Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 6 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Austurland Fáskrúðsfjarðargöngum lokað vegna slyss Þorgils Jónsson Umferðaróhapp varð í morgun í Fáskrúðsfjarðargöngum vegna bílveltu, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Vinna er í gangi á vettvangi og göngunum lokað á meðan. Ökumaður, sem var einn í bifreið sinni, hefur verið fluttur til aðhlynningar á sjúkrastofnun, ekki talinn alvarlega slasaður. Þess er vænst að göngin opni fljótlega að nýju. Mynd úr safni. Vegagerðin Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Hjálparkokkar gefa börnum hundruð páskaeggja Hjálparkokkar halda utan um óskalista yfir páskaegg fyrir börn. Tilgangurinn er að tryggja að öll börn, óháð efnahag, eigi gleðilega páska. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Gul veðurviðvörun og lokanir á vegum austanlands Gul veðurviðvörun er vegna snjókomu og hvassra vindhviða á Austurlandi að Glettingi, Austfjörðum og Suðausturlandi fram að hádegi í dag. Allt að fimm stiga frost. Líkur eru á samgöngutruflunum um allt land. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Fimleikar Í dag: Bikarmótið í hópfimleikum Bikarmótið í áhaldafimleikum verður í Egilshöll í dag. Sýnt verður beint frá keppni í meistaraflokkum frá 14:00 á RÚV. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Leiklist „Maður sér svitann og örvæntinguna – hún er alveg ofan í manni“ Þjóðleikhúskjallaranum hefur verið umbreytt í næturklúbbinn Kit Kat þar sem sýningin Kabarett ræður ríkjum. Leikstjórinn Bjartur Örn segir nálægðina við áhorfendur mikla sem skapi sveitta og kynþokkafulla orku. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Maður fluttur á bráðamóttöku eftir atlögu með hnífi í miðborginni Ekki er vitað hversu alvarlegir áverkar hlutust af hnífstunguárás frammi fyrir skemmtistað í miðborginni. Sá sem fyrir varð var fluttur á bráðamóttöku og árásarmaðurinn í fangageymslu. Önnur líkamsárás var framin í Háaleitishverfi. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar HM í dag: Júlía Kristín keppir í grindahlaupi og úrslitin ráðast á lokadeginum Lokadagur heimsmeistaramótsins í frjálsíþróttum innanhúss er í dag. Júlía Kristín Jóhannesdóttir keppir á sínu fyrsta stórmóti þegar hún hleypur í undanrásum í 60 metra grindahlaupi klukkan 11:55. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Notendum leiðsöguhunda gert auðveldara að ferðast með nýrri reglugerð Markús Þ. Þórhallsson Viðbótarkostnaður vegna ferðalaga fólks með leiðsöguhunda fellur á ríkissjóð en ekki notendur sjálfa, nái reglugerð félags- og húsnæðismálaráðherra fram að ganga. Ragnar Þór Ingólfsson er félags- og húsnæðismálaráðherra. RÚV / Ragnar Visage Hún hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda og nær til leiðsöguhunda sem Sjónstöðin hefur lögum samkvæmt úthlutað sem hjálpartæki. Viðbótarkostnaður fellur til vegna skilyrða í reglum sem gera ráð fyrir einangrun hunda og katta við innflutning. Reglugerðinni er ætlað að tryggja jafnræði notenda leiðsöguhunda og bæta aðgengi þeirra að ferðalögum, að sögn Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. Frestur til að senda inn umsögn er til 2. apríl. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranir segja yfir 1.500 hafa verið drepin frá upphafi styrjaldar Íranar segja yfir 1.500 hafa verið drepna frá því Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á landið 28. febrúar. Á þriðja tug hefur særst. Ísraelsmenn héldu áfram árásum á Teheran í nótt og nágrannaríkin greina frá dróna- og eldflaugaárásum frá Íran. