Innlent | mbl | 25.3.2026 | 13:19 Ætla sér að tryggja yfirráð Íslands Þorgerður Katrín á fundi utanríkismálanefndar í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Myndskeið: Tókust á á fundi utanríkismálanefndar Diljá ósátt og óskar eftir öðrum fundi Segir það dellu að aðildarviðræður séu hafnar Þorgerður segir ESB bera virðingu fyrir ferli Íslands Óvíst um afdrif umsóknar » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Þorgerður segir ESB bera virðingu fyrir ferli Íslands Óvíst um afdrif umsóknar Hækkun orkuverðs ekki alslæm fyrir Íslendinga ESB-ummæli Þorgerðar í brennidepli á Alþingi Efast um að styrkir fyrir Evrópumál uppfylli skilyrði » Fleiri tengdar fréttir „Við munum gera allt til þess að tryggja yfirráð yfir okkar auðlindum og það er alveg ljóst að bæði ég og forsætisráðherra – við munum ekki skrifa undir samning sem ekki treystir og tryggir þessa hagsmuni Íslands.“ Þetta sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra á opnum fundi utanríkismálanefndar fyrr í morgun. Þar sat Þorgerður fyrir svörum nefndarliða og fékk þar spurningu frá Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, sem fylgdi eftir spurningum Diljár Mistar Einarsdóttur, flokkssystur sinnar. Frétt af mbl.is Segir það dellu að aðildarviðræður séu hafnar Frétt af mbl.is Diljá ósátt og óskar eftir öðrum fundi Framlag Íslands yrði 10-15 milljarðar Var Þorgerður þar m.a. spurð hvort ríkisstjórnin myndi upplýsa um ófrávíkjanleg skilyrði í viðræðum við Evrópusambandið áður en þjóðaratkvæðagreiðslan færi fram. Sömuleiðis var hún spurð um sameiginlega sjávarútvegsstefnu við Evrópusambandið annars vegar og varanlegt fullt forræði íslensku þjóðarinnar hins vegar og hvort það gæti farið saman að hennar mati. Þá var hún aukinheldur spurð um hvort farið hefði fram mat eða áætlun um nettógreiðslur Íslands til Evrópusambandsins færi svo að Ísland myndi ganga í sambandið. Í svari sínu sagði Þorgerður að búið væri að skoða Finnland er kæmi að mati um nettógreiðslur. Sagði ráðherrann Finna borga 0,2-0,3 prósent af vergri landsframleiðslu og miðað við sömu forsendur yrði framlag Íslands um 10-15 milljarðar. Frétt af mbl.is Segir „af og frá“ að viðræður séu hafnar Frétt af mbl.is Þorgerður segir ESB bera virðingu fyrir ferli Íslands Frá fundinum í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson 90-150 milljarða sparnaður Benti hún á að nú þegar væri Ísland að borga 8 milljarða á hverju ári vegna EES-samningsins en að þær greiðslur myndu falla niður við inngöngu. Þá setti Þorgerður greiðslurnar í samhengi við skuldir heimila landsins sem hún sagði vera um 3.200 milljarða „Hvert prósent í lægri vöxtum vegna upptöku evru myndi skila okkur 32 milljörðum í lægri vexti. Stýrivextir hér eru almennt á bilinu 3-5 prósentustigum hærri þannig við erum að tala um 90-150 milljarða sparnað ef við tækjum upp evru,“ sagði Þorgerður. Ætla sér að tryggja yfirráð Íslands „Varðandi ófrávíkjanlegu skilyrðin. Það er alveg ljóst að við munum og ætlum okkur að tryggja yfirráð Íslands yfir fiskveiðilögsögunni,“ sagði ráðherrann og bætti síðar við að Ísland væri öðruvísi en önnur ríki sem hafa sótt um aðild að sambandinu. „Landfræðileg lega okkar, staða okkar [og] styrkur í sjávarútvegi er miklu frekar það sem Evrópusambandið er að sjá sem okkar styrkleika. Þess vegna segi ég að það sé mikilvægt að við séum með kassann úti þegar að því kemur og það er allavega ljóst að það er ýmsum sem þætti erfitt að sjá Ísland vera með sterka stöðu á þessum sviðum,“ sagði Þorgerður og bætti við að lokum: „En við munum gera allt til þess að tryggja yfirráð yfir okkar auðlindum og það er alveg ljóst að bæði ég og forsætisráðherra – við munum ekki skrifa undir samning sem ekki treystir og tryggir þessa hagsmuni Íslands.“ Tengdar fréttir Ísland og ESB Myndskeið: Tókust á á fundi utanríkismálanefndar Diljá ósátt og óskar eftir öðrum fundi Segir það dellu að aðildarviðræður séu hafnar Þorgerður segir ESB bera virðingu fyrir ferli Íslands Óvíst um afdrif umsóknar » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Þorgerður segir ESB bera virðingu fyrir ferli Íslands Óvíst um afdrif umsóknar Hækkun orkuverðs ekki alslæm fyrir Íslendinga ESB-ummæli Þorgerðar í brennidepli á Alþingi Efast um að styrkir fyrir Evrópumál uppfylli skilyrði » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ríki í Mið-Austurlöndum sækjast í dróna frá Úkraínu United og Casemiro með samkomulag Ætla sér að tryggja yfirráð Íslands Mikil umferð á umferdin.is „Það er allt undir í svona rannsókn“ Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á matvæli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vill opna úrræði fyrir mæður með fíknivanda Segir það dellu að aðildarviðræður séu hafnar Loka Fjarðarheiði vegna erfiðra akstursskilyrða Leita til ríkislögreglustjóra vegna vagna Strætó Mest lesið Í gær Í vikunni Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Varari um sig og óttast um öryggi sitt Frysta þarf öll laun í landinu Óvíst um afdrif umsóknar Varað við vonskuveðri „Erum að sjá jarðhitakerfið endurnýja sig“ Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Hamas-liðar á Höfðatorgi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Nýjast á mbl.is » Ríki í Mið-Austurlöndum sækjast í dróna frá Úkraínu United og Casemiro með samkomulag Ætla sér að tryggja yfirráð Íslands Mikil umferð á umferdin.is „Það er allt undir í svona rannsókn“ Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á matvæli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bandaríkin afhjúpa áætlanir um tunglbækistöð Hamas-liðar á Höfðatorgi Óvíst um afdrif umsóknar Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Mest lesið Í gær Í vikunni Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Varari um sig og óttast um öryggi sitt Frysta þarf öll laun í landinu Óvíst um afdrif umsóknar Varað við vonskuveðri „Erum að sjá jarðhitakerfið endurnýja sig“ Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Hamas-liðar á Höfðatorgi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl