Nokkur af stærstu flugfélögum Asíu hafa gripið til neyðaraðgerða vegna hækkandi eldsneytisverðs vegna stríðsins í Íran. Á vef BBC er farið yfir aðgerðir þessara flugfélaga en mörg þeirra reiða sig að stórum hluta á olíuinnflutning frá Persaflóa. Korean Air tilkynnti til að mynda í dag að það myndi innleiða hagræðingaraðgerðir til að tryggja fjárhagslegan stöðugleika. Flugfélagið er það nýjasta sem hefur gripið til slíkra aðgerða en verð á flugvélaeldsneyti hefur meira en tvöfaldast frá upphafi átaka. Vitnað er í Tan Chi Siang hjá PwC í Singapúr sem segir að flugfélög hafi áður gripið til sambærilegra neyðaraðgerða, til að mynda á tímum heimsfaraldurs. Hann segir að flugfélög í Asíu standi frammi fyrir tvöföldu áfalli, annars vegar hækkandi olíuverði á heimsvísu og hins vegar skorti á flugvélaeldsneyti í álfunni. Sjá einnig Eldsneytisverð hækkað minna hér en á öðrum Norðurlöndum Suður-Kórea er sérstaklega viðkvæmt land þegar kemur að orkutruflunum frá Mið-Austurlöndum en þaðan kemur stór hluti af olíubirgðum þjóðarinnar. Önnur kóresk flugfélög á borð við Asiana Airlines og Busan Air hafa einnig gripið til neyðaraðgerða sem fela meðal annars í sér innri hagræðingu, frestun á fjárfestingum og fækkun flugferða. Áhrifin hafa einnig verið mikil í Kína en þrátt fyrir eigin framleiðslu er Kína stærsti innflytjandi á olíu í heimi. Flugfélagið China Eastern hefur varað við því að langvarandi átök gætu haft veruleg áhrif á rekstur þess á árinu. Cathay Pacific í Hong Kong hefur einnig bætt eldsneytisgjaldi við öll sín flug og hefur það meðal annars leitt til hækkunar á fargjöldum.