Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Segja eftirliti ábótavant hjá netverslunum

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 1.4.2026 | 12:45 Segja eftirliti ábótavant hjá netverslunum Smáríkið er ein þeirra netverslana sem hafa aukið umsvif sín mikið á síðustu árum. Umrætt frumvarp heimilar starfsemi Smáríkisins. mbl.is/Anton Brink Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vín í verslanir Ísland krafið um skýr svör Vínverslun Hagkaups vel tekið „Óþolandi ástand á áfengismarkaðnum“ Óreiða í áfengislögum: „Löggjafinn er sofandi“ Ætla að leita til dómstóla vegna aðgerða lögreglu » Fleiri tengdar fréttir Verði frumvarp um vefverslun með áfengi samþykkt mun það auka þjáningu einstaklinga í samfélaginu, draga úr virkni forvarna og auka drykkju ungmenna. Það mun einnig stórauka kostnað í heilbrigðiskerfinu vegna beins og óbeins skaða af völdum notkunar á áfengi. Þetta mat kemur fram í umsögn embættis landlæknis um frumvarp Gríms Grímssonar og fleiri þingmanna. Frestur til að skila inn athugasemdum til allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis rann út 24. mars síðastliðinn og bárust 16 umsagnir. Á meðal þeirra sem sendu inn umsagnir eru ýmis samtök sem berjast gegn áfengisneyslu, svo sem IOGT, European Health Alliance on Alcohol og Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum, en einnig Viðskiptaráð Íslands og Samtök verslunar og þjónustu sem hvetja til þess að frumvarpið nái fram að ganga. Þá sendu forsvarsmenn Sante og Smáríkisins sömuleiðis inn umsagnir. Áhyggjur af heimsendingum Í umsögn landlæknis segir að verði frumvarpið að veruleika verði einkasala ríkisins á áfengi alfarið afnumin. Það muni leiða til aukinnar samkeppni og verðlækkunar sem aftur muni leiða til aukinnar neyslu með tilheyrandi skaðlegum afleiðingum. „Áfengisneysla getur valdið bæði bráðum og langvinnum sjúkdómum. Áhrif á aðra en þann sem drekkur eru í gegnum fósturskaða, slys, ofbeldi og sjálfsvíg. Þannig veldur áfengisneysla ekki bara áhrifum á heilbrigðiskerfið heldur félagslega kerfið, löggæslu og dómskerfi sem og á efnahag þjóða,“ segir í umsögninni sem Elísabet Benedikz settur landlæknir ritar undir. „Embættið vekur jafnframt athygli á þeim áhrifum sem aukið aðgengi í formi heimsendinga með áfengi hefur í för með sér. Raunveruleg erlend vefverslun getur ekki sent áfengi samdægurs þar sem pöntun þarf að flytja til landsins og tollafgreiða. Áfengi sem selt er í gegnum netverslun (með lager hérlendis) getur borist kaupanda samdægurs og jafnvel innan næsta klukkutíma. Þetta auðvelda aðgengi hefur mest og verst áhrif á þau sem síst skyldi og er til þess fallið að auka á áfengisdrykkju í heimahúsum, meðal þeirra sem standa höllum fæti og fá áfengi sent heim að dyrum. Jafnvel ungt fólk undir áfengiskaupaaldri getur fengið áfengi sent í heimahús, teiti eða aðra viðburði,“ segir þar enn fremur og er vísað til „nýlegrar úttektar“ embættisins á sölufyrirkomulagi netverslana sem bendi til þess að víða sé pottur brotinn. Auðvelt að svindla Þar segir að aldurseftirliti sé verulega ábótavant og könnun hafi leitt í ljós að spurt hafi verið um skilríki hjá 5 af 14 netverslunum eða í 36% tilvika. Aldurseftirliti hafi aðeins verið sinnt í tæpum 7% tilfella við afhendingu. Auðvelt sé að senda ungmennum undir lögaldri staðfestingarkóða til að leysa út áfengi hjá áfengisverslunum. Telur settur landlæknir að festa þurfi með greinarbetri hætti í lög hvaða kröfur verði gerðar til vefverslana þegar kemur að reglum um rafræn skilríki, afhendingu og eftirlit. Í umsögn Samtaka verslunar og þjónustu, þar sem lýst er stuðningi við frumvarpið, er vikið að afstöðu andstæðinga þess. „Í grundvallaratriðum virðast andstæðingar frumvarpsins setja það fyrir sig að samþykkt þess jafngildi því að aðgengi að áfengi muni aukast. Á skortir hins vegar að þess sé getið í hverju aðgengisaukningin á að felast. Hins vegar má gera ráð fyrir að í andstöðunni felist í raun krafa um að engar breytingar verði gerðar og jafnvel að bakkað verði aftur til áranna þegar veraldarvefurinn og vefverslanir voru ekki til staðar,“ segir þar. Ekki horft til breytinga Viðskiptaráð Íslands segir að það hafi sýnt sig að núverandi fyrirkomulag sé illa til þess fallið að takmarka aðgengi almennings að áfengi. Verslanafjöldi ÁTVR hafi margfaldast og þær séu nú 51 talsins. „Núverandi lagaumgjörð þjónar ekki tilgangi sínum og tekur ekki tillit til tækniframfara og þeirra breytinga sem hafa orðið á alþjóðaviðskiptum á neytendamarkaði,“ segir í umsögn þess. Einnig er vikið að skattheimtu. „Hið opinbera beitir nú þegar sértækum sköttum til að hækka verð á áfengi og takmarkar þannig aðgengi. Þeir skattar eru óháðir fyrirkomulagi ríkiseinokunar. Þótt áfengi sé ekki líkt og hver önnur neysluvara þýðir það ekki að hið opinbera þurfi að standa að sölu þess.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Vín í verslanir Ísland krafið um skýr svör Vínverslun Hagkaups vel tekið „Óþolandi ástand á áfengismarkaðnum“ Óreiða í áfengislögum: „Löggjafinn er sofandi“ Ætla að leita til dómstóla vegna aðgerða lögreglu » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ítalía setti óeftirsóknarvert met Tindastóll - Njarðvík, staðan er 0:0 Valur - Keflavík, staðan er 0:0 Tindastóll - ÍR, staðan er 0:0 Segja eftirliti ábótavant hjá netverslunum Umræðan Mótum nýtt húsnæðislánakerfi Kópavogur – miðja athafnalífs Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Eins og maður sé í stúdíóíbúð“ „Búinn að vera rosalegur sprettur“ „Innviðaskuldin er svo mikil“ Mannleg mistök og brotið yfirstaðið Mest lesið Í gær Í vikunni Niðurfelling kílómetragjalds fær Verðhækkanir á íslenskum pylsum vekja heimsathygli Hundleiðinlegt að standa í þessu Enn ein lægðin á leiðinni „Eins og maður sé í stúdíóíbúð“ Minnst 7-8 þúsund manns eru á biðlista Andlát: Elías Héðinsson Þúsundir fyrrum nemenda fengið rukkun Viðræður um kaup á flugfélagi sem Play stofnaði Hádegismatur á þúsundkall Rukka fyrir vanskráningu á morgun Natan farinn í meðferð Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp Mannleg mistök og brotið yfirstaðið Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Lögreglan lýsir eftir manni Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Hélt að verið væri að hrekkja sig Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Niðurfelling kílómetragjalds fær Daði Már fékk uppsagnarbréf Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Hópur ferðamanna setti allt í vasana Rukka fyrir vanskráningu á morgun Nýjast á mbl.is » Ítalía setti óeftirsóknarvert met Tindastóll - Njarðvík, staðan er 0:0 Valur - Keflavík, staðan er 0:0 Tindastóll - ÍR, staðan er 0:0 Segja eftirliti ábótavant hjá netverslunum Umræðan Mótum nýtt húsnæðislánakerfi Kópavogur – miðja athafnalífs Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Eins og maður sé í stúdíóíbúð“ „Mars 2026 fer í sögubækurnar“ Fulltrúi Íslands í Flórída: Geimkapphlaup hafið „Búinn að vera rosalegur sprettur“ Mest lesið Í gær Í vikunni Niðurfelling kílómetragjalds fær Verðhækkanir á íslenskum pylsum vekja heimsathygli Hundleiðinlegt að standa í þessu Enn ein lægðin á leiðinni „Eins og maður sé í stúdíóíbúð“ Minnst 7-8 þúsund manns eru á biðlista Andlát: Elías Héðinsson Þúsundir fyrrum nemenda fengið rukkun Viðræður um kaup á flugfélagi sem Play stofnaði Hádegismatur á þúsundkall Rukka fyrir vanskráningu á morgun Natan farinn í meðferð Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp Mannleg mistök og brotið yfirstaðið Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Lögreglan lýsir eftir manni Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Hélt að verið væri að hrekkja sig Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Niðurfelling kílómetragjalds fær Daði Már fékk uppsagnarbréf Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Hópur ferðamanna setti allt í vasana Rukka fyrir vanskráningu á morgun

Share this article