- What: Political debate over Russian participation in festival
- Impact: Not relevant to cybersecurity
Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, hefur í bréfi til skipuleggjenda Feneyjatvíæringsins lýst stuðningi við ákall menningarmála- og utanríkisráðherra 22 annarra Evrópuríkja um að þeir endurskoði þátttöku rússneskra listamanna í hátíðinni. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins en ráðherrar frá öllum hinum Norðurlöndunum undirrituðu sameiginlegu yfirlýsinguna. Rússar hafa ekki verið með síðan 2019, þeim er ekki bönnuð þátttaka og í ár hafa þeir boðað þátttöku ungra tónlistarmanna, ljóðskálda og hugsuða í samsýningunni The Tree is Rooted in the Sky . Ráðherrar segja Rússa varpa upp mynd lögmætis sem stangist á við raunveruleikann Ráðherrarnir lýsa þungum áhyggjum af því að Rússar varpi með því upp mynd lögmætis og alþjóðlegrar viðurkenningar sem ekki standist raunveruleikann. Hún stangist á við áframhaldandi stríðsrekstur þeirra í Úkraínu, eyðileggingu á þarlendum menningararfi og alþjóðlegar refsiaðgerðir gegn þeim. Óásættanlegt sé því að Rússar taki þátt í Feneyjatvíæringnum í myndlist sem hefst 9. maí. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur hótað að draga til baka tveggja milljón evra styrk til hátíðarinnar, þar sem þátttaka Rússa brjóti í bága við skilmálana fyrir stuðningnum. Þúsundir listamanna og fólks úr menningarlífinu, þar á meðal gjörningalistahópurinn Pussy Riot, hafa undirritað opið bréf til skipuleggjenda hátíðarinnar þar sem fyrirhuguð sýning Rússlands fari gegn yfirlýsingu þeirra frá 2022 um að slíta tengslunum við Rússa meðan innrásarstríðið varir.