Sameining Kaldrananeshrepps og Árneshrepps var samþykkt í báðum sveitarfélögum í íbúakosningu sem lauk um helgina. Finnur Ólafsson, oddviti Kaldrananeshrepps, kveðst ánægður með að tekist hafi að vinna eftir vilja íbúa sveitarfélaganna beggja með sameiningunni. Í Árneshreppi greiddu 56,81% atkvæði með sameiningunni og 40,9% á móti. Í Kaldrananeshreppi greiddu 73,21% atkvæði með og 21,42% á móti. Finnur segir niðurstöður kosninganna í takt við sínar væntingar. „Það var margt sem gerðist í aðdragandanum að þessum kosningum þannig að ég gerði mér ekki alveg grein fyrir því hvernig landið lægi. En hins vegar var þetta í rauninni í samræmi við þann vilja sem var til staðar þegar verkefnið hófst. Við skynjuðum vilja hjá báðum sveitarfélögunum, að þau væru tilbúin að fara í.“ Sýnir áhyggjum íbúa skilning Hlutfall þeirra sem greiddu atkvæði á móti sameiningunni var talsvert hærra í Árneshreppi en í Kaldrananeshreppi. Finnur segist sýna því skilning að íbúar hafi áhyggjur af þeim áhrifum sem sameiningin gæti haft á þeirra hag. „Ég sýni því mikinn skilning að það hafi verið áhyggjur hjá þessum íbúum sem eru í Árneshreppi um að hagur þeirra verði kannski ekki eins góður og fyrir en okkar sýn er að við getum gert enn betur og vonandi með þeirra stuðningi.“ Aðspurður segir Finnur stærstu áskoranir sveitarfélaganna felast í landfræðilegri einangrun þeirra og þeim þjónustuskorti sem hún hafi í för með sér. Í því skyni hafi áherslur ríkisins í samgöngumálum ítrekað brugðist íbúum hreppanna tveggja. „Núna er staðan sú að svæðin verða einangruð, hvort sem það er í Árneshreppi eða Kaldrananeshreppi. Þá eru svæði þar sem fólk býr orðin lokuð af vegna skorts á þjónustu í samgöngum og þá vetrarþjónustu. Það verður okkar stærsta áskorun í verkefninu sem fram undan er, að tryggja að þjónustustig á öllum svæðum okkar haldist jafnt. Þar er boltinn hjá ríkinu sem hefur um samgöngumál að ráða og hefur oft lofað miklum bótum en endar oft mjög aftarlega í hverri nýrri samgönguáætlun sem sett eru fram,“ segir Finnur. Hvað gerist næst? Að kosningunni lokinni hittast stjórnir Árneshrepps og Kaldrananeshrepps og skipa undirbúningsnefnd sem gerir tillögur til innviðaráðherra um það hvenær og hvernig sameiningin tekur gildi. Nefndin kemur sér síðan saman um kosningu til nýrrar sveitarstjórnar í sameiginlegu sveitarfélagi. Að sögn Finns er stefnt að því að hægt verði að kjósa í nýju sveitarfélagi í sveitarstjórnarkosningunum í vor.