Innlent | Sunnudagsblað | 5.4.2026 | 19:00 Láta alzheimer ekki stoppa sig Mummi og Unnur njóta lífsins þrátt fyrir alzheimer-sjúkdóm Mumma. Þau ferðast um heim allan. mbl.is/Ásdís Ásdís Ásgeirsdóttir Setja bókamerki Lífsgleðin skín af hjónunum Unni og Guðmundi sem hafa verið samstiga í gegnum lífsins ólgusjó. Þau taka vel á móti blaðamanni á heimili sínu í Hafnarfirði og bjóða upp á kaffi og köku og að sjálfsögðu er búið að taka fram páskastellið og páskaservíettur. Unnur og Mummi, eins og Guðmundur er ætíð kallaður, hafa verið saman síðan þau kynntust á balli í Glaumbæ. Saman hafa þau ferðast um allan heim og láta sjúkdóminn alzheimer ekki stöðva sig, en Mummi greindist með þann sjúkdóm fyrir um níu árum. Sáum öll stóru dýrin Ferðalög hafa alltaf verið áhugamál númer eitt, en hjónin hafa ferðast gríðarlega mikið, bæði innanlands og utan. Þau hafa heimsótt flest lönd á meginlandi Evrópu, Grænland, Suður-Afríku, Kúbu, Ísrael, nokkur landa Suður-Ameríku, Malasíu og Balí, svo eitthvað sé nefnt. Og eru hvergi nærri hætt. „Svo höfum við farið til flestra landa í Evrópu en eigum reyndar eftir Portúgal og Rússland en þangað langar mig ekki að fara,“ segir Unnur. „Í Suður-Afríku sáum við öll stóru dýrin og þau litlu líka,“ segir Unnur og segir þau hafa séð heilmikið af heiminum og kynnst á ferðum sínum fjölmörgu fólki. Hér eru hjónin á Sykurtoppnum í Brasilíu. „Við höfum komið til flestra eyja í Eyjahafinu en árið 2013 sigldum við með skemmtiferðaskipi frá Istanbúl og höfum alls farið fjórum sinnum í slíkar ferðir. Svo höfum við keyrt um alla Evrópu,“ segir hún og bætir við: „Grænland og Suður-Afríka eru minnisstæðust hjá mér. Hvort á sínum enda veraldar!“ Tungumálin hverfa ekki Mummi greindist með alzheimer sumarið 2017 en þá hafði Unnur tekið eftir Mummi var farinn að gleyma. Var ekki sjokk að fá greininguna? „Jú, það var hreint og klárt áfall. En við settumst niður og ákváðum að hætta ekki við að ferðast eins og við höfðum planað að gera þegar við værum komin á eftirlaun. Við ákváðum að gera það eins lengi og hægt væri. Við gerum allt sem okkur langar að gera og látum sjúkdóminn ekki hefta okkur,“ segir hún. „Skammtímaminnið er nánast farið og gamlar minningar eru aðeins byrjaðar að fara líka,“ segir hún. „Það er allt í lagi með ensku, dönsku, frönsku, þýsku og latínuna mína. Þau eru öll á sínum stað og er það mikils virði,“ segir Mummi og segist geta rifjað upp minningar frá ferðalögum þeirra hjóna. „Og þó að sumt gleymist, þá nýtur hann þess að ferðast og það er það sem skiptir máli. Við tökum þátt í lífinu af lífi og sál,“ segir Unnur. Unnur og Mummi eru hér á sandströnd á Jótlandsheiðum. Þannig að þið látið ekki alzheimer stoppa ykkur? „Nei, og ég vil segja öllum að það á maður ekki að gera. Það er hægt að lifa svo góðu lífi. Það er auðvitað áfall að fá alzheimer en það er ekkert betra að setjast í sófann og bíða. Best er að halda áfram að lifa, dansa og ferðast,“ segir Unnur. „Það er svo gaman að ferðast!“ segir Mummi. Ítarlegt viðtal er við Unni og Guðmund í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Útlitið svart hjá Tjörva og félögum Láta alzheimer ekki stoppa sig Perri var hetja Leeds Myndskeið: Löng bílalest inn í borgina Umræðan Menn láta nýtt vín á nýja belgi Enn ein hótun Trumps Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Láta alzheimer ekki stoppa sig Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Fræðimannsíbúð laus til umsóknar Eina ráðuneytið sem gefur ekki páskaegg Mest lesið Í gær Í vikunni Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Fólk beðið um að vera ekki á ferðinni á meðan veðrið gengur yfir Miðar á stórtónleika orðnir stöðutákn í dag Tveir fengu 88 milljónir Vélsleðamenn lentu í ánni Stal úr görðum og bílum Vill láta endurskoða leyfi til tónleikahalda Ástandið verra á Fjarðarheiði en áður var talið Breytingin á jöklunum er svakaleg Stórt og mikið mál fyrir Ísland Leigja út heimili á ríflega milljón Heimir segir páskaeggjakaupin óheppileg Andlát: Steinar J. Lúðvíksson Peningunum betur varið í annað Tveir fengu 88 milljónir Gul veðurviðvörun gefin út fyrir landið allt Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Eina ráðuneytið sem gefur ekki páskaegg „Það má aldrei vera neitt gaman“ 88 ára getspekingur: „Þetta kom mér ekkert á óvart“ Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun Hópur ferðamanna setti allt í vasana Nýjast á mbl.is » Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Útlitið svart hjá Tjörva og félögum Láta alzheimer ekki stoppa sig Perri var hetja Leeds Myndskeið: Löng bílalest inn í borgina Umræðan Menn láta nýtt vín á nýja belgi Enn ein hótun Trumps Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Heimir segir páskaeggjakaupin óheppileg Vill láta endurskoða leyfi til tónleikahalda Flugmanninum bjargað Myndskeið: Löng bílalest inn í borgina Mest lesið Í gær Í vikunni Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Fólk beðið um að vera ekki á ferðinni á meðan veðrið gengur yfir Miðar á stórtónleika orðnir stöðutákn í dag Tveir fengu 88 milljónir Vélsleðamenn lentu í ánni Stal úr görðum og bílum Vill láta endurskoða leyfi til tónleikahalda Ástandið verra á Fjarðarheiði en áður var talið Breytingin á jöklunum er svakaleg Stórt og mikið mál fyrir Ísland Leigja út heimili á ríflega milljón Heimir segir páskaeggjakaupin óheppileg Andlát: Steinar J. Lúðvíksson Peningunum betur varið í annað Tveir fengu 88 milljónir Gul veðurviðvörun gefin út fyrir landið allt Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Eina ráðuneytið sem gefur ekki páskaegg „Það má aldrei vera neitt gaman“ 88 ára getspekingur: „Þetta kom mér ekkert á óvart“ Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun Hópur ferðamanna setti allt í vasana