Innlent | Morgunblaðið | 9.4.2026 | 11:12 Landlæknisembættið vanmetur hjúkrun Skortur er á heildrænni sýn, of mikið um lausatök og úrræðaleysi. Með nýju embætti yfirhjúkrunarfræðings verður hægt að draga úr því. Ljósmynd/LSH-Þorkell Þorkelsson Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki Þegar horft er til stöðunnar á Íslandi er mikilvægt að stofnað verði embætti yfirhjúkrunarfræðings í stjórnsýslunni að nýju, samkvæmt tilmælum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Embættið myndi veita yfirvöldum faglega leiðsögn og hafa yfirsýn yfir stefnumótun sem tryggir gæði, öryggi og aðgengi að heilbrigðisþjónustu, auk þess að móta framtíðarsýn um sjálfbæra þróun heilbrigðiskerfisins með hagsmuni samfélagsins að leiðarljósi. Þetta segir Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) sem gerði grein fyrir skoðun sinni i Tímariti hjúkrunarfræðinga á dögunum. Hún segir að staða yfirhjúkrunarfræðings hafi verið til áður innan landlæknisembættisins. „Þar var ráðherraskipaður hjúkrunarfræðingur sem bar titilinn yfirhjúkrunarfræðingur. Hann var sérstakur ráðunautur heilbrigðisstjórnar og ríkisstjórnar í umboði landlæknis um hvað eina sem viðkemur hjúkrun á Íslandi. Hann sá um stefnumótun og áætlanagerð varðandi hjúkrunarþjónustu auk þess að vera með eftirlit með þjónustunni, efla gæði og samræma þjónustuna hvar sem hún er veitt á landinu.“ Fagleg leiðsögn og yfirsýn Spurð hvaða þýðingu þetta hafi segir Helga Rósa að þetta sé lykilstaða í þjónustunni. „Hlutverk embættisins er að veita heilbrigðisyfirvöldum faglega leiðsögn og hafa yfirsýn yfir heildræna stefnumótun hvað varðar gæði, öryggi og aðgengi. Hjúkrunarfræðingar, ljósmæður og sjúkraliðar eru um helmingur þeirra sem sinna þjónustunni og því er eðlilegt að þeir sem hafa þessa sérþekkingu sitji við borðið og taki þátt í stefnumótun og áætlanagerð.“ Lausatök og úrræðaleysi Hún bendir á heimasíðu landlæknis þar sem kemur fram að enginn innan embættisins beri starfsheitið hjúkrunarfræðingur. „Aftur á móti eru þar yfirlæknar, læknar, lögfræðingar og lyfjafræðingar. Það má vel vera að þar starfi hjúkrunarfræðingar en umræðan um hjúkrun hefur verið vanmetin og útþynnt í umræðunni, eins og hún sé sjálfgefin og gerist af sjálfu sér. Þetta finnst mér endurspeglast í því hvernig hjúkrun er sett fram hjá embættinu, hún ætti að vera í brennidepli og njóta forgangs í stað þess að vera jaðarsett.“ En er þetta ekki bara enn ein silkihúfan upp af annarri, í þessu embættismannakerfi, sem verið er að búa til með þessu? „Hluti af vandanum í dag er skortur á yfirsýn, samræmingu og nýtingu mannaflans í hjúkrun. Hjá íslenskum heilbrigðisyfirvöldum eru hvergi til almennilegar spár, hvorki yfir hjúkrunarmannafla í landinu né hæfnina sem hann hefur, eða hvernig hann er hugsaður til framtíðar. Þetta er ekki bara gagnrýni frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga heldur kom þetta skýrt fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar sem kom út sl. sumar. Þar kom fram að skortur er á heildrænni sýn og of mikið sé um lausatök og úrræðaleysi.“ Ekki nóg að byggja húsnæði Helga Rósa segir að mikil áhersla sé lögð á einhvers konar átaksverkefni þar sem hver ríkisstjórn fyrir sig berji sér á brjóst fyrir einstök verkefni en það vanti heildarsýn. „Það er ekki nóg að byggja húsnæði því það vantar fólk til að vinna þar og áætlanir um hvernig á að manna þessi hjúkrunarrými. Yfirhjúkrunarfræðingur hjá embætti landlæknis myndi hafa þessa yfirsýn og langflest ríki sem við berum okkur saman við hafa þessar stöður.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Landlæknisembættið vanmetur hjúkrun Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ Holur myndast víða á vegum Smáríkið áfrýjar dómi um hvítvínsbelju Bretar fylgdu þremur rússneskum kafbátum eftir Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Kennitölulausu Reykvíkingarnir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Heuermann játaði að hafa myrt konurnar Bretar fylgdu þremur rússneskum kafbátum eftir Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Holur myndast víða á vegum Mest lesið Í gær Í vikunni Kostnaður langt umfram áætlun Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Boða foreldra á fund tæplega mánuði eftir slysið Ríkisstjórnin aftur í Tjarnargötu Síðbúin vorhret mun verri en páskahret Segir Íslendinga borða alltof mikinn sykur Stikla úr óbirtri heimildarmynd sýnd annað kvöld Freyr Gígja kominn í dómsmálaráðuneytið Ljá máls á þjóðarsátt Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Nýjast á mbl.is » Landlæknisembættið vanmetur hjúkrun Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ Holur myndast víða á vegum Smáríkið áfrýjar dómi um hvítvínsbelju Bretar fylgdu þremur rússneskum kafbátum eftir Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Kennitölulausu Reykvíkingarnir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Telur landlækni vera á villigötum Smáríkið áfrýjar dómi um hvítvínsbelju Hersveitir áfram þar til „alvöru samkomulag“ næst Heuermann játaði að hafa myrt konurnar Mest lesið Í gær Í vikunni Kostnaður langt umfram áætlun Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Boða foreldra á fund tæplega mánuði eftir slysið Ríkisstjórnin aftur í Tjarnargötu Síðbúin vorhret mun verri en páskahret Segir Íslendinga borða alltof mikinn sykur Stikla úr óbirtri heimildarmynd sýnd annað kvöld Freyr Gígja kominn í dómsmálaráðuneytið Ljá máls á þjóðarsátt Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir