Viðskipti | mbl | 13.4.2026 | 14:45 Hæstiréttur hafnar beiðni Símans Hæstiréttur segir að hvorki verði litið svo á að úrslit málsins hafi verulegt almennt gildi né það varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni Símans í skilningi laga. Þá verði ekki séð að málsmeðferð fyrir héraðsdómi eða Landsrétti hafi verið stórlega ábótavant eða dómur Landsréttar bersýnilega rangur að formi eða efni. Samsett mynd/mbl.is/Karítas/Kristinn Setja bókamerki Hæstiréttur hefur hafnað beiðni Símans um áfrýjunarleyfi í dómsmáli gegn Seðlabanka Íslands (SÍ) og íslenska ríkinu. Málið varðar álagningu stjórnvaldssektar á Símann árið 2023 vegna brota gegn þágildandi lögum um verðbréfaviðskipti. Í nóvember 2023 sektaði fjármálaeftirlitsnefnd Seðlabanka Íslands Símann um 76,5 milljónir króna fyrir að hafa ekki birt ætlaðar innherjaupplýsingar í lok ágúst 2021 í tengslum við mögulega sölu á Mílu. Ágreiningurinn í málinu lýtur að réttmæti stjórnvaldsákvörðunar nefndarinnar um álagningu sektarinnar á Símann vegna brota gegn þágildandi lögum um verðbréfaviðskipti og 17. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins um markaðssvik. Nánar tiltekið þá var deilt um það hvort innherjaupplýsingar hefðu myndast við þá ákvörðun stjórnar Símans 31. ágúst 2021 að hefja seinni áfanga í söluferli á dótturfélagi þess, Mílu ehf. Í ákvörðuninni fólst að bjóða fjórum aðilum, sem skilað höfðu inn óskuldbindandi tilboðum í dótturfélagið, að kynna sér það nánar með það að markmiði að gera skuldbindandi, fullfjármagnað og skilyrðislaust tilboð í allt hlutafé þess innan sjö vikna. Höfðaði gagnaðili mál í því skyni að fá ákvörðun gagnaðila fellda úr gildi. Frétt af mbl.is Síminn sektaður um 76,5 milljónir króna SÍ og ríkið sýknuð í héraði og í Landsrétti Með dómi héraðsdóms voru SÍ og ríkið sýknuð af kröfum Símans. Var talið að upplýsingarnar hefðu uppfyllt öll hugtaksskilyrði innherjaupplýsinga í skilningi þágildandi 120. gr. laga nr. 108/2007 og hefði leyfisbeiðandi því átt að birta þær eins fljótt og auðið var samkvæmt 122. gr. laganna eða fresta birtingu þeirra til samræmis við 4. mgr. sömu greinar teldi hann þess þörf. Þá taldi dómurinn enga annmarka vera á stjórnvaldsákvörðuninni sem gætu leitt til þess að hún yrði felld úr gildi. Enn fremur var kröfu Símans um lækkun stjórnvaldssektarinnar hafnað. Landsréttur staðfesti svo héraðsdóm um sýknu SÍ og ríkisins að viðbættum frekari röksemdum. Frétt af mbl.is Hafnar að ógilda 76 milljóna kr. stjórnvaldssekt Mikilvægt að fá fordæmi Síminn taldi öll skilyrði laga um meðferð einkamála vera fyrir hendi. Þannig hefði málið verulegt almennt gildi og mikilvægt væri að Hæstiréttur tæki það fyrir. Dómur Landsréttar leiddi til réttaróvissu fyrir þátttakendur á fjármálamarkaði um inntak innherjaupplýsinga og mikilvægt væri að fá fordæmi Hæstaréttar um sakarefnið. Þá væri dómur Landsréttar bersýnilega rangur enda hefði rétturinn meðal annars dregið rangar ályktanir af dómi Evrópudómstólsins 28. júní 2021 í máli nr. C-19/11 og þeim upplýsingum sem lágu fyrir leyfisbeiðanda 31. ágúst 2021. Enn fremur vörðuðu úrslit málsins sérstaklega mikilvæga hagsmuni Símans þar sem hann hefði mikla hagsmuni af því að skýrt væri hvenær innherjaupplýsingar yrðu til í