Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Óhjákvæmilegir vaxtarverkir

Read Full Article →

Innlent | Kosningar | Morgunblaðið | 15.4.2026 | 18:30 Óhjákvæmilegir vaxtarverkir Anna Gréta Ólafsdóttir og Helgi Kjartansson í Bláskógabyggð. mbl.is/Kristófer Liljar Stefán E. Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Fjármagnar ekki kosningaloforð Samfylkingar Mikil fólksfjölgun í Bláskógabyggð Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið: Telja svigrúm til að lækka álögur á íbúa Umfjöllun ýtt úr vör á Höfn » Fleiri tengdar fréttir Viðfangsefni sveitarstjórnarfólks í Bláskógabyggð einkennast um þessar mundir af örum vexti, auknum kröfum um uppbyggingu innviða og umræðu um hvernig sveitarfélagið geti haldið í sérstöðu sína á sama tíma og vaxtarmöguleikar þess eru nýttir til fulls. Þetta kemur skýrt fram í samtali við oddvita þeirra tveggja framboða sem bjóða fram í Bláskógabyggð að þessu sinni sem fyrr, þau Helga Kjartansson frá T-lista og Önnu Grétu Ólafsdóttur frá Þ-lista, þar sem farið er yfir stöðu sveitarfélagsins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Blaðamaður Morgunblaðsins settist niður með þeim á Vínstofu Friðheima sem er einn vinsælasti viðkomustaður ferðamanna á leiðinni um Gullna hringinn. Bláskógabyggð varð til árið 2002 við sameiningu Þingvallahrepps, Laugardalshrepps og Biskupstungnahrepps. Um árabil hafa tvö framboð, T-listi og Þ-listi, tekist þar á um völdin. Í kosningunum 2022 hlaut T-listinn 391 atkvæði og fimm fulltrúa, en Þ-listinn 166 atkvæði. T-listinn hefur farið með meirihluta síðustu þrjú kjörtímabil, en Þ-listinn var við stjórnvölinn frá stofnun sveitarfélagsins og fram til ársins 2010. Mikil fólksfjölgun reynir á Íbúum svæðisins hefur fjölgað um 32% á kjörtímabilinu, sem verður að teljast mikið og ekki örgrannt um að vart verði vaxtarverkja við slíkar aðstæður. Bæði Helgi og Anna Gréta segja þessa þróun tengjast vaxandi atvinnulífi, ekki síst í ferðaþjónustu, en jafnframt sé ljóst að hún setji verulegt álag á sveitarfélagið. Helgi segir stærstu verkefnin fram undan felast í frekari innviðauppbyggingu, meðal annars stækkun skóla, auknu aðgengi að heitu og köldu vatni, úrbótum í fráveitumálum og áframhaldandi gatnagerð. Anna Gréta tekur undir að fólksfjölgun og fjölgun leggi þær kröfur á sveitarfélagið að bregðast við af festu og skynsemi. Samstarfið gengið vel Þrátt fyrir að T-listi og Þ-listi keppi sín á milli um fylgi kjósenda má augljóslega greina af samtali oddvitaframbjóðendanna tveggja að samstarf í sveitarstjórn hafi almennt gengið vel. Anna Gréta segir sveitarstjórnina hafa tekist á við erfið mál í sameiningu og að áherslumunur listanna liggi fremur í forgangsröðun verkefna en í grundvallarágreiningi um stefnu sveitarfélagsins. Þá sé einnig verið að velja milli einstaklinga. Bæði framboð hafi lagt áherslu á að sækja frambjóðendur sem víðast um hið stóra sveitarfélag. Fullyrðir Helgi að T-lista hafi tekist betur upp í því og nefnir fulltrúa úr Þingvallasveit í því sambandi. Viðurkennir Anna Gréta að þar hafi Þ-lista orðið fótaskortur en ekki þurfi að örvænta. Þegar komi að málefnum þess svæðis eigi Þ-listi, eins og sveitarfélagið allt, hauka í horni. Nefnir Helgi þó að þekking á nærumhverfinu geti skipt sköpum, ekki síst hvað viðkemur skipulagsmálum. Hann tekur þó í sama streng og Anna Gréta og segir starfið í sveitarfélaginu fyrst og fremst snúast um að vinna saman að hagsmunum samfélagsins. Hann bendir jafnframt á að mikil uppbygging hafi átt sér stað á kjörtímabilinu, meðal annars í gatnagerð og lóðaúthlutunum, en nú sé búið að úthluta lóðum fyrir alls 115 íbúðir. Lögð hafi verið