Security News

Cybersecurity news aggregator

⚔️
HIGH Attacks Viðskiptablaðið

Meta gert að hefta dreifingu falsfrétta

The Philippine government has formally ordered Meta to halt the spread of disinformation campaigns, specifically false news articles exploiting public anxiety around the current energy crisis. The directive, citing national law, warns that such content threatens public order and national security. Meta was given seven days to submit a detailed action plan to address the issue.
Read Full Article →

Ríkisstjórn Filippseyja hefur fyrirskipað móðurfélagi Facebook, Meta, að herða aðgerðir gegn falsfréttum sem eru sagðar valda ótta og skapa ringulreið. Á vef WSJ er til að mynda vitnað í villandi fréttir sem tengjast núverandi orkukrísu. Upplýsingatækni- og fjarskiptaráðuneyti Filippseyja sendi bréf til Mark Zuckerberg þann 10. apríl sl. þar sem fyrirtækið er krafið um að hefta dreifingu falsfrétta og varaði við því að áframhaldandi dreifing bryti gegn lögum landsins. „Á tímum þar sem hækkandi eldsneytisverð og verð á nauðsynjavörum eykur viðkvæmni almennings fyrir upplýsingum um efnahagslegt ástand og viðbrögð stjórnvalda, getur villandi efni ógnað almannareglu og trausti á efnahag og þjóðaröryggi,“ segir í bréfinu. Meta var gefið 48 klukkustundir til að staðfesta móttöku bréfsins og sjö daga til að leggja fram ítarlega aðgerðaráætlun.

Share this article