Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Dýr málskotsréttur Samkeppniseftirlitsins

Read Full Article →

Páll Gunnar Pálsson og hans fólk hjá Samkeppniseftirlitinu fengu rækilegar skammir frá Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem máli eftirlitsins gegn Samskipum var vísað frá dómi. Málið snýst um 4,2 milljarða sekt eftirlitsins á hendur Samskipum vegna meintra samkeppnisbrota sem áfrýjunarnefnd samkeppnismála lækkaði niður í 2,4 milljarða. Venju samkvæmt vildi eftirlitið ekki una niðurstöðu æðra stjórnvalds og leitaði því til héraðsdóms. Í úrskurði héraðsdóms er eftirlitið m.a. gagnrýnt fyrir tafsama meðferð málsins, sem og fyrir óhóflegan og fordæmalausan skriflegan málflutning. Eftirlitið hyggst að sjálfsögðu kæra úrskurðinn til Landsréttar með tilheyrandi óþarfa kostnaði. Á dögunum veitti Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra eftirlitinu 30 milljóna viðbótarfjárveitingu sem á víst að hjálpa til við baráttuna við verðbólguna. Nær væri ef ráðherrann myndi leitast eftir því að spara skattfé með því að beita sér fyrir því að heimild eftirlitsins til málskotsréttar til dómstóla verði afnumin, skattgreiðendum og fyrirtækjum í landinu til heilla. Huginn og Muninn er einn af föstu skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article