áhersla á að halda lóðaverði lágu til að auðvelda fólki að byggja og festa rætur í sveitarfélaginu. Þannig nái sveitarfélagið að styrkja samkeppnishæfni sína. Vilja fjölbreyttara atvinnulíf Ferðaþjónustan er langstærsta vaxtargreinin í Bláskógabyggð, enda eru Þingvellir, Gullfoss, Geysir, Skálholt og Friðheimar meðal helstu segla inn á svæðið. Oddvitarnir eru þó sammála um að sveitarfélagið þurfi að sækja fram af meiri krafti þegar kemur að fjölbreyttara atvinnulífi. Anna Gréta segir mikilvægt að sveitarfélagið hafi augun á því að tapa ekki sérstöðu sinni í hraðri sókn. Hún nefnir sérstaklega að of mikil einsleitni í atvinnuuppbyggingu geti orðið veikleiki til lengri tíma. Þegar Helgi er spurður út í sama efni segist hann sjá tækifæri í fjölbreyttari greinum og nefnir þar möguleika í heilsutengdri starfsemi. Segir Anna Gréta að sveitarfélagið þurfi að sækja fram í þessum efnum og megi ekki bíða tækifæranna. Bjartsýni á nýju kjörtímabili Í viðtalinu ber einnig á góma viðkvæmt mál sem varðar mögulega sameiningu sveitarfélaga á svæðinu, en hvorugt framboðið hefur sett slík mál á stefnuskrá fyrir næsta kjörtímabil. Bæði leggja þau þó áherslu á að mikil samvinna sé þegar fyrir hendi milli sveitarfélaga í Árnessýslu og enn megi gera meira í sameiginlegri þjónustu og verkefnum án þess að til formlegrar sameiningar komi. Helgi gengur þó skrefinu lengra og spyr hvort ekki væri rétt að stíga eitt stórt skref til sameiningar á komandi árum þannig að öll sveitarfélögin í sýslunni yrðu að einu. Þar kæmi til sameiningar átta slíkra og íbúafjöldinn yrði yfir 20 þúsund. Yrði slíkt sveitarfélag eitt hið fjölmennasta á landinu. Af samtalinu við Önnu Grétu og Helga má ráða að almenn bjartsýni ríki um framtíð Bláskógabyggðar. Bæði segja þau tækifærin mörg, verkefnin krefjandi en spennandi, og leggja áherslu á að sama hvernig kosningarnar fari verði áfram nauðsynlegt að vinna saman af heilindum í þágu sveitarfélagsins. Samtölin úr Bláskógabyggð í hljóði og mynd á mbl.is og Spotify. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Fjármagnar ekki kosningaloforð Samfylkingar Mikil fólksfjölgun í Bláskógabyggð Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið: Telja svigrúm til að lækka álögur á íbúa Umfjöllun ýtt úr vör á Höfn » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Manstu þegar Sigga Beinteins breytti eldhúsinu fyrir litla peninga? ÍBV - Haukar, staðan er 14:13 Ekki verður af samruna Arion og Kviku Markahæstur í fallslagnum Óhjákvæmilegir vaxtarverkir Umræðan Sköpum borg sem virkar fyrir alla Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Óljóst hver ber ábyrgð á áhættumati Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Þríhliða samtal við vinnumarkaðinn komið af stað Mest lesið Í gær Í vikunni Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Níu vilja verða skólameistarar eða rektor „Hörmum að þetta hafi átt sér stað“ Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Nýjast á mbl.is » Manstu þegar Sigga Beinteins breytti eldhúsinu fyrir litla peninga? ÍBV - Haukar, staðan er 14:13 Ekki verður af samruna Arion og Kviku Markahæstur í fallslagnum Óhjákvæmilegir vaxtarverkir Umræðan Sköpum borg sem virkar fyrir alla Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Mánaðarleg hækkun leigu gerð óheimil Um 25 milljónir rúmmetra af kviku undir Svartsengi Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Mest lesið Í gær Í vikunni Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Níu vilja verða skólameistarar eða rektor „Hörmum að þetta hafi átt sér stað“ Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Lýsir eftirsjá: „Bö

Share this article