Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stjórnvöld verði að vinna með Bændasamtökunum verði aðildarviðræður samþykktar

Read Full Article →

Þriggja daga Búnaðarþing var sett á Hótel Natura við Reykjavíkurflugvöll fyrir hádegi að viðstöddum þingfulltrúum og gestum. Skammt er í að eins árs framlenging búvörusamninga verði tilbúin. Þeir kosta ríkissjóð um 20 milljarða króna á ári og framundan eru viðræður um nýjan samning. „Það er alveg ljóst að áskoranirnar sem eru framundan í landbúnaði eru sannarlega ekki séríslenskar en engu að síður áskoranir sem lúta að kynslóðaskiptum, sem lúta bara að almennri afkomu bænda og síðan áframhaldandi vinnu við að tryggja hér fæðuöryggi,“ segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra. „Við erum bara með gríðarlega sterka og mikilvæga atvinnugrein og höfum alla burði til að vinna þetta mjög vel.“ Slá varnagla varðandi ESB Bændasamtökin leggjast ekki gegn þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hins vegar segir formaðurinn að samtökin slái ákveðna varnagla. „Ég geri mér nú væntingar um að það verði ekki farið í neinar kollsteypur á núverandi kerfi rétt eins og ráðherra hefur sjálf rætt um,“ segir Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands. „Við erum bara að segja við stjórnvöld: Ef það verður niðurstaða þjóðarinnar að fara í áframhaldandi viðræður þá verða þau að vinna það með okkur og skoða það með okkur hvernig við gætum best að grunngildum landbúnaðarins,“ segir hann. „Eins og til dæmis tollverndin, já,“ segir hann spurður. Ekki komið auga á gullnu tækifærin „Og eins og ég hef áður sagt þá erum við ekki búin að koma auga á hin stóru gullnu tækifæri en við vinnum vinnuna og sjáum hvert þetta leiðir okkur.“ Hanna Katrín segir áskoranir vera til staðar en fyrst og fremst tækifæri. „En það eru auðvitað alveg hárrétt skilaboð hjá Trausta formanni Bændasamtakanna að við þurfum að vinna þetta saman. Og ég bind auðvitað vonir við að þjóðin vilji skoða hvað er þarna í boði og hverju við náum fram og hvernig við bætum íslenskt samfélag,“ segir Hanna Katrín. Formaður Bændasamtaka Íslands leggur áherslu á samstarf við stjórnvöld, bæði hvað varðar nýja búvörusamninga og hagsmuni landbúnaðarins gagnvart ESB-viðræðum ef til kæmi. Varaformaður Bændasamtakanna segir konur í landbúnaði þurfa að vera sýnilegri. Sameinuðu þjóðirnar helga konum í landbúnaði árið 2026. Með því á að vekja athygli á mikilvægum hlut kvenna í landbúnaði sem oft er vanmetinn. Samkvæmt opinberum tölum um búfjáreigendur er 591 lögaðili, 1359 karlar en aðeins 368 konur. Varaformaður Bændasamtakanna fjallaði um konur í landbúnaði á Búnaðarþingi. Konur eru í minnihluta í trúnaðarstöðum hjá Bændasamtökunum. „Við eigum alveg svolítið í land. Ég sjálf hef aldrei upplifað annað en stuðning frá þeim karlmönnum sem ég hef unnið með. En þær eru enn þá í miklum minnihluta í stjórnum og sem formenn,“ segir Herdís Magna Gunnarsdóttir, varaformaður Bændasamtaka Íslands og bóndi á Egilsstöðum. Hún segir konur í landbúnaðarstéttinni þurfa að vera sýnilegri auk þess sem þurfi að fjölga konum sem séu skráðar sem eigendur rekstrar og sem séu fulltrúar bænda og talsmenn landbúnaðarins. Hún segir 70% þeirra sem séu viðstaddir Búnaðarþingið vera karla. „Þær eru miklu fleiri í námi í landbúnaði. Þær eru fleiri ráðgjafar í landbúnaði,“ segir Herdís. „Það er ákveðinn tálmi, bara verkkunnátta. Við þurfum að styrkja þær í að vera rafvirkjar, smiðir, allt þetta sem bóndinn þarf að vera.“

Share this article