Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Nánast vissir um að það væri enginn grafinn í flóðinu“

Read Full Article →

Björgunarsveitarmaður sem kom fyrstur að snjóflóðinu í Skeggjabrekkudal í Ólafsfirði á laugardaginn segir skjótt viðbragð skipta öllu. Björgunarsveitir voru kallaðar út á hæsta forgangi, en blessunarlega lenti enginn í flóðinu. Fyrstu upplýsingar sem björgunarsveitin fékk voru frekar óljósar. Talið var að mögulega væru einn til tveir grafnir í flóðinu. Allt tiltækt lið var kallað til á hæsta forgangi. „Menn mæta bara í hús og þetta er á hæsta forgangi, þetta útkall. Menn koma sér bara eins hratt og mögulegt er í hús og taka til þann búnað og tæki sem er nauðsynlegt að nota í svona aðgerð,“ sagði Tómas Atli Einarsson, fyrrum formaður Björgunarsveitarinnar Tinds á Ólafsfirði, sem var fyrstur á staðinn. „Þegar ég kem í rauninni að öryggishliðinu þar sem lögreglan er búin að staðsetja sig þá er þyrluflugmaður þar búinn að hafa samband við þennan hóp og var í rauninni búinn að fá upplýsingar um að þeir væru nánast vissir um það að það væri enginn grafinn í flóðinu.“ Fjöldi fólks kom að útkallinu enda í hæsta forgangi „Þetta er ansi stórt viðbragð í þessu. Svo brugðust við hérna aðilar, lögregla og slökkvilið hérna í Fjallabyggð. Þetta var býsna mikið viðbragð. Sjúkrabílar komu frá Siglufirði, Dalvík og Akureyri,“ sagði Tómas og undirstrikaði mikilvægi þess að bregðast hratt við svona aðstæðum: „Ef það er nokkur möguleiki að bjarga viðkomandi að bjarga viðkomandi úr svona flóði ef einhver grefst þannig að það er mjög mikilvægt að bregðast skjótt við.“

Share this article