar réðust Ísrael og Bandaríkin á Íran. Síðan þá hafa borist stanslausar fréttir af stríðinu. Í Krakkaheimskviðum helgarinnar voru Íran og atburðir síðustu vikna til umfjöllunar. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Leiklist Finna til ábyrgðar að segja þessar sögur og opna dyrnar Félagarnir Davíð Þór, Unnsteinn Manuel og Jónmundur segja bæði persónulegar og sammannlegar sögur í verkinu Gæðablóð sem sýnt er á stóra sviði Þjóðleikhússins. Þeir hafa skipað sér sess innan leiklistargeirans og hafa plássið til að segja þær. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Íþróttir Beint í dag: Seinni leikurinn við Svía og bikarmót í fimleikum Það er nóg um að vera í beinum útsendingum á RÚV í dag. Áhaldafimleikar og handbolti eru á döfinni. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Millilanda- og innandlandsflug að mestu á áætlun í dag Gular veðurviðvaranir munu flestar falla úr gildi kl. 8, utan Suðausturlands, en gul viðvörun verður áfram í gildi þar til klukkan níu. Nokkrar heiðar eru enn lokaðar en innanlands- og millilandaflug er að mestu leyti á áætlun. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar HM í dag: Christina Alba þreytir frumraun og úrslit í mörgum greinum Annar keppnisdagur HM innanhúss í frjálsíþróttum er í dag. Christina Alba Marcus Hafliðadóttir þreyttir frumraun sína fyrir Ísland á stórmóti og heimsmetið í sjöþraut gæti fallið. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Úkraínumenn skutu yfir 283 drónum á skotmörk í Rússlandi Tveir eru særðir eftir mikla drónaárás Úkraínumanna á skotmörk í Rússlandi í nótt. Drónarnir voru flestir skotnir niður áður en þeir hittu skotmörk sín. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar segja Hormússund lokað árásarþjóðum en opið öðrum Utanríkisráðherra Írans hefur boðið Japönum aðstoð við að sigla um Hormússund. Hann segir sundið aðeins lokað þeim þjóðum sem réðust á Íran, en það sé opið öðrum þjóðum. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar skjóta flugskeytum á herstöð í Indlandshafi Hvorugt tveggja íranskra flugskeyta hæfði bandarísk-breska herstöð í Indlandshafi í nótt. Herstöðin er á eyjaklasa í um 4.000 kílómetra fjarlægð frá Íran. 21. mars 2026 kl. 2:36ERLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Jöklar í Himalaya-fjöllunum bráðna tvöfalt hraðar nú en árið 2000 12% jökla svæðisins hurfu á árunum 1990 til 2020. Hlýnandi veðurfar hefur þau áhrif að jöklarnir ná ekki endurheimt massa síns að vetri og við það verður bráðnun þeirra hraðari. 21. mars 2026 kl. 0:39ERLENDAR FRÉTTIR Suður-Kórea 10 fórust og 59 eru slasaðir eftir mikinn eldsvoða í bílavarahlutaverksmiðju Um 170 manns voru við störf þegar mikill eldsvoði braust út í bílavarahlutaverksmiðju í borginni Daejeon. 21. mars 2026 kl. 0:30ERLENDAR FRÉTTIR Deilur og stríð „Alvarlegasta ógn sögunnar við orkuöryggi heimsins“ Stríð Bandaríkjanna og Ísraels á hendur Íran er mesta ógn við orkuöryggi heimsins á síðari tímum. Þetta segir yfirmaður Alþjóðaorkustofnunarinnar. Stjórnvöld þurfa að stuðla að orkusparnaði og orkuskiptum af krafti, ef ekki á illa að fara. 21. mars 2026 kl. 0:25ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Tímabundin aflétting á refsiaðgerðum gegn sölu og flutningi á olíu frá Íran Brynja Dögg Friðriksdóttir Olíuflutningaskip og flutningaskip sem bíða þess að sigla í gegnum Hormússund, 11. mars 2026. AP / Altaf Qadri Bandaríska fjármálaráðuneytið tilkynnti í gær um tímabundna afléttingu á refsiaðgerðum gegn sölu á olíu frá Íran. Þessi aflétting gerir það kleift að flytja og selja hráolíu og annað eldsneyti sem var komið um borð 20. mars og gildir til 20. apríl. Þetta er sams konar aflétting á refsiaðgerðum gegn flutningi og sölu á rússneskri olíu. Enn er þó bannað að flytja olíu til Kúbu, Norður-Kóreu og svæða sem Rússar hafa hernumið í Úkraínu. 20. mars 2026 kl. 23:27INNLENDAR FRÉTTIR Vestfirðir Rafmagni sló út á Vestfjörðum Rafmagnslaust varð á Vestfjörðum í kvöld. Svæðisstjóri Ísafjarðar hjá Orkubúi Vestfjarða segir slæmt veður hafa valdið straumleysinu. 20. mars 2026 kl. 22:11ERLENDAR FRÉTTIR Íran Segist lifa frá degi til dags og sofa undir sprengjuregni Tæplega fimmtán hundruð almennir borgarar hafa fallið í loftárásum Ísraela og Bandaríkjanna á landið, samkvæmt hjálparsamtökum. Írönsk kona segist lifa frá degi til dags og sofa undir sprengjuregni. 20. mars 2026 kl. 21:04INNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Húðflúrstofur og heilsuræktarstöðvar ekki lengur starfsleyfisskyldar Umhverfisráðherra hefur aflétt starfsleyfisskyldu samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir af 16 flokkum atvinnurekstrar. 20. mars 2026 kl. 20:48ÍÞRÓTTIR Körfubolti Stjarnan lagði ÍA í Bónusdeild karla Einar Örn Jónsson Einn leikur var í 21. og næstsíðustu umferð Bónusdeildar karla í körfubolta í kvöld. Stjarnan tók á móti ÍA, en Skagamenn eru þegar fallnir. Stjarnan berst um 2. sæti deildarinnar við Tindastól, en leik Tindastóls og Álftaness var frestað til morguns vegna veðurs. Stjarnan gekk hreint til verks á heimavelli sínum í kvöld og vann með 113 stigum gegn 102. Stjarnan er með 30 stig eins og Tindastóll og fór Stjarnan upp í annað sæti deildarinnar, að minnsta kosti fram að leik morgundagsins. Lokaumferð deildarinnar er svo á fimmtudag og þá ræðst röð liðanna í úrslitakeppninni endanlega og fallbaráttan verður útkljáð. Stjarnan er í harðri baráttu um sæti í Bónusdeildinni. RÚV / Mummi Lú 20. mars 2026 kl. 20:13INNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Endurskoðun húsnæðislána stærsta kjaramálið Ráðherrar fjármála og félagsmála óttast að kjarasamningar bresti í haust vegna verðbólgu. Fjármálaráðherra segir koma til greina að ríkið komi að samningum, félagsmálaráðherra segir endurskoðun húsnæðislána eitt stærsta kjaramálið. 20. mars 2026 kl. 20:10INNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Sauðburður er hafinn í Fljótshlíð Sauðburður er nú hafinn óven