- What: NASA astronauts describe the Moon's surface as similar to Iceland
- Impact: Space exploration and planetary science enthusiasts
Christina Koch geimfari.EPA / CRISTOBAL HERRERA-ULASHKEVICH Sögulegum Artemis-leiðangri kringum tunglið er lokið og geimfararnir eru á leiðinni heim. Þeir ferðuðust lengra út í geim en nokkur maður hefur áður gert, misstu samband við jörðina þegar þeir skoðuðu skuggahlið tunglsins – og fylgdust með sólmyrkva. Christina Koch, ein geimfaranna, lýsti yfirborði tunglsins og sagði það líkjast íslenska hálendinu. Geimfararnir æfðu sig fyrir leiðangurinn á Íslandi sumarið 2024 . Undirbúningur fyrir leiðangurinn tók mörg ár og á sínum tíma sögðu geimfararnir að Ísland væri sá æfingastaður sem mest líktist tunglinu.