Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Lýsir bjartsýni um friðar­sam­komu­lag við Rússa

Read Full Article →

Æðsti samningamaður Úkraínu í viðræðum við Rússland segist sjá framfarir í átt að mögulegu friðarsamkomulagi við rússnesk stjórnvöld og bætti við að það gæti mögulega náðst á skömmum tíma að binda endi, fjórum árum eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu. Kyrylo Budanov, skrifstofustjóri forsetaembættis Úkraínu, sagði í viðtali við Bloomberg að viðræður væru að þróast í átt að samkomulagi og sagði úkraínska samningateymið telja að Rússar vilji einnig ljúka stríðinu. „Það skilja allir að stríðinu þarf að ljúka. Þess vegna eigum við í viðræðum,“ sagði Budanov. „Ég held að það muni ekki taka langan tíma. Hann gaf til kynna að báðar þjóðir þurfi að gefa meira eftir til að ná saman en vildi þó ekki ráða samningsatriði á borð við landsvæði. Hann sagði Rússa hafa mikinn hvata til að ná samkomulagi um að ljúka stríðinu. „Ólíkt okkur eru þeir að eyða eigin peningum. Þetta eru gríðarlegar upphæðir, þegar orðnar að billjónum.“ Hlutabréfavísitalan Stoxx Europe 600 hefur hækkað um 0,7% í dag. Í umfjöllun CNBC er bent á að hlutabréf vopnaframleiðanda og annarra fyrirtækja sem starfa á sviði varnarmála hafi lækkað í dag. Hlutabréfaverð þýska fyrirtækisins Rheinmetall hefur lækkað um 6,2%, Renk hefur lækkað um 4,4%, Hensoldt, hefur lækkað um 5,6%, sænska fyrirtækið Saab hefur lækkað um 2,3% og breska fyrirtækið BAE Systems hefur lækkað um 3,2%.

Share this article