þrepaskiptu ferli. Loks væri sektarfjárhæðin verulega há með hliðsjón af öllum atvikum málsins. Hæstiréttur sagði nei Hæstiréttur segir í sinni ákvörðun að hvorki verði litið svo á að úrslit málsins hafi verulegt almennt gildi né það varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðanda í skilningi laga. Þá verði ekki séð að málsmeðferð fyrir héraðsdómi eða Landsrétti hafi verið stórlega ábótavant eða dómur Landsréttar bersýnilega rangur að formi eða efni. Var beiðninni því hafnað. Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Dauðarefsingar í Miðausturlöndum Sigurður Már Jónsson Sekt, sagnfræði og þrælasala Fleira áhugavert Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Orban játar sig sigraðan Fólkið mun á endanum gefast upp Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Jarðboranir vinna útboð í Karíbahafi Skora þekkt bókhaldskerfi á hólm Sumarbústaðir áfram vinsælir Minnka flækjustigið við greiðslur 75% Íslendinga vilja nýja staði Laun hér þau hæstu í Evrópu Aðgerðir til höfuðs forsenduákvæði kjarasamninga Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Borga 137 milljónir til ferðamanna Laufey og Sigfríð til Novum Sumarbústaðir áfram vinsælir Skora þekkt bókhaldskerfi á hólm Minnka flækjustigið við greiðslur 75% Íslendinga vilja nýja staði Laun hér þau hæstu í Evrópu Aðgerðir til höfuðs forsenduákvæði kjarasamninga Borga 137 milljónir til ferðamanna Laufey og Sigfríð til Novum Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Origo kaupir Maven Sumarbústaðir áfram vinsælir 75% Íslendinga vilja nýja staði Ráðin markaðsstjóri Slippfélagsins Laun hér þau hæstu í Evrópu Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Prís tekur nú við peningum Skora þekkt bókhaldskerfi á hólm Minnka flækjustigið við greiðslur Origo kaupir Maven Hækkun húsnæðis- og vöruverðs ýtti undir verðbólgu Pistlar » Sigurður Már Jónsson Dauðarefsingar í Miðausturlöndum Sigurður Már Jónsson Sekt, sagnfræði og þrælasala Fleira áhugavert Ísland á EM eftir stórsigur Ætla ekki að kæra ákvörðun um meintan eltihrelli Lágflugið vekur athygli út fyrir landsteinana Þýðir aðild betri lánakjör á Íslandi? Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Jarðboranir vinna útboð í Karíbahafi Skora þekkt bókhaldskerfi á hólm Sumarbústaðir áfram vinsælir Minnka flækjustigið við greiðslur 75% Íslendinga vilja nýja staði Laun hér þau hæstu í Evrópu Aðgerðir til höfuðs forsenduákvæði kjarasamninga Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Borga 137 milljónir til ferðamanna Laufey og Sigfríð til Novum Sumarbústaðir áfram vinsælir Skora þekkt bókhaldskerfi á hólm Minnka flækjustigið við greiðslur 75% Íslendinga vilja nýja staði Laun hér þau hæstu í Evrópu Aðgerðir til höfuðs forsenduákvæði kjarasamninga Borga 137 milljónir til ferðamanna Laufey og Sigfríð til Novum Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Origo kaupir Maven Sumarbústaðir áfram vinsælir 75% Íslendinga vilja nýja staði Ráðin markaðsstjóri Slippfélagsins Laun hér þau hæstu í Evrópu Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Prís tekur nú við peningum Skora þekkt bókhaldskerfi á hólm Minnka flækjustigið við greiðslur Origo kaupir Maven Hækkun húsnæðis- og vöruverðs ýtti undir verðbólgu