Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Rólegheitaveður í dag en hvessir í nótt

Read Full Article →

Útlit er fyrir tiltölulega rólega austlæga átt í dag. Einhverjar skúrir verða en bjart með köflum og yfirleitt þurrt norðan heiða. Þó hvessir í nótt og þá sérstaklega við suðurströndina til fyrramáls þar sem er útlit fyrir 15 til 20 metra á sekúndu. Veðurspáin er svohljóðandi: Austlæg átt 3-10 m/s og skúrir, en bjart með köflum og yfirleitt þurrt norðan heiða. Gengur í austan 8-15 í nótt með rigningu, en 15-20 við suðurströndina til fyrramáls. Lægir eftir hádegi á morgun og styttir upp um landið vestanvert, en áfram vætusamt austantil. Hiti víða á bilinu 5 til 10 stig yfir daginn

Share this article