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Viðræðum um frið fram haldið í dag Markús Þ. Þórhallsson Sendinefnd úkraínskra stjórnvalda heldur í dag áfram viðræðum við bandaríska milligöngumenn um frið við Rússa í innrásarstríðinu. Steve Witkoff fer fyrir bandarísku sendinefndinni. AP / Mark Schiefelbein Fyrir bandarísku nefndinni fara erindrekinn Steve Witkoff og Jared Kushner, tengdasonur Donalds Trump forseta. Fundahöldum verður fram haldið í Flórída í dag. Úkraínumenn segjast bjartsýnir á lausn sem geti leitt til loka stríðsins sem staðið hefur rúm fjögur ár. Aðalsamningamaðurinn Rustem Umerov sagði að einblínt hefði verið á helstu lykilatriði og leiðir til að halda viðræðunum áfram. Sjónum hafi sérstaklega verið beint að því hvernig komast mætti að tryggri, sameiginlegri niðurstöðu. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Norður-Írland Skaðabótamál gegn Gerry Adams fellt niður á elleftu stundu Einkamál hefur á elleftu stundu verið fellt niður gegn Gerry Adams, fyrrverandi leiðtoga Sinn Féin, flokks lýðveldissinna á Norður-Írlandi. Málshefjendur hættu við eftir að útlit var fyrir að á þá félli allur málskostnaður, 500 þúsund pund. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Framboðslisti Samfélagsins í Norðurþingi fullskipaður og samþykktur Markús Þ. Þórhallsson Aðsend / Aðsend/Listi Samfélagsins í Norðurþingi Framboðslisti M – Lista Samfélagsins í Norðurþingi var samþykktur 15. mars og er fullskipaður. Rúnar Traustason, rekstrarstjóri Íslandspósts á Húsavík og slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður, er í efsta sæti. Listinn er skipaður óháðum, félagshyggjufólki og Miðflokksfólki í Norðurþingi að því er segir í tilkynningu. Markmiðið sé að sameina öflugt fólk með mikla reynslu úr ólíkum áttum til að vinna að hagsmunum íbúa sveitarfélagsins. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Varnarmál Þýsk freigáta leitaði vars undan veðri í Vopnafirði Markús Þ. Þórhallsson Þýska freigátan Brandenborg á siglingu. Bundeswehr/Sascha Jonack Þýskt herskip leitaði vars undan veðri í Vopnafirði fyrir helgina. Austurfrétt greinir frá því að það sé freigátan Brandenborg og samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæslunnar hafi hún verið við landið með leyfi stjórnvalda. Gæslan gefi ekki frekari upplýsingar um ferðir hennar. Freigátan sé samkvæmt skráningu á skipasíðum á leiðinni til Grikklands og skráð í þjónustu Atlantshafsbandalagsins. Brandenburg var stóran hluta seinasta árs til taks fyrir botni Miðjarðarhafs. Haft er eftir þýskum fjölmiðlum að þýsk skip hafi undanfarið tekið þátt í aðgerðum NATO í Norðursjó og á Eystrasalti. Ferðir fleiri erlendra skipa hafa vakið athygli síðustu daga. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Trump hótar árásum á raforkuver Írans verði Hormússund ekki opnað Bandaríkjaforseti ógnar Írönum með gereyðingu allra raforkuvera landsins opni byltingarvörðurinn ekki fyrir alla skipaumferð um Hormússund innan tveggja sólarhringa. Íranir hóta í staðinn árásum á orkuinnviði og afsöltunarstöðum í nágrannalöndunum. