Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Niðurfelling gjalda grundvallaratriði

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 24.3.2026 | 11:38 Niðurfelling gjalda grundvallaratriði Hornafjarðarfljót. Áformað er að innheimta veggjöld á leiðinni. Ljósmynd/Vegagerðin Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki „Ég tel að þetta sé rétta leiðin til fjármögnunar samgönguframkvæmda og það er engin tilviljun að aðrar þjóðir hafa valið slíka leið til uppbyggingar samgöngumannvirkja. Það hefur engri þjóð dottið í hug að leggja á kílómetragjald í þeim tilgangi,“ segir Jón Gunnarsson alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við Morgunblaðið. Boðað hefur verið að innheimta veggjöld á samgöngumannvirki til að fjármagna verkefni áformaðs innviðafélags og eru stjórnvöld með til skoðunar að færa Hvalfjarðargöng, Reykjanesbraut og Suðurlandsveg inn í innviðafélagið og veggjöld verði innheimt á ný í Hvalfjarðargöngum 2028. Nú er horft til þess að innviðafélagið fjármagni Sundabraut, Fljótagöng og Ölfusárbrú og til skoðunar er að renna Vaðlaheiðargöngum og veginum um Hornafjarðarfljót inn í félagið. Veggjöld eru þegar innheimt í göngunum en til stendur að rukka þau líka af veginum í Hornafirði. „Skilyrði okkar sjálfstæðismanna og mín fyrir því að fara þessa leið eru þau að á móti verði kílómetragjaldið fellt niður og vörugjöld á bíla lækkuð umtalsvert, ef sátt á að nást um gjaldtökuna. Það er grundvallaratriði,“ segir Jón, en vörugjöldin hækkuðu stórlega um sl. áramót. „Þetta mun þýða það að við verðum með félag sem á að tryggja að innheimt veggjöld fari í uppbyggingu vegakerfisins sem gerir mögulegt að gera áætlanir lengra fram í tímann og bjóða út stærri verkefni, í stað þess að vera í þessum bútasaumi sem við höfum verið í og kostar okkur allt of mikið,“ segir Jón. Samræmd gjaldtaka „Innviðafélag verður að hugsa á stærri skala en gert er í frumvarpinu. Ég tel að allt meginvegakerfi landsins eigi að fara inn í innviðafélag, með svipuðum hætti og Landsnet byggir upp meginflutningskerfi raforku. Ef breyta á gjaldtökunni og fella niður kílómetragjald og lækka vörugjöld af bifreiðum þarf það að gerast með þeim hætti að samræmd gjaldtaka hefjist víða um land. Þannig tryggjum við sem jafnasta þátttöku allra. Þannig verður mögulegt að hafa gjaldið lægra fyrir þá sem oft keyra um gjaldhlið. Einskiptisnotendur, uppistaðan erlendir ferðamenn, stóðu undir tæpum 40% af tekjum Hvalfjarðarganga og myndu samkvæmt því greiða upp undir sömu prósentu af uppbyggingu vegakerfisins,“ segir hann. Endurskoða borgarlínu „Hvað varðar borgarlínuna og samspil við uppbyggingu vegakerfisins á höfuðborgarsvæðinu þá er það mín skoðun, og flestra innan Sjálfstæðisflokksins að ég hygg, að þau áform þurfa að sæta grundvallarendurskoðun. Það hefur sýnt sig að borgarlínuverkefnið er gengið sér til húðar. Það eru til einfaldari og skilvirkari leiðir til að greiða fyrir almennri umferð og almenningssamgöngum,“ segir hann og vísar þar m.a. til þess að fara þurfi án tafar í uppbyggingu mislægra gatnamóta á fjölförnustu leiðunum á höfuðborgarsvæðinu sem og að innleiða samhæfða ljósastýringu á gatnamótum, sem sé einföld leið til að greiða fólki götuna. Þar muni Fossvogsbrú leika hlutverk. Draga megi verulega úr kostnaði við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, þannig að ekki þurfi að koma til sérstakrar gjaldtöku af umferð innan þess. Svo sem kunnugt er stendur til að innheimta veggjöld af umferð á höfuðborgarsvæðinu upp á 143 milljarða króna á árabilinu 2030-2040 sem fjármagna á sáttmálann að verulegu leyti. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Nýr raforkusamningur Landsvirkjunar og Norðuráls Viktor á lista yfir þá efnilegustu í heimi Lifði slysið af: Fannst hundrað metrum frá flakinu Beint: Hver er staða íbúðauppbyggingar? Niðurfelling gjalda grundvallaratriði Umræðan Tryggjum jafnræði í grunnskólunum Við höfum ekki tekið upp 80% af regluverki ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Sá stærsti í hálft ár Flugslys í Kólumbíu – 80 um borð Segir fjáraukalög hafa verið brotin Mest lesið Í gær Í vikunni Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic „Kommissarinn“ íslenskur „Ég er harmi slegin“ Bílar innlyksa vegna snjóflóðs Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Ein með öllu og kók komin í 1.330 krónur „Ég er harmi slegin“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vilja hætta að rukka á kvöldin Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Nýjast á mbl.is » Nýr raforkusamningur Landsvirkjunar og Norðuráls Viktor á lista yfir þá efnilegustu í heimi Lifði slysið af: Fannst hundrað metrum frá flakinu Beint: Hver er staða íbúðauppbyggingar? Niðurfelling gjalda grundvallaratriði Umræðan Tryggjum jafnræði í grunnskólunum Við höfum ekki tekið upp 80% af regluverki ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sá stærsti í hálft ár Ætla ekki í ófjármagnaðar aðgerðir Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Starfsfólk sé ekki eitt með barni Mest lesið Í gær Í vikunni Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic „Kommissarinn“ íslenskur „Ég er harmi slegin“ Bílar innlyksa vegna snjóflóðs Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Ein með öllu og kók komin í 1.330 krónur „Ég er harmi slegin“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vilja hætta að rukka á kvöldin Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri

Share this article