Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Páskaeggjaleit var haldin í heilbrigðisráðuneytinu

Read Full Article →

Eins og fram hefur komið í fréttum þá um sex þúsund starfsmenn Landspítalans engin páskaegg að gjöf frá sjúkrahúsinu að gjöf þetta árið. Ástæðan er að stjórnendur eru að mæta að mæta þriggja til fjögurra milljarða króna niðurskurðarkröfu ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttir á sjúkrahúsið. Það starfa um sex þúsund manns á spítalanum þannig að sparnaðurinn sem hlýst af því að gefa starfsmönnum ekki páskaegg nemur því kringum fjórtán milljónir, sé miðað við hilluverð, en samkvæmt upplýsingum Týs hafa verið keypt páskaegg af sælgætisgerðinni Freyju af stærð nr. 4 undanfarin ár. Týr er ekki hrifinn af bruðli með skattfé borgarana. Hann er ekki heldur hrifinn af tvískinnungi. Það barst til eyrna Týs að meðan að starfsfólki Landspítalans fengju engin páskaegg þetta árið þá hefði Alma Möller heilbrigðisráðherra staðið fyrir heljarinnar páskaeggjaleitardegi í ráðuneytinu á þriðjudag. Þá hlupu starfsmenn ráðuneytisins með Möllerinn fremstan í flokki um sali Skúlagötunnar í leit að litlum páskaeggjum frá Nóa. Þegar gleðinni var loks lokið voru allir starfsmenn leystir út með stærðarinnar páskaeggjum frá sama framleiðanda. Týr sér að sömu lögmál gilda í Dýrabæ George Orwell og í íslenska heilbrigðiskerfinu: Öll dýr eru jöfn en sum dýr eru jafnari en önnur. Og væntanlega er engin jafnari en Alma Möller. Ap Týr er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins.

Share this article