Kling er ný íslensk greiðslulausn sem leit dagsins ljós í síðustu viku en lausnin hefur í raun verið stöðugt í þróun síðan 2020. Kerfið, sem hét upphaflega Journey, var á sínum tíma hannað með áskriftarfyrirtæki í huga. Stofnendur Kling eru Herdís Helga Arnalds, Marinó Páll Valdimarsson, Kai Köhn og Janus Bjarki Birgisson. Herdís segir í samtali við Viðskiptablaðið að Journey hafi fyrst verið hannað fyrir áskriftarfyrirtækin Blómstru og Sódavatn. Teymið fékk síðan meiri innsýn inn í íslenskan greiðslumarkað og sáu þau þörf fyrir nýjung á markaðnum. „Við seldum kerfið til nokkurra aðila sem voru að vinna með söluáskriftir en okkur langaði hins vegar að fara með þetta á hærra plan. Við vorum búin að einblína á áskriftarbransann í langan tíma en með þessu vildum við líka einfalda greiðslukerfið á Íslandi.“ Greiðslukerfi Kling virkar með svipuðum hætti og greiðslukerfi Stripe, þar sem hægt er að taka við greiðslum með eða án forritunar. Notendur geta einnig sett upp rafrænan posa í símanum sínum og rukkað með SMS eða QR-kóðum. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaði vikunnar . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .