Innlent | mbl | 31.3.2026 | 15:32 „Innviðaskuldin er svo mikil“ Alma Möller heilbrigðisráðherra á opnu húsi Urðarhvarfs 16 í dag. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Alma Möller heilbrigðisráðherra kveðst bjartsýn á að ný hjúkrunarrými í Urðarhvarfi muni létta á Landspítala og starfsfólki hans. Undirritaður var í dag samningur um rekstur og þjónustu í hjúkrunarrýmum að Urðarhvarfi 16. Samningurinn tekur til þjónustu í 100 hjúkrunarrýmum fyrir einstaklinga með gilt færni- og heilsumat sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og bíða eftir varanlegri dvöl á hjúkrunarheimili. Frétt af mbl.is Vonast til að létta verulega á Landspítalanum Vonandi komin með 110 rými í júní Í samtali við mbl.is segir Alma fyrstu skjólstæðinga Urðarhvarfs hafa komið í gær frá hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum. Von sé á fleirum í dag og þá verður að auki tekinn inn mannskapur frá Landspítala. „Svo verður farið í endurbætur á Vífilsstöðum og svo opnað þar aftur í júní og vonandi verðum við þá komin með 110 rými, sem munar svo sannarlega um.“ Frétt af mbl.is Rúm hundrað bíða enn eftir plássi Starfseminni flýtt töluvert Upphaflega stóð til að starfsemin á Urðarhvarfi myndi hefjast í maí á þessu ári en í kjölfar mikillar fjölgunar einstaklinga með færni- og heilsumat á Landspítala var opnuninni flýtt og segir Alma mikilli samvinnu það að þakka. „Þess vegna erum við að flýta þessu og drífa þetta svona áfram, út af þeim sem eru annaðhvort að bíða eftir því að komast í biðrými eða á hjúkrunarheimili.“ Frá undirritun samningsins. mbl.is/Karítas Hægt að hafa allt að 130 manns á Urðarhvarfi Þá er heimild innan þjónustusamningsins til að auka rýmafjöldann með sveigjanlegum hætti til að geta betur mætt tímabundinni aukinni þörf með skömmum fyrirvara. „Þetta er kallaður marksamningur og þetta er það sem verið er að gera núna; að semja við hjúkrunarheimilin um að þau megi auka við sig um 10% án þess að þurfa eitthvað ferli. Svo er það reyndar hér að með samþykki sjúkratrygginga er hægt að hafa allt að 130 manns hér.“ Innviðaskuldin mikil Eins og greint hefur verið frá er vonast til þess að hin nýju rými muni létta verulega á álagi Landspítala og starfsfólki hans og reiknar Alma með að þau áhrif fari að finnast á næstu vikum, en þá sérstaklega í júní þegar öll rýmin verða komin í notkun eftir að Vífilsstaðir opna að nýju. „Þá mun muna um það. En svo þarf auðvitað að halda áfram því að innviðaskuldin er svo mikil.“ Hin áralangi vandi fer að „sjatna“ Um næstu verkefni bendir Alma t.a.m. á að unnið sé nú að því að opna aftur Hlévang í Keflavík sem bjóði upp á um 25 rými. Þar þurfi að fara í húsnæðisbreytingar sem ráðherrann segir ekki eiga að þurfa að taka langan tíma. Þá bendir hún aukinheldur á áætlun Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, sem fer fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila frá sínu fyrra embætti í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, sem gerir ráð fyrir að enn fleiri rými, í það minnsta 270, eigi að opna á næsta ári. „Þá fer þetta nú svona að sjatna, þessi áralangi vandi,“ segir Alma að lokum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Klappir semja við Fossa og Bergs Securities Tilkynna nýja stjórann Rétt sluppu á milli lægða Byrjunarlið Íslands: Gylfi og Aron byrja Þórunn heimsækir Pólland og Úkraínu Umræðan Fjármálastjórn ríkis og Reykjavíkurborgar „Þar sem ESB er orðið að sambandsríki“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Mars 2026 fer í sögubækurnar“ Hvað er svona merkilegt við Kharg-eyju? Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Sumir hermenn dvelja á hótelum Mest lesið Í gær Í vikunni Rukka fyrir vanskráningu á morgun Natan farinn í meðferð Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Lögreglan lýsir eftir manni Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Hélt að verið væri að hrekkja sig Gert að endurgreiða þrotabúi 10 milljónir Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Hópur ferðamanna setti allt í vasana Vitnum boðin áfallahjálp „Skynja rosalega mikla reiði“ Fá ekki leyfi til að rífa braggann Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Þriggja ára drengur á gjörgæslu eftir slysið Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Sterkar vindhviður og krefjandi akstursskilyrði Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Hópur ferðamanna setti allt í vasana Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Nýjast á mbl.is » Klappir semja við Fossa og Bergs Securities Tilkynna nýja stjórann Rétt sluppu á milli lægða Byrjunarlið Íslands: Gylfi og Aron byrja Þórunn heimsækir Pólland og Úkraínu Umræðan Fjármálastjórn ríkis og Reykjavíkurborgar „Þar sem ESB er orðið að sambandsríki“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sumir hermenn dvelja á hótelum Mannleg mistök og brotið yfirstaðið „Innviðaskuldin er svo mikil“ Vilja eitt skattþrep og hærri persónuafslátt Mest lesið Í gær Í vikunni Rukka fyrir vanskráningu á morgun Natan farinn í meðferð Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Lögreglan lýsir eftir manni Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Hélt að verið væri að hrekkja sig Gert að endurgreiða þrotabúi 10 milljónir Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Hópur ferðamanna setti allt í vasana Vitnum boðin áfallahjálp „Skynja rosalega mikla reiði“ Fá ekki leyfi til að rífa braggann Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Þriggja ára drengur á gjörgæslu eftir slysið Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Sterkar vindhviður og krefjandi akstursskilyrði Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Hópur ferðamanna setti allt í vasana Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu