Keflavík vann fyrsta leik einvígisins gegn Valsmönnum í 8-liða úrslitum úrslitakeppni efstu deildar karla í körfubolta, 75-78. Valsmenn voru sterkari til að byrja með og leiddu 21-14 eftir fyrsta leikhluta. Þeir voru svo tíu stigum yfir í hálfleik, 42-32. Keflvíkingar söxuðu hægt og rólega á forskotið og var fjögurra stiga munur að þremur leikhlutum loknum, 61-57. Þeir komust svo yfir í stöðunni 65-67 þegar fjórar mínútur voru eftir. Eftir æsispennandi lokamínútur unnu þeir að lokum þriggja stiga sigur, 75-78. Mirza Bulic leiddi sókn Keflavíkur með 25 stig, sex fráköst og tvær stoðsendingar. Keyshawn Woods var stigahæstur hjá Val með 26 stig. Næsti leikur liðanna er þriðjudaginn 7. apríl. Stólar leiða einvígið gegn ÍR Tindastóll vann öruggan 108-99 sigur gegn ÍR og leiðir því einvígið. Leikurinn var nokkuð jafn lengst af og munurinn og leiddu Stólar með tveimur stigum eftir fyrsta leikhluta, 26-24. Þeir stungu svo ÍR-inga af í öðrum leikhluta og var staðan þá 54-47 í hálfleik. ÍR-ingar klóruðu sig til baka og var munurinn aðeins eitt stig eftir þriðja leikhluta, 78-77. Á lokakaflanum slitu Sauðkrækingar sig frá gestunum og unnu að lokum nokkuð öruggan níu stiga sigur, 108-99. Dedrick Basile leiddi Tindastól í helstu tölfræðiflokkum og lauk leik með 28 stig, níu fráköst og átta stoðsendingar. Dimitrios Klonaras var stigahæstur ÍR-inga með 22 stig, Næsti leikur liðanna er þriðjudaginn 7. apríl. .