Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ók mörgum ofurbílum í LA

Read Full Article →

Magnea Björg Jónsdóttir starfar í markaðsdeild bílaumboðsins Heklu. Hún er mikil bílaáhugakona og hefur keyrt marga ofurbíla þar sem hún bjó um tíma í Los Angeles. Þar var hún m.a. í námi og starfaði sem fyrirsæta. „Ég stýri samfélagsmiðlum og viðburðum hjá Heklu. Samhliða því rek ég minn eigin miðil á samfélagsmiðlum og hef áður starfað í sjónvarpi, meðal annars með þáttunum LXS og bílaþáttunum 0 upp í 100 á Stöð 2. Ég elska að ferðast, kynnast nýjum menningarheimum og fólki, og hef mikinn áhuga á bílum. Ég bjó um tíma í Los Angeles, þar sem ég fékk tækifæri til að keyra alls konar glæsikerrur,“ segir hún. Hvenær og hvernig byrjaði bilaáhuginn? „Bílaáhuginn minn byrjaði mjög snemma. Bæði pabbi minn og afi eru miklir bílakarlar, þannig að ég ólst upp í miklu bílaumhverfi og var mikið í kringum bíla frá unga aldri. Ég og pabbi fórum oft saman að taka hringinn á bílasölum og skoða úrvalið, sem mér fannst alltaf jafn spennandi. Ég átti líka endalaust af flottum leikfangabílum og risa bílateppi til að leika mér á – þó að ég hafi líka haft mikinn áhuga á Bratz og Barbie. Pabbi var sérstaklega hrifinn af bílum eins og Jimny, Jeep Wrangler, Land Cruiser og alls konar stórum, gömlum jeppum. Þess vegna hafa bílar alltaf verið stór hluti af lífi mínu. Þegar ég flutti síðan til Los Angeles kviknaði bílaáhuginn enn meira og varð enn stærri hluti af mér. Einhvern veginn virðist ég líka alltaf enda í kringum bíla og allt sem tengist þeim. Núna starfa ég til dæmis hjá bílaumboðinu Heklu og hef verið þar síðustu fjögur árin.“ Magnea við glæsilegan Rolls Royce í Los Angeles sem hún ók þar í borg. © Aðsend mynd (AÐSEND) Hver er uppáhaldsbíllinn sem þú hefur ekið? „Ég hef haft tækifæri til að keyra marga rosalega bíla þótt ég segi sjálf frá. Meðal þeirra eru til dæmis Bugatti Chiron, Rolls-Royce Wraith og Phantom Drophead, Lamborghini Aventador og Huracán, ásamt nokkrum tegundum af Ferrari og McLaren ásamt fleirum rosalegum tryllitækjum, bæði eldri og nýrri. Ef ég þarf samt að velja uppáhaldsbílinn minn úr þessum hópi er það sennilega Lamborghini Huracán eða Rolls-Royce Wraith. Ég einhvern veginn fílaði mig mest í þeim og fannst þeir líka þægilegastir í akstri. Ef við erum hins vegar að tala um rafmagnsbíla myndi ég sennilega nefna Volkswagen ID.-línuna, Audi Q6 eða Skoda Enyaq RS.“ Magnea á sjálf GWM ORA 03 sem hún elskar. © Aðsend mynd (AÐSEND) Uppáhaldsbíllinn sem þú hefur átt? „Þótt ég hafi bullandi áhuga á bílum hef ég samt ekki sjálf átt einhverjar glæsikerrur. Í dag keyri ég þó um á GWM ORA 03 og ég alveg elska þann bíl.“ Hver er eftirminnilegasta bílferðin? „Það er erfitt að velja eina, en einhver minnti mig á þetta um daginn og ég var eiginlega búin að gleyma því. Þetta er samt of „iconic“ til að nefna það ekki. Það var þegar ég var að keyra G-Wagon í tónlistarmyndbandinu „Drip Too Hard“ með Lil Baby og Gunna.“ Í rigningu í Kaupmannahöfn þar sem hún prófaði ID. Buzz. © Aðsend mynd (AÐSEND) Skemmtilegasta bílferð erlendis? „Eins og ég nefndi eru þær þó nokkrar. Það var mjög eftirminnilegt þegar þegar við hjá Heklu fórum til Kaupmannahafnar á kynningu á ID. Buzz. Þar fengum við að vera meðal fyrsta fólksins í heiminum til að prófa bílinn. Við keyrðum um alla Kaupmannahöfn og líka yfir til Malmö í Svíþjóð. Það var alveg geggjað, því ID. Buzz er svo „iconic“ bíll og tengist líka langri og skemmtilegri sögu Volkswagen, gamla rúgbrauðinu og camper-útgáfunum – eins og Volkswagen Transporter/California camper.“ Hvað hlustarðu helst á í bílnum? „Það fer alveg eftir því í hvern - ig stuði ég er. Ég hoppa mikið á milli góðra underground old school hiphop og deep house. Old school R&B er líka mikið í uppáhaldi hjá mér. Svo þegar ég nenni ekki að hlusta á neitt hendi ég bara í þungarokk.“ Magnea naut sín vel á kynningu á Ferrari-ofurbíl. © Aðsend mynd (AÐSEND) Nánar er fjallað um málið í sérblaði Viðskiptablaðsins Bílar . Áskrifendur geta lesið viðtalið í heild hér .

Share this article