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kúba Straumrof varð um nær allt land eina ferðina enn — skip komu með neyðarbirgðir í vikunni Úr sér gengið raforkukerfi Kúbu hefur valdi' umfangsmiklu og langvarandi rafmagnsleysi. Straumrof varð um allt landið í gær á sama tíma og neyðarbirgðir berast til landsins. Hafnbann Bandaríkjanna hefur leitt af sér vöruskort og vanda í ferðamennsku. 21. mars 2026 kl. 23:59ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Donald Trump fagnar andláti Roberts Mueller fyrrverandi forstjóra FBI Robert Mueller, fyrrverandi forstjóri Alríkislögreglu Bandaríkjanna, er látinn. Donald Trump fagnaði andláti Muellers sem rannsakaði meint tengsl framboðs hans og Rússa í kosningunum 2016. 21. mars 2026 kl. 23:30INNLENDAR FRÉTTIR Trúarbrögð Séra Jakob í viðtali hjá stórum kaþólskum fjölmiðli Séra Jakob Rolland segist mestmegnis hafa fengið jákvæð viðbrögð við ummælum sínum um samkynhneigð fyrr í mánuðinum. 21. mars 2026 kl. 23:02INNLENDAR FRÉTTIR Veður Gul veðurviðvörun á sunnan- og austanverðu landinu vegna hríðar og hvassviðris Gul veðurviðvörun gildir fyrir Suðausturland, Austurland að Glettingi og Austfirði í nótt og fram undir hádegi vegna hríðarveðurs og hvassviðris. Vegir á sunnan- og austanverðu landinu verða lokaðir. Nokkrum komum frá Vesturheimi hefur verið aflýst. 21. mars 2026 kl. 22:29INNLENDAR FRÉTTIR Fjarðabyggð Grunur um íkveikju í Fjarðabyggð Slökkvilið Fjarðabyggðar hvetur fólk til að fara varlega með eld vegna þess hve þurr gróður er um þessar mundir. 21. mars 2026 kl. 21:54ÍÞRÓTTIR Frjálsar Eitt heimsmet og tvö mótsmet á öðrum degi HM Svisslendingurinn Simon Ehammer sló heimsmetið í sjöþraut á heimsmeistaramótinu í frjálsíþróttum innanhúss í dag. Svíinn Mondo Duplantis sló mótsmetið í stangastökki og Kanadamaðurinn Christopher Morales Williams í 400 metra hlaupi. 21. mars 2026 kl. 21:39INNLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Þýskt herskip við Íslandsstrendur Guðmundur Atli Hlynsson Þýskt herskip, sem nú er statt utan við Dýrafjörð á Vestfjörðum, er ekki við Ísland í tengslum við erlenda snekkju sem meinað var um hafnarkomu á Akureyri fyrr í dag. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, staðfestir þetta. Mbl.is greindi frá því í kvöld að þýskt herskip væri á siglingu við landið. Samkvæmt Marine Traffic lagði skipið, NATO WARSHIP 219, af stað frá Þýskalandi í gær. Í svari við fyrirspurn fréttastofu segir Ásgeir Erlendsson að algengt sé að skip erlendra ríkja sigli á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Skipið sé hér með leyfi íslenskra stjórnvalda og tengist fyrrnefndri snekkju ekki með neinum hætti. Herskipið sem um ræðir er statt undan Dýrafirði. marinetraffic.com 21. mars 2026 kl. 21:23ÍÞRÓTTIR Körfubolti Ármann fellur úr úrvalsdeildinni Ármann er fallið úr Bónusdeild kvenna í körfubolta. Það varð ljóst þegar Hamar/Þór, sem var í fallbaráttunni, vann Keflavík 88-85. Ármann tapaði svo fyrir Tindastóli, 95-69. Þá kemst Álftanes ekki í úrslitakeppni Bónusdeildar. 21. mars 2026 kl. 21:00ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bandaríkjaher segir getu Írana til að gera árásir á Hormússund verulega skerta Bandaríkjaher hefur veikt getu Írana til að gera árásir á Hormússundi undanfarna daga. Hópur rúmlega tuttugu ríkja segist vera tilbúinn að tryggja öruggar siglingar um sundið. 21. mars 2026 kl. 20:37INNLENDAR FRÉTTIR Grindavíkurbær Grindvísk ungmenni komu saman og ræddu framtíðina í heimabænum Brottflutt grindvísk ungmenni komu saman á ungmennaþingi í heimabænum í dag