Innlent | mbl | 25.3.2026 | 15:15 Vindorkunýting útilokuð á friðlýstum svæðum Í frumvarpinu er lagt til að vindorkunýting muni í meginatriðum lúta sömu lögmálum innan rammaáætlunar og aðrir orkukostir. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Tengdar fréttir Rammaáætlun Umfangsmestu breytingar frá upphafi Myndi virkja um 200 metra fall Holtavirkjun og Skrokkölduvirkjun í orkunýtingarflokk Ekki með eigin flokk að baki sér Hnotasteinn færist úr biðflokki í nýtingarflokk » Fleiri tengdar fréttir Vindorkunýting verður að líkindum útilokuð á svæðum sem hafa verið friðlýst eða njóta sérstakrar verndar, svo sem á Ramsar-svæðum, svæðum á heimsminjaskrá UNESCO og B-hluta náttúruminjaskrár. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, mælti fyrir frumvarpi á Alþingi í gær sem er ætlað að skýra stöðu vindorku innan rammaáætlunar og tryggja viðeigandi verndun náttúruverðmæta sem Alþingi hefur talið ástæðu til að vernda, að því er fram kemur í tilkynningu frá Stjórnarráði Íslands . Frétt af mbl.is Mikil samlegðaráhrif vindorkuvera Tímabærar leikreglur Í frumvarpinu er lagt til að vindorkunýting muni í meginatriðum lúta sömu lögmálum innan rammaáætlunar og aðrir orkukostir. Þó verði verkefnisstjórn gert að horfa sérstaklega til ákveðinna viðbótarþátta, m.a. til formlegrar afstöðu sveitarfélaga, atvinnuþróunar í viðkvæmum byggðum og til raforkuöryggis og samlegðar við uppbyggingu flutningskerfis raforku. Þá er markmiðið með hinum þætti frumvarpsins að tryggja að þau svæði sem flokkuð eru í verndarflokk áætlunarinnar sæti í framhaldinu ítarlegri skoðun með það fyrir augum að fyrsti kostur verði að friðlýsa þau á grundvelli almennra friðlýsingarflokka náttúruverndarlaga fremur en að vera einvörðungu friðlýst gegn orkuvinnslu. Frétt af mbl.is Metur áhrif vindorkuvers neikvæð Haft er eftir Jóhanni Páli í tilkynningunni að löngu tímabært sé að skapa skýrari leikreglur um vindorkuna. Fallið hafi verið alfarið frá áformum sem uppi voru áður en núverandi ríkisstjórn tók við um sérstaka flýtimeðferð vindorkugarða í nafni orkuskipta og kolefnishlutleysis. Í staðinn leggi sitjandi ríkisstjórn til að vindurinn verði felldur með ótvíræðum hætti undir rammaáætlun og að vindorkunýting verði bönnuð á viðkvæmum náttúrusvæðum en að afstaða sveitarfélaga og sjónarmið um atvinnu- og byggðaþróun og styrkingu flutningskerfis raforku vegi þungt við mat á vindorkukostum. „Samhliða þessu komum við verndarhlið rammaáætlunar í betri skorður. Staðreyndin er sú að engin svæði í verndarflokki rammaáætlunar hafa verið friðlýst með lögformlega réttum og bindandi hætti síðan lögin tóku gildi. Við leggjum til nýja nálgun: að eftir ítarlegt ferli rammaáætlunar sé verndað á grundvelli viðeigandi friðlýsingarflokka náttúruverndarlaga fremur en einvörðungu gegn orkuvinnslu.“ Jóhann Páll mælir fyrir frumvarpinu í gær. Ljósmynd/Stjórnarráðið Tengdar fréttir Rammaáætlun Umfangsmestu breytingar frá upphafi Myndi virkja um 200 metra fall Holtavirkjun og Skrokkölduvirkjun í orkunýtingarflokk Ekki með eigin flokk að baki sér Hnotasteinn færist úr biðflokki í nýtingarflokk » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Vindorkunýting útilokuð á friðlýstum svæðum Þegar matur verður list sem má borða Marsralli Hafrannsóknastofnunar lokið Mikill léttir fyrir Dani “Seeing the geothermal system renew itself” Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) ESB og Ísland undirrita samstarf í öryggis- og varnarmálum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Dró til tíðinda í sjónvarpsútsendingu Áhættan vegna stríðsins að breiðast út „Það er allt undir í svona rannsókn“ Ætla sér að tryggja yfirráð Íslands Mest lesið Í gær Í vikunni Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Frysta þarf öll laun í landinu Varari um sig og óttast um öryggi sitt Óvíst um afdrif umsóknar Varað við vonskuveðri „Lognið á undan storminum“: Illviðri í kortunum Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Hamas-liðar á Höfðatorgi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Nýjast á mbl.is » Vindorkunýting útilokuð á friðlýstum svæðum Þegar matur verður list sem má borða Marsralli Hafrannsóknastofnunar lokið Mikill léttir fyrir Dani “Seeing the geothermal system renew itself” Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) ESB og Ísland undirrita samstarf í öryggis- og varnarmálum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Það er allt undir í svona rannsókn“ Myndskeið: Tókust á á fundi utanríkismálanefndar Telur heimilin vilja óverðtryggð lán „Dýrt að sitja uppi með óseldar íbúðir“ Mest lesið Í gær Í vikunni Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Frysta þarf öll laun í landinu Varari um sig og óttast um öryggi sitt Óvíst um afdrif umsóknar Varað við vonskuveðri „Lognið á undan storminum“: Illviðri í kortunum Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Hamas-liðar á Höfðatorgi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl